Svava - 01.09.1902, Blaðsíða 16
1.18
SYAVA
Vj 3V
ágúst. Lengi v,el sigldu þeii' eftir því og gBrðu sér von
um, að sigur mundi krýna ferð þeirra; en von sú bráet.
þeir höfðu siglt um 30 mílur, þegar þeir urðu frá að
hverfa vegna óviðráðanlegra tálmana. Tíðarfar fór nú að
vesna, svo John Ross skipaði að snúa við og halda heim
á leið, og í októbermánuði komu þeir til Englands.
Þar sem að þeim John Ross og Parry liafði ekki
tekist að finna norðvesturleiðina, fóru margir að hallast
á skoðun Baffins,að ómögulegt mundi að sigla fyrir norðan
Ameríku í gegn um Lancastersundið. En Parry var ekki
því sammála; hann áleit, að þoir félagar eins og fyrir-
rennarar, þeirra,hefðu snúið of fljótt við. Eftir að stjórnih
hafði látið rannsaka ástæður Ross, fyrir að’’ hverfa aftur
svo fljótt, veitti hún Parry. umböð til að hefja nýjan rann-
sóknar-leiðaugur.
Það var í máímánuði 1819,. að Parry hólt á stað á
tveim skipUm. Yistaforða hafði hann nógan fyrir tvö
ár, og að öllu leyti var hann vel úthúinn til ferðarinnar.
Svo var fyrirParry lagt, aðhann skyldi nákvœmlega.rann-
saka Lancaster-sund, og ef ómögulegt yrði fyrir hanu að
komast alla leið vestur eftir því, skyldi hann reyna að
finna aðra leið. Eftir mikla erfiðleika komst hann loks
til Lanpaster-sunds, seint í.júlímánuði; fjórum vikum fyr,