Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Qupperneq 8
Vikublað 15.–17. mars 20168 Fréttir
É
g þurfti að segja honum að
ég ætti þetta ekki í kass
anum,“ segir Guðmundur
Baldursson, verslunarstjóri
í Skerjakollu, búðinni á
Kópaskeri. Eins og greint var frá um
helgina féll fyrsti vinningur í lottó
inu á miða sem seldur var í versl
uninni í þessu fámenna en fallega
þorpi á norðausturhorni landsins.
Vinningurinn hljóðaði upp á rétt
tæpar fimmtán milljónir króna. Svo
ótrúlega vildi til að vinningshafinn,
sem á föstudaginn keypti miða í
þremur lottóum; íslenska lottóinu,
Eurojackpot og Víkingalottó vann
vinninga á alla þrjá miðana. Hinir
vinningarnir tveir voru þó snöggt
um minni, svo vægt sé til orða tek
ið. Guðmundur segir aðspurður að
vinningshafinn kaupi iðulega hjá
honum miða á föstudögum, og sé
því ötull lottóspilari.
Mætti grunlaus í búðina
Á Kópaskeri búa um 140 manns.
Þegar fram kom í fréttum um
helgina að fyrsti vinningur hefði
komið á miða sem seldur var í
Skerjakollu komu því ekki ýkja
margir til greina. DV hefur heim
ildir fyrir því að um fátt annað hafi
verið rætt um í þorpinu á sunnu
dag.
Guðmundur áætlar að hann hafi
selt um það bil 20 lottómiða fyrir
helgina. Vinningshafinn var þó al
veg grunlaus þegar hann mætti í
búðina um hádegisbil á mánudag
og hafði ekki haft veður af því að
vinningsmiðinn hefði verið seldur
á Kópaskeri. Svo vildi til að þeir
sem voru staddir í búðinni
voru að ræða um vinn
inginn og þannig
heyrði hann af
því að líkurnar
væru kannski
heldur meiri
en venjulega.
Guðmundur
segir að
hann hafi
verið sá
fyrsti sem
kom með
miðann sinn til
aflestrar – aðrir
hafi líklega verið
búnir að lúslesa mið
ana sína heima fyrir.
„Svolítið hissa“
En hvernig varð vinningshafanum
við? Guðmundur segir að það
fyrsta sem hann hafi sagt var að
núna ætti hann líklega fyrir jarðar
förinni sinni. „Hann varð svo
lítið hissa og trúði þessu varla enn
þegar hann gekk út úr búðinni um
klukkutíma síðar. Hann sagði við
mig að hann myndi kannski trúa
þessu þegar þetta væri komið inn
á bankabókina,“ segir Guðmundur
en viðstaddir óskuðu vinnings
hafanum til hamingju í bak og fyr
ir. „Það voru fjórir eða fimm aðrir
viðskiptavinir í búðinni og hon
um var fagnað innilega.“ Guð
mundur segir enn fremur að hann
sé afar ánægður með hvar
vinninginn bar niður.
„Ég gæti ekki verið
glaðari fyrir hans
hönd. Hann er
einstakt ljúf
menni og
sérstaklega
hjálpsamur
maður.“
Í Skerja
kollu er vísir
að kaffihúsi
en þar sett
ist vinnings
hafinn niður
með viðstöddum
þegar tíðindin urðu
ljós. Guðmundur segir
að vinningshafinn hafi sagt við
konuna sína á föstudaginn, að ef
hann ynni stóra vinninginn þessa
helgina, myndi hann líklega láta
verða af því að ljúka við sumarhús
þeirra hjóna. „Svo talaði hann um
að hann myndi kannski gefa kon
unni sinni nýjan bíl – en sá gamli
hefur enst vel,“ segir Guðmundur
glaðbeittur í samtali við DV.
Guðmundur bindur vonir við að
vinningurinn muni verði til þess að
fleiri leggi leið sína í Skerjakollu og
kaupi hjá honum bæði lottómiða
og vörur. „Það munar um hvern
viðskiptavin.“ n
„Ég gæti ekki verið
glaðari fyrir hans
hönd. Hann er einstakt
ljúfmenni og sérstaklega
hjálpsamur maður.
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
Skerjakolla Inga Sigurðardóttir og
Guðmundur Baldursson reka verslun-
ina á Kópaskeri, þar sem vinningsmið-
inn var seldur. Mynd SiGGi BahaMa
n Fimmtán milljónum krónum
ríkari n Grunaði ekki að hann
hefði vinningsmiðann
Lottóþrenna
á Kópaskeri
Kópasker
Olsen Olsen
RestauRant
Hafnargötu 62 - Sími 421 4457
Olsen Olsen
RestauRant
Hafnargötu 62 - Sími 421 4457
Sticky FingerS
Ertu á lEiðinni í flug? Þú vErður að smakka
sticky fingErs hamborgarann okkar!
5 5 2 - 6 0 6 0