Fréttablaðið - 24.05.2017, Blaðsíða 32
Markaðurinn
@stjornarmadur
Stjórnar-
maðurinn
Miðvikudagur 24. maí 2017fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál |
Viðskiptavefur Vísis
@VisirVidskiptiwww.visir.is
Ef þú ert í miðju góðæri en
þrjár stærstu greinarnar,
sjávarútvegur, ferðaþjónusta og iðn-
aður, eru í mjög erfiðu árferði, hver er
þá undirstaða góðærisins? Ég hef rætt
svikalogn í þessu samhengi.
Halldór Benjamín Þorbergsson,
framkvæmdastjóri Samtaka atvinnu-
lífsins (SA).
23.5.2017
Innkoma Costco á íslenskan markað
hefur vakið mikla athygli. Eins og
Íslendingum er einum lagið virðist
eiga að slá einhvers konar heimsmet.
Að minnsta kosti getur varla verið
algengt að björgunarsveitir (eða sam
bærilegar sveitir í öðrum löndum)
þurfi að standa vörð til að koma í veg
fyrir að ágengir neytendur gangi ber
serksgang. Forsvarsmenn Costco hafa
enda látið hafa eftir sér að þeir hafi
aldrei orðið vitni að öðru eins.
Í tengslum við komu Costco hefur
líka skapast umræða um verðlag á
Íslandi. Margir hafa orðið til þess að
gagnrýna það sem þeir kalla okur
starfsemi hjá íslenskum kaupmönn
um. Vonir þeirra standa til að Costco
leiðrétti þetta mikla óréttlæti.
Vissulega er verðlag hátt hér á landi.
Fyrir því eru hins vegar nokkrar
ástæður. Sú fyrsta er náttúrulega
mannfæðin. Ísland er örmarkaður
og erfiðara en annars staðar að ná
stærðarhagkvæmni að neinu ráði.
Önnur ástæða er staðsetning lands
ins, flutningskostnaður er hár. Því
má svo bæta við að Ísland er eyja og
auðveldara en víða annars staðar að
reisa tollmúra, leggja á hin ýmsu gjöld
og sjá til þess að allir greiði sitt. Síðast
nefnda atriðið hefur þó horft mjög til
bóta undir þessari ríkisstjórn.
Íslendingum hættir hins vegar til þess
að barma sér yfir hlutunum án þess
að velta fyrir sér rót vandans. Þegar
kemur að verðlagi er krónan, eins og
svo oft áður, fíllinn í herberginu.
Það er nefnilega ekki svo að íslenskir
kaupmenn okri meira en kollegar
þeirra í öðrum löndum. Þeir búa hins
vegar við gjaldmiðil sem sveiflast eins
og pendúllinn og gerir þeim nánast
ómögulegt að gera plön til lengri tíma.
Sennilega er rétt að íslenskir kaup
menn eru ekki gjarnir til að lækka
verð í krónum talið, en eru hins vegar
fljótir að velta kostnaði út í verðlagið
ef svo ber undir.
Þar eru þeir nákvæmlega eins og
kaupmenn alls staðar að í heiminum.
Á H&M til dæmis að miða verð í
verslun sinni á Íslandi við gengi
krónunnar akkúrat núna – eða er
ekki hyggilegra að horfa til meðal
gengis yfir lengra tímabil?
Staðreyndin er nefnilega sú að
íslenskir kaupmenn lifa í umhverfi
þar sem kostnaður getur hækkað eða
lækkað um þriðjung á einu ári án þess
að það sé sérstakt tiltökumál. Eilífur
samanburður við verð í erlendum
verslunum í erlendri mynt er því ekki
alveg sanngjarn.
Íslenskir kaupmenn, eins og lands
menn allir, líða fyrir okkar furðulega
gjaldmiðil. Sá er kjarni málsins.
kjarninn
og hismið
Verslunarfyrirtækið Festi hf. á samkvæmt
heimildum Markaðarins í viðræðum um
innflutning á Nespresso kaffihylkjum.
Einnig skoðar fyrirtækið opnun
verslunar sem myndi eingöngu selja
hylkin sem eru nokkuð eftirsótt hér
á landi.
Jón Björnsson, forstjóri Festar,
vildi ekki tjá sig um viðræð-
urnar eða hvort fyrirtækið væri
búið að tryggja sér umboðið á
hylkjunum. Nespresso kaffivélar hafa verið
fáanlegar hér á landi um árabil en hylkin
einungis á vefsíðu svissneska fyrirtækisins
eða í erlendum sérverslunum. Erlendis er
kaffið selt í verslunum sem er oft líkt við
skartgripabúðir þar sem mikið er gert úr
íburði. Kaffihylki sem seld eru í
Nespresso vélar hér á landi koma
aftur á móti frá öðrum framleið-
endum. Hylkin hafa aftur á móti
verið seld í verslunum. – hg
Festi vill nespresso hylkin
Jón Björnsson
ÁSKRIFENDUR SPORTPAKKANS EIGA NÚ MÖGULEIKA Á ÞVÍ AÐ FARA
FRÍTT Á VÖLLINN!
VINNUR ÞÚ MIÐA Á LEIKINN?
Í ALLT SUMAR MUNUM VIÐ DRAGA ÚT HEPPNA ÁSKRIFENDUR
SEM FÁ MIÐA Á LEIK Í PEPSI DEILD KARLA.
BESTA SÆTIÐ 365.ISSÍMI 1817
Tryggðu þér
áskrift á aðeins
399 kr. á dag
11.990 kr. á mánuð
i
*
*m
ið
að
v
ið
1
2
m
án
að
a
bi
nd
in
gu
2
4
-0
5
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
E
D
-0
D
E
0
1
C
E
D
-0
C
A
4
1
C
E
D
-0
B
6
8
1
C
E
D
-0
A
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
8
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
7
C
M
Y
K