Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 23
Komdu í steik
Kynningarblað
Áby rgðarmaður og umsjón: Steinn Kári Ra gnarsson / steinn@dv.is
11. mars 2016
Matreiðslumeistarar Hereford
með áralanga reynslu
G
unnar Hilmarsson, eigandi
Hereford steikhús, segir að
áhersla sé lögð á að við-
skiptavinir fái mat úr úr-
vals hráefni og að verð-
lagning veitingastaðarins spilli ekki
fyrir matarlyst viðskiptavina. „Mat-
reiðslumeistarar Hereford steik-
hús hafa áralanga reynslu af steik-
húsum að baki, bæði hérlendis og
erlendis, og gera miklar kröfur til
góðs hráefnis,“ segir Gunnar.
Bjóða upp á besta
fáanlega hráefni
„Við leggjum allan okkar metnað í
að bjóða upp á aðeins besta fáan-
lega hráefni sem til er hverju sinni
og bjóða fjölbreytt úrval aðalrétta,
forrétta og eftirrétta,“ segir Gunnar.
„Steikurnar okkar koma frá Kjarna-
fæði og eru þær sérvaldar, fituofnar
og sérverkaðar eftir óskum yfirmat-
reiðslumeistara Hereford steikhús.
Kjarnafæði er í samvinnu við Here-
ford og íslenska nautgriparæktend-
ur sem gera miklar gæðakröfur til
að ná fram hámarksgæðum út úr
hverjum munnbita,“ bætir Gunnar
við.
Þriggja rétta tilboð alla daga
„Við bjóðum upp á veglegt þriggja
rétta tilboð alla daga sem er afar
vinsælt hjá okkur,“ segir Gunn-
ar. Umrædda rétti má sjá hér að
neðan.
Forréttur Humarsúpa Hereford
Aðalréttur: 200 g nautalund borin
fram með pönnusteiktu grænmeti
og bakaðri kartöflu. Í boði eru tvær
tegundir af sósum: Bernaise og
piparsósa.
Eftirréttur: Volg súkkulaðikaka
með ís og berjum
Verð kr. 6.500
Staðsett í miðbænum
Hereford steikhús var stofnað árið
2002 og er staðsett á Laugavegi 53b.
Gunnar segir að lagt sé upp úr góðri
þjónustu og að allir viðskiptavinir
yfirgefi veitingastaðinn með bros á
vör. Opnunartími eldhússins er frá
kl. 17.00 til 22.00 virka daga en frá kl.
17.00 til 23.00 um helgar en staður-
inn er opinn til miðnættis alla virka
daga og til kl. 01.00 um helgar. n