Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Blaðsíða 19
Helgarblað 11.–14. mars 2016 Umræða Stjórnmál 19
Innflutningur
lifandi dýra
Píratar vilja jafnframt auka frelsi þegar
kemur að innflutningi dýra. Því vilja
Píratar að tekin verði upp gæludýra-
vegabréf og dýr sem koma inn í landið,
sér í lagi blindrahundar, séu heilbrigð-
isskoðuð fyrir komu í stað þess að fara í
einangrun.
Varnarmál
Píratar hafna hernaðaruppbyggingu í
Norður-Atlantshafi og Íshafinu. Þeir vilja
hins vegar stóraukna samvinnu með
nágrannaþjóðum varðandi eftirlit með
landhelgi, lofthelgi og efnahagslögsögu,
sem og björgunarstörf á höfunum. Þeir
vilja endurvekja Varnarmálastofnun til að
halda borgaralegri löggæslu og varnar-
málum aðskildum. Þá vilja Píratar fella
Landhelgisgæsluna undir Varnarmála-
stofnun. Ekki kemur fram hver afstaða
Pírata til veru Íslands í NATO er.
Velferðar- og félagsmál
Píratar vilja lögfesta lág-
marksframfærsluviðmið.
Raunar hafa Píratar rætt
allnokkuð um svokölluð
borgaralaun en ekki hafa
verið greidd atkvæði um
slíkt í kosningakerfi þeirra.
Píratar vilja að bótakerfi
verði einfölduð, það er
atvinnuleysisbætur, örorku-
bætur og önnur bótakerfi.
Þá á að afnema skilyrði til
lífeyrisbóta, búsetuskilyrði,
tekjuskerðingu, auk annars.
Húsnæðismál
Píratar leggja áherslu á að allir hafi að-
gang að íbúðarhúsnæði í takt við fjárhag,
heilsufar og fjölskyldustærð. Þá vilja þeir
bæta aðstæður á almennum leigu-
markaði og koma húsnæði sem stendur
autt í leigu. Hækka á húsaleigubætur að
mati Pírata.
Heilbrigðismál
Píratar leggja áherslu á að allir hópar
sjúklinga hafi aðgang að heilbrigðisþjón-
ustu. Hlúa þurfi enn betur að fötluðum,
geðfötluðum og fíklum en nú er gert. Efla
þarf núverandi þjónustu og auka hana.
Tryggja á sjúkrahúsum með lögum kaup
á eins góðum búnaði og völ er á. Þá á að
lögfesta lágmarksstarfsmannafjölda á
spítölum.
Evrópusambandið
Píratar taka ekki afstöðu til þess hvort Ísland eigi að ganga í Evrópusambandið (ESB)
eða ekki en leggja áherslu á að Ísland megi aldrei gerast aðili að sambandinu nema að
undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram skuli fara eftir að aðildarsamningur
hefur verið kynntur þjóðinni með hlutlausum hætti. Gangi Ísland ekki í ESB vilja Píratar
að leitast verði við að endurskoða EES-samninginn með það að leiðarljósi að tryggja
betur sjálfsákvörðunarrétt Íslands.
Umhverfismál
Píratar vilja að gildum sjálfbærrar
þróunar verði haldið á lofti í umhverfis-
málum, þörfum samtímans sé mætt
án þess að dregið sé úr möguleikum
komandi kynslóða til að mæta sínum
þörfum. Sókn eftir efnislegum gæðum
verði því að haldast í hendur við vernd
umhverfisins. Stjórnvöld skuli byggja á
varúðarreglunni við allar ákvarðanir er
varði náttúru Íslands. Þá leggja Píratar
áherslu á að auðlindir í náttúru Íslands,
aðrar en þær sem eru í einkaeigu, séu
sameign þjóðarinnar og óheimilt sé að
selja þær, veðsetja eða láta í hendur
annarra til varanlegra afnota.
Menntamál
Píratar vilja menntakerfið taki mið af
svokallaðri finnskri leið. Í því felst aukið
jafnvægi milli bók-, list- og verkgreina.
Námsmat verði fjölbreyttara, heimanámi
stillt verulega í hóf, bekkir verði fámennari
og notkun á stöðluðum prófum endur-
skoðuð. Þá vilja Píratar að horft sé til þess
að hluta af námslánum verði breytt í styrki.
Málefni flóttafólks og hælisleitenda
Píratar vilja að hætt verði að misnota
Dyflinnarreglugerðina til að senda
hælisleitendur úr landi. Þá vilja Píratar að
verklag og reglur Útlendingastofnunar
verði endurskoðað, m.a. verði hætt að
senda flóttamenn úr landi meðan mál
þeirra eru rekin hér. Píratar vilja að flótta-
mönnum sem geta stundað atvinnu verði
veitt atvinnuleyfi. Þá eigi að endurskoða
reglur um heilbrigðisþjónustu svo ekki sé
bara veitt neyðarþjónusta þegar líf er í
bráðri hættu.
Trúmál
Píratar vilja að ríki og kirkja verði
aðskilin að fullu og staða allra trúar-
og lífsskoðunarfélaga verði jöfn fyrir
lögum og gagnvart ríkisvaldinu. Þá
beri að endurskoða samninga ríkisins
við þjóðkirkjuna um kirkjujarðir og
prestssetur.
Jafnréttismál
Píratar telja mikið verk óunnið á
sviði jafnréttismála. Berjast á gegn
mismunun einstaklinga, hvort sem er
á grundvelli kyns, kynhneigðar, aldurs,
trúarbragða, uppruna eða annarra
persónueinkenna. Leita á leiða til að
sporna við og uppræta staðalímyndir
og ranghugmyndir. Ofbeldi, andlegt eða
líkamlegt, skal aldrei líða. Þá skal unnið
að breytingum á kjarasamningum til að
tryggja launajafnrétti óháð kyni, m.a.
með því að afnema launaleynd.
Hagkerfið
Píratar vilja endurskipu-
leggja hagkerfið til að
tryggja stöðugleika.
Tryggja þurfi lágmarks-
afkomu hvers borgara.
Stefna á að því að efna-
hagurinn þjóni þörfum
samfélagsins og sérstak-
lega ber að hlúa að rekstri
sem byggir á lýðræðis-
legum starfsháttum.
Kynbundið ofbeldi
Píratar leggja áherslu á að kynfrelsi njóti fullrar og ótví-
ræðrar verndar fyrir lögum. Leggja á áherslu á fyrirbyggj-
andi aðgerðir, meðal annars með kynfræðslu í skólum, og
lögð verði áhersla á gagnkvæma virðingu og upplýst sam-
þykki. Auka á fjármagn til Neyðarmóttöku þolenda kyn-
ferðisofbeldis. Þá vilja Píratar að ákveðnar fjárupphæðir
verði eyrnamerktar til rannsókna á kynferðisbrotamálum
til að vega upp á móti lágum forgangi þeirra í kerfinu.
Tjáningarfrelsi
Vinna skal að því að
gera lagaumhverfi
hvað varðar vernd
tjáningar- og
upplýsingafrelsis á
Íslandi með því besta
sem þekkist. Setja skal heildstæð
lög um vernd afhjúpenda. Píratar
vilja fella úr lögum refsiréttar-
ákvæði um meiðyrði og færa slík
mál alfarið undir einkaréttarmál.
Stytting vinnuviku
Píratar vilja að vinnuvikan verði stytt úr
40 tímum í 35 tíma. Ekki verði heimilt að
lækka mánaðarkaup á móti slíkri breytingu.
Fylgjast á með áhrifum breytingarinnar á
hagkerfið og ákvörðun um frekari styttingu
vinnuvikunnar verði tekin að tveimur árum
liðnum.
Frjósemis-
aðgerðir
Píratar vilja að ríkið niðurgreiði
að fullu að minnsta kosti þrjár
tæknifrjóvgunar meðferðir fyrir pör
eða einstæðar konur sem á slíku þurfi
að halda, þar með talið lyfjakostnað.
Einnig skal greiða dagpeninga þurfi fólk
að sækja þjónustuna úr heimabyggð.
Óheimilt verði að neita einstaklingum
um meðferðir á grundvelli kynhneigðar,
kynvitundar eða annarra viðlíka þátta.
Fíkniefnamál
Píratar vilja afglæpavæða neyslu á fíkni-
efnum en á sama tíma fara í aðgerðir
til að draga úr eftirspurn. Þeir sem geti
notað fíkniefni á ábyrgan hátt eigi að fá
að gera það í friði en þeir sem ekki kunna
sér hóf eigi að fá hjálp við að koma undir
sig fótunum á ný.
Ýmis önnur mál
n Kosningaaldur verði lækkaður í 16 ár.
n Píratar vilja innleiða lyklalög svo lántakendur geti
skilað fasteign og verið lausir undan lánum.
n Leggja á Mannanafnanefnd niður og treysta foreldrum
til að velja nöfn á börn sín.
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár
05/2015
34,1 %
Fyrir ári
15,2 %
11/2014
8,1 %
05/2013
5,9 %
Í dag
35,9 %
Fylgi Pírata yfir allt landið frá 2013 til dagsins í dag