Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Page 21

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Page 21
Helgarblað 15.–17. mars 2016 Kynningarblað - Sameignin 3 S tjörnumálun ehf. er fram- sækið og stöndugt verktaka- fyrirtæki sem getur tekist á við alls kyns krefjandi ver- kefni af öllum stærðum. Að sögn Ívars Þórs Hilmarssonar, mál- arameistara og eiganda fyrirtækis- ins, hefur Stjörnumálun ehf. áratuga reynslu í alhliða málningarvinnu. „Við erum einnig með eina full- komnustu háþrýstiþvottavél sem völ er á. Við bjóðum upp á háþrýstiþvott með 200–500 bar. dælu með 120°C heitu vatni eða köldu. Við getum þvegið veggjakrot og alla málningu af húsum, bílaplönum, gangstéttum og ýmsu fleira. Nú þegar vorhreingern- ingar standa fyrir dyrum er háþrýsti- þvottur húsa og ýmissa plana einmitt mjög mikil vægur.“ Öll almenn viðhaldsvinna „Við getum gert heildartilboð í viðhaldsvinnu í samstarfi við aðra verktaka, t.d. smiði, rafvirkja, múr- ara og pípara,“ segir Ívar. „Starfs- menn fyrirtækis okkar hafa fjöl- breytta menntun og mikla reynslu. Við erum vel búnir tækjum og eigum m.a. fimm þjónustubíla, tíu vinnulyftur og mikið magn af vinnupöllum fyrir stærri útiverk ásamt öllum þeim verkfærum og tækjum sem þarf í öll verk; stór sem smá. Fyrirtækið leigir einnig út vinnulyfturnar og palla. Hjá fyrir- tækinu starfa allt að 30 manns, eftir verkefnastöðu hverju sinni, og höf- um við tekið að okkur ýmis verk fyrir fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök, húsfélög og einstaklinga. Fyrirtækið er með lagerhúsnæði í Hafnarfirði og er aðili að Samtökum iðnaðarins og gjaldgengt í ábyrgðarsjóð MSI.“ Mikilvægi viðhalds Ívar segist gjarnan vilja vekja athygli á mikilvægi þess fyrir húseigendur að huga að reglulegu viðhaldi fasteigna sinna til þess að rýra ekki verðgildi þeirra og koma í veg fyrir varanlegar skemmdir. „Vel máluð hús eru einn mikilvægasti þátturinn í að skapa fal- lega heildarmynd og lífga upp á um- hverfið. Fagmenn Stjörnumálunar ehf. ráðleggja og veita aðstoð við efn- is- og litaval auk þess sem úthugsaðar kostnaðaráætlanir eru gerðar og verðtilboð út frá þeim. Stjörnumálun ehf. notar einungis efni og málningu sem stenst íslenska veðráttu og við gætum þess að sprungu- og undir- vinna sé mjög góð enda tryggja slík vinnubrögð betri endingu. Viðskiptavinir Stjörnumálun- ar ehf. eru orðnir töluvert margir en fyrirtækið hefur unnið verk fyr- ir fyrirtæki, stofnanir, bæjarfélög, húsfélög, einstaklinga og ýmis fé- lagasamtök,“ segir Ívar. n stjornumalun@stjornumalun.is S: 869-5302 Stjörnumálun ehf: Fullkomnasta háþrýstiþvottavél sem völ er á Áratuga reynslu í alhliða málningarvinnu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.