Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Blaðsíða 12
12 Fréttir Helgarblað 11.–14. mars 2016
5 5 2 - 6 0 6 0
H
efði umdeilt frumvarp
iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra um náttúrupassa
orðið að lögum og fyrir-
hugað gjald vegna hans
innheimt á síðasta ári hefðu allt að
1.000 til 1.600 milljóna króna skilað
sér til verndunar náttúru Íslands
og nauðsynlegrar uppbyggingar,
viðhalds og verndunar ferða-
mannastaða. Íslenska ríkið varð af
ríflega 4,3 milljónum króna hvern
dag í fyrra sem ekki var tekið gjald
af ferðamönnum líkt og kveðið var
á um að reynt yrði að gera í stefnu-
yfirlýsingu ríkisstjórnar Fram-
sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks.
Síðan Ragnheiður Elín Árna-
dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráð-
herra, mælti fyrir frumvarpi um
náttúrupassa á Alþingi í janúar 2015
hefur málið dagað uppi og ráðherra
sjálfur viðurkennt að það sé fullreynt
að hugmyndir um náttúrupassa
verði að lögum og ákveðið að leita
annarra leiða. Í frumvarpinu var
gert ráð fyrir að þeir erlendu ferða-
menn sem orðnir væru 18 ára þyrftu
að afla sér náttúrupassa til að heim-
sækja ferðamannastað sem ætti að-
ild að passanum gegn 1.500 króna
gjaldi. Átti passinn að gilda í þrjú ár.
500 krónur hefðu lagst á Íslendinga
á ári. Stóðu vonir til að náttúrupass-
inn myndi afla 3–5 milljarða króna á
þremur árum í tekjur, og áttu 85–90
prósent tekna að koma frá erlend-
um ferðamönnum.
Miðað við þessa upphæð má gera
ráð fyrir að náttúrupassinn hefði átt
að skila 1–1,6 milljarða króna tekj-
um á ári. Eða um 2,7–4,3 milljóna
króna á dag sem meðal annars hefði
verið varið í að takast á við mikinn
fjölda ferðamanna í náttúru Íslands.
Nú þegar þriðji mánuður ársins
2016 er hafinn og um þrír mánuðir
eru til sumars þar sem stefnir í enn
eitt metárið í fjölda ferðamanna til
Íslands, er gagnrýnt að lítið bóli enn
á þeim leiðum sem leita átti til að
leysa hinn sjálfdauða náttúrupassa
af hólmi. Allir sem DV hefur rætt við
eru sammála um að eitthvað þurfi
að gera, og burtséð frá hvað mönn-
um finnst um náttúrupassann, þá er
ljóst að þjóðfélagið verður af millj-
ónum króna á hverjum degi sem
líður og engar aðrar sambærilegar
eða betri leiðir eru innleiddar. DV
óskaði eftir viðtali við Ragnheiði
Elínu Árnadóttur vegna málsins en
án árangurs. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Náttúrupassi hefði skilað milljörðum en biðin eftir betri leið getur valdið óbætanlegu tjóni, segir þingmaður
„Þetta er eins
og leikhús
fáránleikans
K
arl Garðarsson, þingmaður Framsóknarflokks-
ins, sagði í pistli á Eyjunni á dögunum að það
stefndi í algjört öngþveiti á ferðamannastöð-
um og að athafnaleysið í málaflokknum myndi
að óbreyttu valda „óbætanlegu tjóni á náttúru lands-
ins, þar sem átroðningur og skipulagsleysi verður í
öndvegi.“ Þau tíðindi að Stjórnstöð ferðamála, sem
Ragnheiður Elín veitir formennsku, ætli að leggja
hundruð milljóna í að bæta öryggi á ferðamanna-
stöðum komi of seint að mati Karls. „Hlutur sem
hefði átt að vera búið að gera fyrir löngu. Því
miður þurfti dauðsföll til. En á sama tíma
hafa engar nýjar tillögur litið dagsins
ljós varðandi gjaldtöku á ferðamanna-
stöðum. Þetta er eins og leikhús fárán-
leikans.“
Karl hafði sömuleiðis látið hafa
eftir sér í viðtölum að hann velti fyrir
sér hvort Framsóknarflokkurinn þyrfti
að taka af skarið og leggja fram frum-
varp um málið, því það þoldi enga
bið. Í samtali við DV kveðst hann
standa við þau ummæli.
„Ég er enn þeirrar
skoðunar að það verði
að fara að taka á gjaldtökumálum varðandi ferða-
mannastaði, það er gríðarlega brýnt, og ríkisstjórn-
inni hefur ekki auðnast að leggja fram frumvarp í
þá veru á þessum þremur árum sem liðin eru og ég
tel það einboðið að við verðum að finna sáttaleið
sem yrði þá mjög líklega eins konar millivegur milli
komugjalda og gistináttaskatts. Ég hef trú á því að
það væri hægt að ná sátt um slíka leið.“
En bent hefur verið á að hugmyndir um komu-
gjöld kunni að stangast á við Schengen-samkomu-
lagið og séu því ófær leið. Karl segir menn ekki
sammála um það.
„Ég held að við gætum komist upp með
það með ákveðnum breytingum og far-
ið fram hjá þeim reglum. Menn segja
að þetta sé ekki eins lokað og ráðherra
vildi vera að láta.“
Karl segir að menn geti velt fyrir sér
hversu miklum tekjum þjóðfélagið verði
af með því að samþykkja ekki komugjöld.
Þó að þau væru ekki nema 100, 500
eða 1.000 krónur jafnvel. „Ég
sá útreikninga í þá veru
á dögunum og það eru
gígantískar upphæðir.“
Þingmaður Framsóknar skýtur á ráðherra samstarfsflokksins í ríkisstjórn
Óbætanlegt tjÓn
Verðum af milljónum
króna á hverjum degi