Ráðunautafundur - 12.02.1979, Side 13
93
næri'ngar laxfiska. Þar kemur m.a. fram, aÖ þessi alidýr eru
ákaflega virk aö því er varöar umbreytingu á eggjahvítfóöri í
eggjahvítu eigin holds. Samkvæmt tölum sem gefnar eru upp í
handritinu er regnbogasilungur aö þessu leyti um 2,5 sinnum
virkari en kjúklingur, um 6 sinnum virkari en svín og um 17
sinnum virkari en holdanaut. Nytháar mjólkurkýr eru mjög virkir
umbreytendur fóéurs x mjólkureggjahvítu, en þó er regnboga-
silungurinn tvisvar sinnum virkari í þessu efni. Þaö myndi of
langt mál aö fjalla hér um skýringar á þessum næringarfræöilega
mismun, en ein helsta ástæöan er sú, að þaÖ kostar silunginn
miklu minni orku aö losa líkamann viö úrgangs eggjahvxtusambönd.
Hann losar sig viö megin hluta þeirra sem ammoníak gegn um
tálknin, en það er talsvert orkufrekara aö losna við þau sem
þvagefni eöa þvagsýru, eins og dýr meö heitu blóöi gera.
Þaö er kunnara en frá þurfi aö segja, aö lax sem gengur í
íslenskar ár er mjög misstór. Fiskur sem dvalist hefur eitt
ár í sjó getur veriö allt frá 3 og upp í 12 pund. Einhvers
staðar hefi ég séö á prenti, aö 2ja ára hængur í sjó, sem
veiddist í Laxá í Aöaldal, hafi vegiö 24 pund, en mér er
ókunnugt um hve smáir 2ja ára laxar í sjó geta veriö. Það er
því bersýnilega auðvelt aö fá fram meö kerfisbundnu úrvali laxa-
stofna sem vaxa misjafnlega ört, bæöi fisk sem dvelst eitt ár
í sjó eöa samfellt í tvö ár. Enda hefur miklum og mikilvægum
árangri veriö náö á þessu sviði. Kemur þá fyrst fram í huga
manns hiö merka brautryöjendastarf prófessor Lauren R. Donald-
son viö ríkisháskólann í Seattle í Bandaríkjunum. Mætti margt
til tína frá hans starfi í þessu sambandi, en hér skal aðeins
getið eins atriðis. Frá árinu 1944 til ársins 1973 jók hann
hámarksfjöld hrogna í regnbogasilungi frá 200 hrognum £
rúmlega 27.000 hrogn. Norömenn hafa nýlega tekiö upp kerfis-
bundnar laxakynbætur, og lætur árangurinn ekki á sér standa.
í tímariti þeirra, Norsk Fiskeoppdrett, birtust á s.l. ári
tvær stuttar greinar í þessu sambandi. Önnur skýrir frá
190-daga sambærilegum vexti laxaseiða í eldisstöð. Lélegasti
seiðahópurinn, en þeir voru 11 talsins, náði 3 g meðalþyngd,
en besti hópurinn 14 g meöalþyngd á 190 dögum. I annarri
samanburðartilraun náði lélegasti hópurinn um 4 g meðalþyngd,