Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Síða 22
Helgarblað 15.–17. mars 20164 Sameignin - Kynningarblað
Rafsól: sérhæfðir í
endurnýjun raflagna
H
já Rafsól starfa fimm þraut-
þjálfaðir rafvirkjar undir
handleiðslu löggilts rafverk-
taka. Þjónustusvið Rafsólar
sinnir öllum verkum hvort
sem er stórum eða smáum, allt frá
því að skipta út ljósaperum til upp-
setningar á flóknum dyrasíma-
kerfum. Baldur Hannesson, annar
eigenda fyrirtækisins, segir Rafsól
bjóða upp á ókeypis skoðun á raf-
lögnum og gerir tilboð í úrbætur.
„Þessi þjónusta er viðskiptavinum
algjörlega að kostnaðarlausu og án
skuldbindinga,“ segir Baldur.
Áratuga reynsla
og vönduð vinnubrögð
Starfsmenn Rafsólar hafa ára-
tuga reynslu og hafa sérhæft sig
í endurnýjun raflagna í gömlum
húsum, uppsetningu rafmagn-
staflna, lögnum fyrir netkerfi og
uppsetningu dyrasímakerfa. Raf-
sól leggur mikið upp úr vönduð-
um vinnubrögðum og þjónustar
stofnanir, fyrirtæki og einstak-
linga á margvíslegan hátt. „Við
erum með vel yfir 30 ára reynslu.
Til að byrja með vorum við alltaf
í nýbyggingum en á seinni árum
höfum við einbeitt okkur að því
að endurnýja raflagnir því nóg er
að gera í því,“ segir Baldur. „Það
margborgar sig að endurnýja
gamlar rafmagnstöflur. Gamlar
og illa farnar rafmagnstöflur geta
verið hættulegar, ekki síst ef þær
eru úr tré eða staðsettar inni í
skápum þar sem nóg er um elds-
mat. Í slíkum tilfellum er brýnt að
láta löggiltan rafverktaka kanna
ástand rafmagnstaflna og gera úr-
bætur áður en skaðinn er skeður.
Í eldri töflum eru bræðivör sem
skipta þarf um þegar þau springa
en í nýrri töflum eru varrofar sem
slá út við bilun eða of mikið álag,“
segir hann í framhaldinu.
Lausnir fyrir hvern og einn
„Í samvinnu við viðskiptavini
okkar finnum við einstakar lausnir
sem henta hverjum og einum, því
við teljum að vandamálin séu til að
leysa þau og leggjum við allt kapp
á að uppfylla óskir viðskiptavina
okkar fljótt og vel,“ segir Baldur.
„Við bjóðum einnig húsfélögum
upp á þjónustusamning varðandi
eftirlit og umsjón sameigna í fjöl-
býlishúsum sem og stofnunum
og fyrirtækjum,“ bætir hann við.
„Við sinnum jafnframt verkefnum í
Reykjavík og nágrenni,“ segir hann
í framhaldinu.
Rótgróið fjölskyldufyrirtæki
Rafsól er rótgróið fjölskyldu-
fyrirtæki sem hefur verið í eigu
bræðranna Baldurs og Ómars
alla tíð en þeir hafa báðir starfað í
bransanum frá því þeir voru ungir
strákar. Fyrir tækið er staðsett í
Síðumúla 34 í Reykjavík og síma-
númerið er 553-5600. n
Hér má sjá
dæmigerða
töflu sem
þarfnast
endurnýjunar
Ný aðaltafla
V
egamálun GÍH annast
bílastæðamálun og aðrar
tengdar gatnamerkingar.
Fyrirtækið er með margra
ára reynslu í vegmerk-
ingum og hefur tekið þátt í hinum
ýmsu verkefnum.
„Við búum yfir fagþekkingu í
bílastæðamálun sem nauðsyn-
legt er að hafa til þess að ná sem
bestri nýtni úr bílaplaninu,“ segir
Gautur Ívar Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins.
„Kostnaður við að mála eitt dæmi-
gert húsfélagsplan er oft minni
en fólk heldur. Metraverð fer eftir
fjölda; því fleiri metrar því lægra
einingarverð,“ segir Gautur Ívar
aðspurður um kostnað við fram-
kvæmdir sem þessar. „Áreiðanleg
og góð þjónusta er okkar helsta
markmið og að viðskiptavinur-
inn verði fyrir sem minnstum
óþægindum á framkvæmdatíma.“
Sumarið 2015 mjög
annasamt hjá fyrirtækinu
Sumarið 2015 var mjög annasamt
hjá fyrirtækinu þar sem starfsemin
fór vítt og breitt um landið. „Við
vorum með verkefni á Akureyri,
Vestfjörðum og Suðurlandi og fór-
um á Vík í Mýrdal, svo dæmi séu
tekin. Vegamálun GÍH tók þátt í
verkefni með Sjóvá þar sem mál-
aður var SMS borði við Verzlunar-
skóla Íslands til að minna á
slysahættuna við farsímanotkun
undir stýri.
Fyrirtækið er búið að vaxa ár frá
ári og er stefnt á að bæta við vélum
og tækjum í flotann til að geta ann-
ast fleiri verkefni,“ segir Gautur
Ívar að lokum. Það er frítt að fá til-
boð í bílaplanið, hægt er að óska
eftir tilboðum á heimasíðu fyrir-
tækisins; www.bilastaedamalun.
is, eða í gegnum netfangið gih@
gih.is, s: 894-1500. n
Þarf að mála planið?
– Bílastæðamálun um land allt