Ráðunautafundur - 12.02.1979, Blaðsíða 11
91
meö framleiðslu fiskafóöurs, og var komið á fdt tilraunaverk-
smiðju í þessu skyni. Frá því 1972 hefur þessi verksmiðja verið
til húsa á landi Tungulax stöðvarinnar í ölfusi. Fóðrunartil-
raunir með fóður frá þessari tilraunaverksmiðju hafa verið
framkvæmdar nokkrum sinnum í Kollafjarðarstöðinni undir yfirum-
sjá Jónasar Bjarnasonar. Niðurstaðna þessara tilrauna mun hafa
verið að litlu getið í fjölmiðlum, og er grunur minn sá, að þær
sáu að ófyrirsynju fallnar um of í gleymsku. Eg hefi séð hjá
dr. Jónasi bráðabirgðatölur frá niðurstöðum tveggja tilraunahópa,
og ég átti þess kost að skoða síðustu tilraunina, sem framkvæmd
var 1977. Mér virtust niðurstöðurnar ótrúlega hagstæðar'Og mun
því fara um þær fáum orðum.
1 sumum flokkum þessara tilrauna komu fram vandkvæði:
Laxaseiði urðu blind og óðlileg í vaxtarlagi, þau urðu stutt
og kubbsleg. 1 öðrum tilraunaflokkum varð slíkra einkenna ekki
vart. En það sem mest var um vert var, að £ þessum heilbrigðu
flokkum reyndist vaxtarhraði seiðanna á innlendu fóðri miklu
meiri en fyrir þann flokk sem alinn var á EWOS fóðri, sem er
víðfræg vara, framleidd í Svíþjóð. Blinda og kubbslegur vöxtur
voru þekkt fyrirbæri í erlendum laxeldisstöðum á þessu tímabili,
og var vitað á þessu stigi málsins, m.a. af rannsóknum sem gerðar
höfðu verið í Tunison tilraunastöðinni í Bandarxkjunum, að
óhagstæð steinefnahlutfoll í hvítfiskimjöli, þ.e. mjöli af
þorski, ýsu og öðrum hvítfisku, væru völd af nefndum vandkvæðum.
1 síðustu fóðrunartilrauninni í Kollafirði, sem hófst vorið
1977, var blandað í suma fóðurflokkana efnum, sem ætla mátti
að gætu ráðið bót á nefndum vandkvæðum. Sú varð raunin, að
þessar íblandanir höfðu tilætluð áhrif. Laxaseiðin urðu ekki
aðeins heilbrigð og falleg í útliti. Vaxtarhraði þeirra varð
talsvert meiri en seiðaflokksins sem alinn var á EWOS fóðri.
1 júní 1978 birti Dr. Rumsey, forstöðumaður Tunison tilrauna-
stöðvarinnar sem fyrr var getið, grein þar sem frá er skýrt,
að skortur á zínki sé valdur að fyrrgreindri blindu og hugsan-
lega einnig að óeðlilegum vexti laxaseiðanna. íblöndun lítils
magns af zínksalti leysir vandann, a.m.k. að því er tekur til
blindunnar. Ástæðuna fyrir hinum miklu yfirburðum hins
íslenska fóðurs fram yfir EWOS fóður, telur Jónas fyrst og
fremst þá, að gæði þess fiskimjöls er hann notaði í fóðurblönd-