Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Side 6
6 Fréttir Helgarblað 11.–14. mars 2016 SJÓNMÆLINGAR LINSUR • GLERAUGU Skólavörðustígur 2 • 101 Reykjavík Sími: 511 2500 • www.gleraugad.is Lásu um milljónagreiðslu til 66°Norður í fjölmiðlum n Félag forstjóra Sjóklæðagerðarinnar dæmt til að greiða 86 milljónir króna E inkahlutafélag sem Helgi Rúnar Óskarsson, forstjóri 66°Norður, er í forsvari fyrir var í síðustu viku dæmt til að greiða sjóðastýringar­ fyrirtækinu Stefni, dótturfélagi Arion banka, 86 milljónir króna ásamt dráttarvöxtum. Héraðsdóm­ ur Reykjavíkur staðfesti þá að SÍA I, framtakssjóður í stýringu Stefnis, ætti rétt á viðbótargreiðslu vegna 327 milljóna króna leiðréttingar á gengistryggðum lánum fatafram­ leiðandans. Starfsmenn Stefnis fréttu af leiðréttingunni í fjölmiðlum rúmu ári eftir að félag Helga keypti SÍA I út úr eigendahópi 66°Norður. Greiddi 582 milljónir Ágreining Stefnis og einkahluta­ félagsins Hróss má rekja til kaupa samlagshlutafélagsins SF II á 51% hlut í 66°Norður (Sjóklæðagerðinni hf.) í júní 2011. Á þeim tíma átti SÍA I alls 74% hlut í SF II en Hrós hin 26%. Félögin tvö keyptu 51% í fataframleiðandanum af félaginu Egus Inc. sem var skráð á Tortóla á Bresku Jómfrúaeyjunum og í eigu Sigurjóns Sighvatssonar, fjárfestis og kvikmyndaframleiðanda. Helgi Rúnar hafði þá starfað sem for­ stjóri 66°Norður í fjóra mánuði. Á meðal sjóðfélaga SÍA I voru margir af stærstu lífeyrissjóðum landsins. Samkvæmt dómi héraðsdóms urðu erfiðleikar í samstarfi eigenda SF II til þess að Hrós keypti SÍA I út úr félaginu í mars 2012. Kaup­ verðið nam 582 milljónum króna en 66°Norður var á þeim tíma metið á 1,5 milljarða króna. Í kaupsamn­ ingnum var ákvæði um að verðið gæti hækkað kæmi til leiðréttinga á lánssamningum fataframleiðand­ ans. Færi svo ætti sjóður Stefnis rétt á viðbótargreiðslu sem næmi 37% af ávinningi 66°Norður, eftir að tek­ ið væri tillit til kröfu sem Egus átti á SF II vegna samningsins í júní 2011. Í október 2014 greindi Viðskipta­ blaðið frá því að 66° Norður hefði fengið 327 milljónir króna vegna leiðréttingar á ólögmætu gengis­ tryggðu láni. Í dómi héraðsdóms segir að starfsmenn Stefnis hafi í kjölfar fréttaumfjöllunar aflað sér ársreiknings 66°Norður fyrir árið 2013 og þá uppgötvað að eigandi Hróss hefði ekki upplýst sjóða­ stýringarfyrirtækið um greiðsluna „þrátt fyrir að hafa mátt vera kunn­ ugt um hana í tæpt heilt ár“. Vildi afslátt Krafa SÍA I fyrir héraðsdómi hljóð­ aði upp á 113 milljónir króna auk dráttarvaxta. Þar var einnig tekin fyrir stefna Hróss, sem héraðsdómur sýknaði SÍA I af, um að félagið ætti rétt á afslætti upp á 136 milljónir af kaupverðinu í mars 2012. Hin keyptu hlutabréf hafi verið seld með „leyndum göllum“ eins og endurá­ kvörðun tekjuskatts að fjárhæð 211 milljóna króna sem 66°Norður þurfti síðar að greiða vegna meints ólög­ mæts samruna frá árinu 2005. Fé­ lagið hafi þar að auki þurft að greiða 183 milljónir vegna dómsmáls sem Halldór Gunnar Eyjólfsson, fyrrver­ andi forstjóri fataframleiðandans, höfðaði gegn fyrirtækinu og vann í Hæstarétti í september 2014. Stjórnendur Stefnis höfn­ uðu gagnkröfunni og sögðu að forsvarsmönnum Hróss hefði átt að vera fullkunnugt um að málin tvö gætu komið upp. Helga Rúnari hafi átt að vera vel kunnugt um skatta­ mál 66°Norður þar sem hann hafi verið forstjóri fyrirtækisins í rúmt ár þegar kaupin í mars 2012 gengu í gegn. Óvíst með áfrýjun Helgi Rúnar sagðist í samtali við DV ekki hafa fengið tækifæri til að ræða niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur við lögmann sinn þar sem forstjór­ inn væri staddur erlendis. Af þeim sökum hefði ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað ekki verið tekin. Samkvæmt nýjasta ársreikningi Hróss, sem er fyrir árið 2012, var Helgi Rúnar í lok þess árs eini hlut­ hafi félagsins. 66°Norður er sam­ kvæmt fyrirtækjaskrá Ríkisskatt­ stjóra í dag alfarið í eigu BH Holding ehf. sem er aftur í eigu Hróss. n Forstjóri 66°Norður Helgi Rúnar Óskarsson og eiginkona hans, Bjarney Harðardóttir, eru einu stjórnarmenn Hróss ehf. sem var í síðustu viku dæmt til að greiða sjóðastýringarfyrir- tækinu Stefni 86 milljónir króna. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Neitaði að gefa sýni Um kvöldmatarleytið á miðviku­ dag stöðvaði lögreglan ökumann á Reykjanesbraut, við Ikea. Sá mældist á 139 km/klst en leyfileg­ ur hámarkshraði þar er 80 km/ klst. Ökumaðurinn var í kjölfarið færður á lögreglustöð, þar sem varðstjóri svipti hann ökuréttind­ um. Aðfaranótt fimmtudags var annar ökumaður stöðvaður á Sæbraut, við Holtagarða, vegna gruns um ölvun við akstur. Hann var svo færður á lögreglustöð, þar sem hjúkrunarfræðingur kom til að taka blóðsýni fyrir rannsókn málsins. Maðurinn neitaði hins vegar að gefa öndunarsýni og þvagsýni og var því sviptur öku­ réttindum til bráðabirgða. Setti fíkniefna- auglýsingu í rangan hóp Fíkniefnasali sem reyndi að koma fíkniefnum í verð á Facebook virðist hafa hlaupið á sig og skráð auglýsinguna í rangan hóp. Við­ komandi kallar sig Hr Keflavík og virðist hafa að freistað þess að koma fíkniefnum í verð í hópnum Keflavík og Keflvíkingar. „Veraldarvefurinn getur verið varasamur. Því fékk þessi fíkni­ efnasölumaður að kynnast í gær. En það er þekkt að aðilar sem stunda það að selja fíkniefni nota samfélagsmiðla oft til þess og þá oftast undir dulnefnum. Eins og sjá má á þessari mynd þá setti þessi sölumaður auglýsingu á Facebook í gær. En hann var það óheppinn að setja þetta inn á ranga síðu, eins og sjá má og setti hann símanúm­ erið sitt við færsluna. Það er ekki gott fyrir hann en mjög gott fyrir okkur,“ segir lögreglan á Suður­ nesjum á Facebook­síðu sinni. Lögreglan vill einnig nota tækifærið og benda foreldrum á að fylgjast vel með þessum sam­ félagsmiðlum og gefa því gaum hvort börnin séu að vingast við einstaklinga sem þau ekki þekkja og eru klárlega með falskan að­ gang. „En nóg af þessu nú förum við í það að finna þennan sölu­ mann,“ segir lögreglan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.