Ráðunautafundur - 12.02.1979, Page 20
100
% endurheimtur laxgönguseiða
1961 1962 1963 Meðaltöl
Náttúrleg laxgönguseiði 22,0 19,5 23,8 21,8
Meðalh. seiða frá 20 eldisst. 17,0 11,0 13,5 13,8
Bestu heimtur seiða f.þessum st. 21,0 15,5 22,8 19,8
Lélegustu heimtur frá þessum st. 14,0 7,0 8,0 9,7
Við sjáum af töflunni, að meðalheimtur eldisseiða frá 20
atvinnueldisstöðvum £ þrjú ár reyndust tæp 14% miðað við tæp
22% fyrir náttúrleg seiði, eða rúm 63% af náttúrlegum seiða-
endurheimtum. Á fundi s.l. vetur, þar sem Arni Isaksson skýrði
frá tilraunum í Kollafirði, svaraði hann því aðspurður, að
hann áliti að endurheimtur eldisseiða ættu að geta verið 15%.
I bandarísku fiskeldisriti frá september s.l. er frá því greint
að á fundi í Alaska hafi dr. Donaldson veitt þær upplýsingar,
að endurheimtur eldisseiða á Islandi væru 17%. Hefur hann
naumast fengið slíkar upplýsingar annars staðar en frá fyrr-
verandi lærisveinum sínum á Veiðimálastofnuninni. Það er á
grundvelli þeirra tölulegu upplýsinga frá Svíþjóð og þess álits
Veiðimálastofnunarinnar er ég hefi drepið hér á, að ég tel
varlegt að reikna með 12% endurheimtum eldisseiða, eins og ég
gerði hér að framan. Upplýsingar og reynsla varðandi rétta
meðferð og undirbúning eldisseiða fyrir sleppingu hefur aukist
frá árinu 1963, og má því ætla að gera mætti nú betur en
athuganir dr. Carlin bentu til. Og mér hefur verið tjáð að í
vissum tilvikum nái vísindamenn á Vesturströnd N-Ameríku nú
betri endurheimtum með eldisseiðum en með náttúrlegum seiðum.
En á það verður víst aldrei lögð of rík áhersla, að þetta er
vandasamur iðnaður, og skiptir öllu að undirbúningur og með-'
ferð eldisseiða fyrir sleppingu sé í samrærai við bestu að-
gengilega þekkingu hverju sinni. Því miður virðist aðstaða
eða vinnubrögð, nema hvortveggja sé, við Kollafjarðarstöðina
hafa verið léleg, alla tíð, að því er varðar endurheimtur göngu
seiða. Meðalheimtur þar munu um eða undir 5%, og verða því að
skoðast lélegar í ljósi hinna háu endurheimta náttúrlega göngu-
seiða í íslenskar ár. Þessa ályktun undirstrika starfsmenn
stofnunarinnar með því að áætla eðlilegar endurheimtur eldis-
seiða um þrisvar sinnum hærri, eða 15-17%. Sem betur fer, munu