Fréttablaðið - 13.05.2017, Síða 93
Lengri námslínur Opna háskólans í HR eru allt frá einni önn að
einu ári og henta vel samhliða starfi. Námslínurnar eru settar upp
í samráði við fagráð sem eru skipuð sérfræðingum akademískra
deilda HR og samstarfsaðilum úr atvinnulífinu.
Viltu efla þig í starfi?
Skráning og frekari upplýsingar á opnihaskolinn.is
Haldnir verða stuttir kynningarfundir fyrir
hverja námslínu þann 23. maí kl. 9-12.
Verkefnastjórar taka á móti gestum og boðið
verður upp á léttar veitingar.
– APME verkefnastjórnun
– Ábyrgð og árangur stjórnarmanna
– Hótelstjórnun og veitingahúsarekstur
– Mannauðsstjórnun og leiðtogafærni
– Markþjálfun
– PMD stjórnendanám
– Stafræn markaðssetning og viðskipti á netinu
– Stjórnendur framtíðarinnar
– Stjórnendur í iðnaði
– Stjórnendur í verslun
– Straumlínustjórnun
– Verðbréfaviðskipti
– Viðurkenndir bókarar
– Vinnsla og greining gagna
– Vörustjórnun og stjórnun aðfangakeðjunnar
Námslínur sem hefjast næsta haust:
Kynningarfundir
Rakel segir að góð tækni- og forritunarþekking hafi aldrei verið jafn mikilvæg
og nú. MYND/GVA
Góð tækni- og forritunar-þekking hefur aldrei verið jafn mikilvæg og nú. „Við
hjá Skema erum með námskeið
fyrir krakka á aldrinum 4-16 ára í
Háskólanum í Reykjavík. Í fyrra-
sumar fórum við af stað með tækni-
smiðju fyrir 4-6 ára börn og óhætt
er að segja að þátttakendur hafi
krúttað yfir sig. Þau fengu að kynn-
ast fyrstu skrefunum í forritun og
lærðu að nota kennsluöpp á spjald-
tölvum,“ segir Rakel, verkefnisstjóri
Skema hjá Háskólanum í Reykjavík.
Meira en 6.500 krakkar hafa sótt
námskeið hjá Skema og sífellt fleiri
bætast í þann hóp. „Námskeiðin hjá
okkur njóta sífellt meiri vinsælda
og foreldrar eru meðvitaðir um að
börnin þeirra þurfi að læra að skapa
tækni en séu ekki bara neytendur í
tæknimálum. Allt okkar umhverfi
byggir á tækni. Ef maður hefur ekki
skilning á tækninni situr maður
eftir. Ég spyr stundum hvernig
samfélagið væri ef við kenndum
börnunum ekki að skrifa fyrr en
þau væru orðin 15 ára. Það verður
að hefjast handa fyrr. Krakkar sem
læra forritun læra um leið gagnrýna
hugsun, sem er mikilvægt þegar
kemur t.d. að samfélagsmiðlum og
því mikla upplýsingaflæði sem er
alls staðar.“
40 mismunandi námskeið
Í sumar verður hægt að velja
um meira en 40 mismunandi
námskeið í sumarháskóla Skema
í HR og dagskráin hefur aldr-
ei verið jafn fjölbreytt. „Valið
stendur m.a. um forritun, grafík,
myndabandagerð og tölvuleikja-
forritun eins og hún er notuð af
stórum tölvuleikjafyrirtækjum.
Við verðum líka með Mindcraft
námskeið. Fókusinn á þeim er
að nýta áhugasvið barnanna til
að miðla námsfróðleik til þeirra.
Við beinum athyglinni að lestri,
landafræði, rafrásum og efna-
fræði og svo nýtum við tölvuleik-
inn til að efla teymisvinnu, góð
samskipti, almenna tölvuum-
gengni og internet-umgengni. Í
sumar leggjum við svo sérstaka
áherslu á að ná til stelpna,“ upp-
lýsir Rakel.
„Allt sem við gerum byggir á
rannsóknum á kennslufræði,
sálfræði og tæknifræði og við
leggjum áherslu á að mæta
þörfum allra barna,“ bætir hún
við.
Þegar krakkar koma á nám-
skeið hjá Skema eru þau í raun
að taka sín fyrstu skref inn í
háskólasamfélagið því um ára-
mótin tók Háskólinn í Reykjavík
við verkefnum Skema og öll starf-
semin er í húsnæði HR.
Eins og að læra nýtt
tungumál
„Það er ótrúlega gaman að kenna
börnum að forrita og sýna þeim
hvað tæknin er skemmtileg. Við
höfum verið með tíu ára krakka á
námskeiðum sem hafa svo mikla
tölvufærni að þau eru vel hæf
til að fara á vinnumarkaðinn að
skrifa kóða. Þetta er eins og að
læra nýtt tungumál. Þeim mun
yngri sem þau byrja að læra, þeim
mun betra er fyrir þau að tileinka
sér nýja þekkingu,“ segir Rakel.
Hér á landi er skortur á tækni-
menntuðu fólki, líkt og alls staðar
í heiminum. „Sem betur fer hafa
fáeinir grunnskólar stigið það
skref að kenna forritun en þeir
mættu vera enn fleiri. Við erum
líka með námskeið fyrir kennara
sem eru að kenna börnum að
forrita. Þannig styður Skema við
menntakerfið og stuðlar að inn-
leiðingu tækni almennt,“ segir
Rakel.
Nánar upplýsingar og skráning á
námskeið er á heimasíðunni www.
skema.is eða í síma 599-6627.
Tölvuþekking er framtíðin
Í sumar mun Skema halda fjölmörg tækni- og forritunarnámskeið fyrir börn á aldrinum 4-16 ára í
sumarháskóla Skema í HR. Rakel Sölvadóttir verkefnisstjóri segir forritun verða hið nýja læsi.
KYNNINGARBLAÐ 11 L AU G A R DAG U R 1 3 . m a Í 2 0 1 7
1
3
-0
5
-2
0
1
7
0
3
:5
6
F
B
1
2
8
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
D
9
-9
1
C
4
1
C
D
9
-9
0
8
8
1
C
D
9
-8
F
4
C
1
C
D
9
-8
E
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
8
s
_
1
2
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K