Ráðunautafundur - 15.02.1987, Page 120
-112-
heysins er verulegur eins og sjá má, en hitt er svo annað mál
hvað æskilegt er að saxa heyið mikið. Það er margslungin
spurning,sem ekki verður tekin afstaða til hér.
fl fköst við hirðingu með þessum tveimur aðferðum eru mjög
breytileg eftir aðstæðum t.d. vélastærðum og fjölda, uppskeru-
magni, flutningavegalengdum og aðstöðu og tækni við fyllingu
í geymslu. ' Ekki eru tök á að fjalla itarlega um það á þessum
vettvangi en þó skulu nefndar nokkrar viðmiðunartölur. Miðað
við að hirða 1 flatgryfju eru afköstin í báðum tilvikum um 2
tonn af þurrefni á klst, en er þá notaður einn saxari og tveir
flutningavagnar eða einn fjölhnífavagn.
Vinnuþörfin við hirðingu er einnig mjög breytileg eftir
aðstæðum eins og afköstin, en miðað við áðurnefndar aðstæður
er hún á bilinu 3-4 m-klst á hektara miðað við uppskerumagn
er svarar 4 tonnum þurrefni á hektara.
Tækjakostnaður við þessar tvær aðferðir er ólíkur að því
leyti, að múgsaxarinn er sérhæft tæki sem nýtist ekki í annan
heyskap, en flutningavagnarnir eru hinsvegar alhliða og koma
því að notum við önnur bústörf. Fjölhnífavagninn notast bæði
við þurrheyskap og votheyskap en sem flutningatæki ekki nema
að takmörkuðu leyti til annarra verka. Ætla má að stofn-
kostnaður í báðum tilvikum sé svipaður þegar ekki er tekið
tillit til dráttarvélanna.
V. Ahrif meðhöndlunar á eóliseiginleika heysins
Allmikil þekking er nú fyrir hendi varðandi hvernig hin
ýmsu tæki saxa og merja heyið við slátt og hirðingu. Með
hinum ólíku aðferðum má hafa stjórnun á rakastigi heysins við
hirðingu að því marki er veðurfar leyfir. Áhrif heyskapar-
aðferða é eiginleika heysins eru 1 stórum dráttum tvíþætt. Að
öðrum hluta eru það áhrif söxunarinnar og að hinum áhrif
forþurrkunarinnar.
Söxun heysins eykur meðfærileika þess hvort sem um er að
ræða vélbúnað eða handverkfæri. Til að unnt sé að nota snigla
eða hjól við losun má stubblengdin ekki vera meiri en 5 cm, en
við vélræn fóðrunarkerfi má lengdin ekki fara yfir 2 cm.
Við hirðingu breytist rúmþyngd í vögnum eftir söxun. Sem
dæmimá nefna að vjð 3 mm söxun (fræðilega) er rúmþyng^in 70-
80 kg þurrefni í m, en við 30 mm söxun 40-60 kg þ.e./m .
I fullsiginni heystæðu hefur söxun lítil áhrif á rúm-
þyngdina en við hirðingu er rúmþyngdin í heygeymslum mjög háð
söxuninni. Þannig má reikna með að aðeins 60% af rými hey-
geymslunnar nýtist við fyrstu hirðingu ef heyið er ekki smækk-
að en um 8 0% ef það er fínsaxað. Mikil söxun hefur auk þess
þau áhrif að plöntusafinn er strax aðgengilegur til gerjunar
og flýtir fyrir því að æskileg gerjun hefjist.
Forþurrkun minnkar vökvaspennuna í frumum plantnanna og
heyið fellur því betur saman. Þannig má almennt gera ráð
fyrir að rúmþyngdin, mæld í þurrefni, sé meiri bæði við hey-
flutninga og í geymslu eftir því sem forþurrkunin er aukin.