Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Qupperneq 10
10 Fréttir Vikublað 15.–17. mars 2016 „Forysta Landsbankans verður að axla ábyrgð“ Árni Páll Árnason segir svarbréf Bankasýslunnar staðfesta fyrri orð hans um að Landsbankinn sé rúinn trausti Þ að er alveg ljóst að forysta Landsbankans verður að axla ábyrgð á mistökun- um. Mér finnst eðlilegt að gefa þeim færi á að grípa til einhverra aðgerða áður en stjórn- málin fara að kalla eftir tilteknum leiðum. En ég held að það sé ekk- ert hægt að misskilja tilmæli Banka- sýslunnar,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, um svarbréfið sem Bankasýsla ríkis- ins sendi bankaráði Landsbankans á föstudag og inniheldur gagnrýni hennar á söluferli bankans á 31,2% hlut hans í Borgun sem lauk í nóv- ember 2014. Stjórnendur Bankasýslunnar, sem fer með 98% hlut íslenska ríkis- ins í Landsbankanum, hafna í bréf- inu flestum rökum sem forsvars- menn Landsbankans hafa notað til að verja ákvörðun sína um að selja eignina í lokuðu söluferli til hóps fjárfesta og stjórnenda greiðslu- kortafyrirtækisins. Telur stofnunin að traust til Landsbankans og stjórn- enda hans hafi beðið hnekki og þá er verðmat bankans á eignarhlutn- um í Borgun gagnrýnt. Engin hald- bær rök hafi komið fram sem útskýri af hverju bankinn krafðist ekki hlut- deildar í milljarðagreiðslunni sem fyrirtækið á von á vegna yfirtöku Visa Inc. á Visa Europe. „Það er auðvitað grafalvarlegt mál, eins og ég benti á strax í upphafi, að skýringar bankans stæðust ekki. Síðan er bankinn búinn að standa í þrasi við mig, Bankasýsluna, og allt og alla. […] Ég sé ekki betur en að niðurstaða Bankasýslunnar sé alveg skýr um það hvar ábyrgðin liggur og staðfesting á því sem ég sagði áður að bankinn er rúinn trausti,“ segi Árni Páll. Gagnrýnin réttmæt Bréfið er undirritað af Lárusi Blön- dal, stjórnarformanni Banka- sýslunnar, og Jóni Gunnari Jóns- syni forstjóra. Í því segir einnig að stofnunin telji það gagnrýnisvert að Landsbankinn skuli hafa kom- ið sér í þá stöðu að eini viðsemj- andinn í lokaða söluferlinu hafi verið hópur fjárfesta sem innihélt meðal annars stjórnendur Borgun- ar. Líkt og DV hefur greint frá seldi bankinn 24,96% eignarhlut í Borgun til Eignarhaldsfélagsins Borgunar annars vegar, sem er meðal annars í eigu Stálskipa og Einars Sveins- sonar, föðurbróður Bjarna Bene- diktssonar, fjármála- og efnahags- ráðherra, og hins vegar 6,24% til einkahlutafélagsins BPS sem er í eigu tólf æðstu stjórnenda greiðslu- kortafyrirtækisins. Árni Páll segir bréfið staðfesta réttmæti athugasemda sem hann setti fram í kvöldfréttum RÚV þann 20. janúar síðastliðinn. Sagði hann þá allt benda til þess að bankinn hefði gert alvarleg mistök í að greina viðskiptatækifærið sem í Borgun fólst og hann kallaði „kaup aldar- innar í íslensku viðskiptalífi“. Lands- bankinn svaraði Árna með frétta- tilkynningu síðar um kvöldið og hafnaði þar ummælum hans. „Það er brýnt að endurheimta traustið og ekkert sem forysta bankans hefur gert á þeim tveimur mánuðum sem liðnir eru síðan ég lét þau orð falla hefur verið til þess fallið að endurheimta það traust. Allt sem segir í þessari fréttatilkynn- ingu hefur nú verið hrakið,“ segir Árni. Boltinn hjá bankaráði Bankasýslan komst að þeirri niður- stöðu að söluferli Landsbankans á eignarhlutnum í Borgun hafi „varp- að verulegum skugga á árangur bankans undanfarin misseri“ og að fagleg ásýnd fyrirtækisins og stjórnenda þess hafi beðið hnekki. Landsbankinn verði af þeim sök- um að grípa til „viðeigandi ráðstaf- ana til að endurheimta það traust og trúverðugleika sem þessi sölu- meðferð á hlutum í Borgun hefur kostað bankann“. Fer Bankasýslan fram á að bankaráðið svari því, ekki seinna en 31. mars, hvernig með- limir þess ætli að bregðast við til að endurreisa traust. „Þetta eru mjög ákveðin skilaboð, þeir fara yfir það að öll svör bankans varðandi söluna á Borgun séu ófull- nægjandi og fara fram á viðbrögð stjórnenda bankans við að endur- heimta traust. Mér þótti þetta mjög ákveðin og ábyrg afstaða Banka- sýslunnar. Mín skoðun er sú að það séu engin málefnaleg rök fyrir því að selja ekki eignarhluti í opnu út- boði,“ segir Guðlaugur Þór Þórðar- son, varaformaður fjárlaganefnd- ar og þingmaður Sjálfstæðisflokks. Aðspurður vill Guðlaugur ekki svara því hvort stjórnendur Lands- bankans eigi að stíga til hliðar í ljósi niðurstöðu Bankasýslunnar. Boltinn sé nú hjá bankaráðinu. Árni Páll tekur í sama streng. „Mér finnst það ekki mitt hlut- verk að persónugera málið á þessu stigi en það hlýtur að vera banka- ráðsins að taka efnislega afstöðu til þessara alvarlegu athugasemda.“ n Tekið fyrir á aðalfundi Landsbankans DV óskaði eftir viðbrögðum Steinþórs Pálssonar, bankastjóra Landsbankans, við bréfi Bankasýslu ríkisins. Í svari við fyrirspurn blaðsins sagði að stjórnendur bankans myndu ekki tjá sig frekar um málið og bent á að fyrirtækið sendi frá sér stutta fréttatilkynningu í gær, mánu- dag. Í tilkynningunni segir að bankaráð Landsbankans hafi fengið bréfið, gert sé ráð fyrir að Fjármálaeftirlitið birti álit sitt á Borgunarsölunni innan nokkurra daga, og að ráðið svari Bankasýslunni innan til- greinds frests. Þá verði fjallað um söluna á aðalfundi bankans 14. apríl næstkomandi. Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Varaformaður fjárlaganefndar Guðlaugi Þór finnst bréf Bankasýslunnar sýna ábyrga og ákveðna afstöðu. Í takt við tímann • Við erum flutningsmiðlun og sjáum um að koma vörum milli landa. • Við byggjum á víðtækri reynslu úr flutningaheiminum. Árni Páll Bankasýsla ríkisins gerir ýmsar athugasemdir við söluferli Landsbankans á 31,2% hlut sínum í greiðslukortafyrirtækinu Borgun. Mynd SiGtryGGur Ari JoHAnnSSon tryggvi Pálsson, formaður bankaráðs Landsbankans, og Steinþór Pálsson bankastjóri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.