Fréttablaðið - 24.05.2017, Page 14

Fréttablaðið - 24.05.2017, Page 14
Fótbolti Tímabilið er undir hjá Manchester United í úrslitaleik Evr- ópudeildarinnar í kvöld. José Mour- inho, knattspyrnustjóri United, setti öll eggin sín í Evrópudeildarkörfuna og treystir á að liðið komist inn í Meistaradeild Evrópu með því að vinna Evrópudeildina. United gaf ensku úrvalsdeildina nánast upp á bátinn þegar nokkrar umferðir voru eftir og sigur í Evrópudeildinni var forgangsatriði hjá Mourinho. Að lenda í 6. sæti ensku úrvals- deildarinnar eru mikil vonbrigði fyrir United en liðið var aldrei í titilbaráttu í vetur. Sigur í Evrópu- deildinni, og þ.a.l. sæti í Meistara- deildinni, myndi þó gera þetta fyrsta tímabil Mourinhos við stjórn- völinn á Old Trafford viðunandi. Evrópudeildin er eina Evrópu- keppnin sem United á eftir að vinna. Liðið hefur unnið Meistara- deildina í þrígang og vann hina sálugu Evrópukeppni bikarhafa einu sinni. Aðeins fjögur félög hafa unnið allar þrjár Evrópukeppnirnar: Juventus, Bayern München, Chelsea og Ajax, mótherjar United í kvöld. Tuttugu og tvö ár eru síðan Ajax varð Evrópumeistari síðast. Hol- lenska liðið vann Meistaradeildina árið 1995 og var hársbreidd frá því að verja titilinn árið eftir. Á þeim tíma var Ajax-liðið skipað ungum og efnilegum leikmönnum á borð við Clarence Seedorf, Edgar Davids, Marc Overmars og Patrick Kluivert sem skoraði sigurmarkið í úrslita- leik Ajax og AC Milan fyrir 22 árum. Sonur þess síðastnefnda, Justin Kluivert, fetaði í fótspor föður síns og hefur komið talsvert við sögu hjá Ajax í vetur. Hann er einn fjöl- margra ungra og spennandi leik- manna í Ajax. Líkt og um miðjan 10. áratug síðustu aldar er liðið skipað ungum og efnilegum leikmönnum en meðalaldurinn í leikmannahópi Ajax er í kringum tvítugt. Til marks um það hversu ungt Ajax-liðið er, þá verður væntanlega bara einn leik- maður (Lasse Schöne) eldri en 25 ára í byrjunarliðinu í kvöld. Varnarmenn United verða að hafa góðar gætur á Kasper Dolberg, 19 ára gömlum dönskum fram- herja, sem hefur skorað sex mörk í Evrópudeildinni í vetur. Annar 19 ára strákur, Marcus Rashford, leiðir framlínu United og hefur gert það undanfarnar vikur eftir að Zlatan Ibrahimovic sleit krossband í hné. ingvithor@365.is Tímabilið undir hjá Man. Utd Manchester United og Ajax mætast í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á Friends Arena í Stokkhólmi í kvöld. Sigurliðið fær að launum sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Ajax teflir fram ungu og efnilegu liði. Leikmenn Manchester United fagna marki Marcus Rashford í fyrri undanúrslitaleiknum gegn Celta Vigo í Evrópudeildinni. noRdiCphotos/gEtty Fótbolti Stjarnan og Valur eru í tveimur efstu sætum Pepsi-deildar- innar eftir fjórar umferðir. Bæði hafa unnið þrjá leiki og hafa enn ekki tapað leik í sumar. Stjörnumenn þekkja það vel að byrja mótið vel undir stjórn Rúnars Páls Sigmundssonar en þetta er hins vegar langbesta byrjun Ólafs Jóhannessonar með Valsliðið. Valur hefur unnið fleiri leiki í fyrstu fjórum umferðunum í ár (3) en samanlagt í fyrstu fjórum umferðunum á tveimur fyrstu tíma- bilum Ólafs með liðið (2). Valsmenn eru þannig sex sætum ofar í dag en þeir voru á sama tíma fyrir ári síðan. Stjarnan er fjórða árið í röð í öðru af tveimur efstu sætunum eftir fjórar umferðir en Valsmenn hafa ekki verið þar í áratug á þessum tíma. Sumarið 2007, síðasta tímabil Vals- manna inn á topp tvö eftir fjórar umferðir, var einmitt síðasta sum- arið sem Hlíðarendapiltar unnu Íslandsmeistaratitilinn. Valsliðið í ár er þó að byrja betur en liðið sem vann titilinn fyrir tíu árum. Valsliðið 2007 vann „bara“ tvo af fyrstu fjórum leikjum sínum og var því með tveimur stigum minna en Valsliðið í ár. Valsliðið 2017 hefur enn fremur skorað fjór- um mörkum meira í fyrstu fjórum leikjum sínum en meistaraliðið frá 2007. Árið 1987 vann Valur einnig titilinn og þá var liðið með jafnmörg stig eftir fjóra leiki og nú. Stjörnumenn hafa unnið 11 af 16 leikjum og aldrei tapað í fyrstu fjórum umferðunum 2014-2017 en næsti hluti mótsins hefur aftur á móti reynst Stjörnumönnum skeinuhættur undanfarin sumur. Liðið hefur þannig ekki náð að fagna sigri í umferðum fimm til sjö síðustu tvö sumur (2 jafntefli, 4 töp). Nú reynir því á Rúnar Pál og félaga að breyta þeirri hefð. Valsliðið er þegar búið að spila við bæði FH (1-1 jafntefli) og KR (2-1 sigur) á meðan að næstu tveir leikir Garðbæinganna eru á móti FH-bön- unum í Fjölni og svo á móti FH. Næstu leikir Valsmanna gætu líka verið sýnd veiði en ekki gefin því þeir eru á móti liðum Fjölnis og ÍBV sem hafa bæði komið á óvart. Það þarf að fara tólf ár aftur í tímann til að finna betri byrjun hjá Valsliðinu en sumarið 2005 háði liðið harða baráttu um titilinn við FH. Þá dugði ekki Val að vinna fimm fyrstu leiki sumarsins því Ólafur Jóhannesson stýrði FH-liðinu þá til sigurs í fimmtán fyrstu leikjunum en þá var Íslandsmeistaratitilinn tryggður með sigri á Val. – óój Betri byrjun hjá Valsmönnum en þegar þeir urðu síðast meistarar Sigurleikir Valsmanna í fyrstu fjórum umferðunum 2007 - 2 (0 töp) 2. sæti e. 4. leiki 2008 - 2 (2) 5. sæti 2009 - 1 (2) 9. sæti 2010 - 1 (1) 8. sæti 2011 - 2 (2) 6. sæti 2012 - 2 (2) 5. sæti 2013 - 2 (0) 3. sæti 2014 - 2 (1) 5. sæti 2015 - 1 (2) 8. sæti 2017 - 3 (0) 2. sæti 4 Evróputitlar Manchester United liðsins frá upphafi í keppni meistaraliða (þrír) og bikarhafa (einn). 2 4 . m a í 2 0 1 7 m i Ð V i K U D a G U R14 S p o R t ∙ F R É t t a b l a Ð i Ð sport FyRSTA ÞRENNA GRINDVÍK- INGS Í TæP FJÓRTÁN ÁR Andri Rúnar Bjarnason skoraði öll þrjú mörk Grindvíkinga í 3-2 sigri á ÍA á Akranesi á mánudags- kvöldið en nýliðarnir urðu þar með fyrsta liðið í deildinni til að vinna tvo útileiki í sumar. Andri Rúnar hefur heldur betur átt þátt í þeim því hann skoraði sigurmark í uppbótartíma í fyrri útisigrinum sem var á móti Víkingi í Víkinni. Andri Rúnar varð í fyrrakvöld fyrsti Grindvíkingurinn til að skora þrennu í efstu deild í tæp fjórtán ár eða síðan að Sinisa Kekic náði því í 3-2 sigri á móti Fram 30. maí 2003. Síðastur á undan Andra til að skora þrennu á útivelli fyrir Grinda- vík var hins vegar Grétar Hjartarson í 5-1 sigri á Þór á Akureyri í septem- ber 2002. 18.45 Ajax - Man. United Sport 19.05 Fylkir - haukar Sport 2 20.45 Evrópudeildarmörkin Sport 19.15 Breiðablik - KR Kópavogsv. 19.15 Fylkir - haukar Fylkisvöllur Í dag DREGIð HJÁ STELPUNUM Í DAG Í gærkvöldi tryggðu síðustu liðin sér sæti í sextán liða úrslitum Borgunarbikars kvenna í fótbolta en í hádeginu verður síðan dregið. Pepsi-deildarliðin tíu koma nú inn í keppnina. Það var mikil spenna í leikjum gærkvöldsins og tveir leikir fóru í framlengingu. Tindastóll, Sindri, HK/Víkingur og Selfoss voru komin áfram þegar Fréttablaðið fór í prentun. æTLA EKKI Að SELJA GyLFA Gylfi Þór Sigurðsson er áberandi í slúðurfréttum ensku fjölmiðlanna þessa dagana eftir frábært tímabil þar sem 9 mörk og 13 stoð- sendingar hans sáu öðru fremur um að Swansea hélt sæti sínu í ensku úrvalsdeildinni. Gylfi hefur verið orðaður stíft við bæði Everton og Tottenham og í gær kom fram frétt um að Swansea hefði samþykkt tilboð frá Everton. Forráðamenn velska liðsins voru fljótir að vísa þeirri frétt til föðurhúsanna og segjast ekki ætla að selja Gylfa í sumar en íslenski landsliðsmaður- inn er með samning til 2020. 2 4 -0 5 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C E C -E B 5 0 1 C E C -E A 1 4 1 C E C -E 8 D 8 1 C E C -E 7 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.