Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Síða 16
16 Fréttir Erlent Vikublað 15.–17. mars 2016 „Ekki roðna elskan“ Íþróttafréttakonur segja frá áreiti, ofsóknum og morðhótunum Í þróttafréttakonur sæta oft of- sóknum og þurfa að sækja rétt sinn gegn eltihrellum og óðum aðdáendum íþrótta- manna. Líkt og DV greindi frá á dögunum varð íþróttafréttakon- an Erin Andrews fyrir því að elti- hrellir sem hafði áreitt hana um nokkurt skeið lak nektarmynd- böndum af henni á netið. Mynd- irnar tók hann í gegnum gægjugat á hótelherbergi hennar. Hann hafði haft samband við hótelið áður en hún dvaldi þar og krafðist þess að fá herbergið sem var aðliggjandi hennar. Maðurinn sem um ræðir, Michael David Barrett, tók umrætt myndband en hann var dæmdur í 30 mánaða fangelsi fyrir að taka upp þrjú myndbönd af Erin, þar á meðal þetta sem um ræðir. Henni hafa nú verið dæmdar skaðabætur og ber hótelinu að greiða 55 millj- ónir bandarískra dollara í skaða- bætur. Erin er ekki sú eina sem hefur lent í slíku. Tvær nöfnur hennar hafa í kjölfar dómsins stigið fram og sagt svipaðar sögur auk þess sem þær Jacquelin Magnay og Georgina Robinson, lýsa hvernig komið var fram við þær – jafnvel í beinni út- sendingu. Fékk blóðugan rýting Jacquelin Magnay, ástralskur íþróttafréttamaður, greinir frá því hvernig hún sat undir alls kyns ásökunum um hlutdrægni og var sögð ekki hafa hundsvit á starfi sínu. „Ég er glöð að lögin voru hliðholl Erin – að dómarinn skildi hversu erfitt þetta hefur verið henni, vegna aðfara eltihrellisins og hótelsins,“ segir Jacquelin. „Þegar ég starfaði sem íþróttafréttamaður fékk ég eitt sinn sendan blóðugan rýting auk morðhótunar, sem ég tilkynnti lögreglu. Ég var ekki ein og veit að aðrar íþróttafréttakonur hafa lent í svipuðu og sitja enn undir áreiti.“ Þinn staður er í eldhúsinu Önnur íþróttafréttakona, Erin Molan, segir svipaða sögu. „Ég hætti í útvarpi eftir að ég var spurð hvort ég hefði sofið hjá mörgum íþróttamönnum og hvort ég hefði farið í brjóstastækkun,“ segir hún. „Þegar ég byrjaði fékk ég mikið af athugasemdum eins og: „Þinn staður er í eldhús- inu“ og það var ein af þeim skárri,“ seg- ir hún. „Munurinn á fréttakörlum og -kon- um er sá að þeir fá yfir sig athugasemda- hrinu vegna einhvers sem þeir segja, en við fáum hana yfir okkur vegna útlitsins.“ Morðhótanir Erin Riley fékk morð- hótanir og margir sögðu henni að ef til vill væri best ef hún fremdi sjálfs- morð. Hún var kölluð „ skammarlegt kven- rembusvín sem hefði ekkert vit á fótbolta“ eftir að hún fjall- aði um karlrembu og rasísk ummæli áhorfenda á fót- boltaleikjum. Hún var ofsótt á Twitter og einn notandi gekk svo langt að skrifa: „Ég myndi myrða Erin Riley ef ég fengi tækifæri til.“ Hún kærði viðkomandi til lögreglu sem rann- sakaði málið ekki. „Þetta var mjög erfitt,“ segir hún. Fréttakonan Georgina Robin- son varð fyrir því í miðju viðtali að leikmaður krikketliðsins Mel- bourne Renegades sagðist hafa viljað mæta í viðtal við hana. „Mig langaði líka svo að mæta í viðtal við þig, þess vegna er ég hér. Ég fæ að horfa í augu þín í fyrsta sinn, það er notalegt. Vonandi getum við [liðið hans, innsk. blm.] unnið og farið svo og fengið okkur drykk á eftir. Ekki roðna elskan.“ Honum var gert að greiða sekt vegna málsins samkvæmt ákvörðun ástralska krikket- sambandsins. n Ásta Sigrún Magnúsdóttir astasigrun@dv.is „Ég myndi myrða Erin Riley ef ég fengi tækifæri til. Bauð henni á stefnumót Georgina Robinson sést hér í viðtalinu þar sem Chris Gayle bað hana um að roðna ekki. Fær bætur Erin Andrews fær bætur frá hóteli sem hleypti eltihrelli nálægt henni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.