Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 15.–17. mars 20166 Sameignin - Kynningarblað Fjöleignir: Ný nálgun í umsjón húsfélaga Framkvæmdir og sérfræðiráðgjöf F jöleignir bjóða fram­ úrskarandi þjónustu þegar kemur að heildarlausnum í rekstri og ráðgjöf við hús­ félög. Fyrir tækið leitast við að ná fram hagræðingu fyrir við­ skiptavini sína og leggur áherslu á persónulega þjónustu, gagnkvæmt traust og góð samskipti. Eyþór Friðriksson framkvæmdastjóri segir að Fjöleignir bjóði þrjár leið­ ir fyrir húsfélög sem allar tryggja grunnrekstur og gott utanumhald, þar sem kröfur húsfélaga eru mis­ jafnar og því býður fyrirtækið upp á leiðir sem uppfylla mismunandi þarfir. Leið 1: Grunnrekstur „Í þessari leið felst umsýsla grunn­ reksturs húsfélaga, m.a. með inn­ heimtu og eftirfylgni með greiðslu húsgjalda. Húsgjöld eru yfirfar­ in og innheimt skv. eignaskipta­ yfirlýsingu og fjöleignahúsalög­ um. Séð er um gerð ársreiknings fyrir aðalfund auk færslu bók­ halds og greiðslu reikninga. Við sjáum um samskipti við banka og pössum upp á að lögveðsréttind­ um húsfélagsins sé fylgt eftir ef upp koma vanskil. Á reikningum er rekjanlegt samþykktarferli og ársreikningur og önnur bókhalds­ gögn eru aðgengileg á lokuðu vefsvæði. Við sækjum síðan um endurgreiðslu á vsk. vegna fram­ kvæmda.“ Leið 2: Rekstur, húsfundir og þjónusta „Hér er innifalin öll þjónusta úr leið eitt. Aðalfundur haldinn með fundarstjórn, fundargerð rituð og gerð aðgengileg. Við sjáum um boðun aðalfundar og uppsetningu dagskrár fyrir húsfundinn. Við út­ vegum einnig fundaraðstöðu ef þess er óskað. Fjöleignir sjá um gerð rekstrar­ og framkvæmdaá­ ætlunar húsfélagsins og bjóða upp á ráðgjöf við að setja eða endur­ skoða húsreglur. Auk þess útbúum við íbúalista með tengiliðaupplýs­ ingum. Auka húsfundir umfram aðalfund eru haldnir ef þörf krefur. Leitað er tilboða í allan rekstur t.d. þrif á sameign, umhirðu á garði og snjómokstri. Tryggingar skil­ greindar og óskað er eftir tilboð­ um.“ Leið 3: Framkvæmdir og sérfræðiráðgjöf „Öll þjónusta úr leiðum eitt og tvö er innifalin í þessum pakka en hér bætist við að leitað er eftir tilboðum í smærri framkvæmdir auk þess sem boðið er upp á val á framkvæmdaaðila og kostnaðar­ greiningu. Gerð verksamninga er innfalin og stórum framkvæmdum komið í farveg. Við höldum árlegan stöðufund með stjórn húsfélags og innifalið er tveggja klst. lögfræði­ ráðgjöf á ári. Árleg sjónskoðun á fasteign af fagmanni, tillögum að viðhaldi komið til stjórnar.“ n Fjöleignir Hafnarhvoli 11 101 Reykjavík Sími: 531-6000 www.fjoleignir.is Mynd © BaRBaRa HeLGason Fyrirtak málningarþjónusta: Allt almennt viðhald fasteignaviðhald Þjónum fyrirtækjum, stofnunum og húsfélögum F yrirtak málningarþjónusta ehf. hefur þjónað fyrirtækjum, stofnunum, húsfélögum og heimilum til margra ára. Fyrir tækið tekur að sér öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi og breytingum á fasteignum, jafnt að innan sem utan. Ámundi S. Tómasson er fram­ kvæmda­ og verkefnastjóri Fyrirtaks en hann hefur rekið fyrirtækið með góðum árangri í mörg ár. Nú hefur reynsluboltinn Hilmar Sigurðsson málarameistari gengið til liðs við hann og saman búa þeir að ómet­ anlegri reynslu í málun og viðhaldi húsa. „Hjá fyrirtækinu starfa r eyndir iðnaðarmenn sem leggja metnað sinn í fagmennsku, snyrtimennsku og áreiðanleika. Einnig starfa þar múrarar og smiðir og saman geta þeir leyst öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi húsa,“ segir Ámundi. „Við hjá Fyrirtak tökum að okkur allt almennt viðhald á fast­ eignum eins og t.d. gluggaviðgerð­ ir og glerísetningar. Ef glugginn er farinn að fúna er nauðsynlegt að laga fúann áður en málað er. Við ger­ um við glugga með því að saga fúa í burt og setja nýtt fúavarið timbur í staðinn (sponsa glugga). Gluggavið­ gerðir og glerísetningar krefjast mik­ illar nákvæmnisvinnu og rétts hand­ bragðs. Við bjóðum upp á þessa þjónustu og getum líka leiðbeint og aðstoðað.“ Reglulegt viðhald á fasteignum borgar sig. Málning er oftar en ekki eina vörnin fyrir veðri og vindum. Málning á bæði að verja og fegra. Utan húss veðrast fletir hratt fyrir áhrif sólar, veðurs og vinds. Með reglulegu viðhaldi er hægt að verja fasteignina og koma í veg fyrir dýr­ ar framkvæmdir eins og t.d. glugga­ viðgerðir, viðgerð á stein og þaki. Þjónum fyrirtækjum, stofnunum og húsfélögum Mikilvægt er passa upp á tréverk, gluggar og annað tréverk getur fúnað mjög fljótt ef ekki er passað upp á að það sé málað reglulega, að sögn Ámunda, og því mjög mikilvægt að nota góð efni sem hafa reynst vel í ís­ lenskri veðráttu. Fyrirtak málningar­ þjónusta ehf. hefur þjónað fyrirtækj­ um og stofnunum. „Fyrirtækið tekur að sér öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi og breytingum á fast­ eignum, jafnt að innan sem utan. Fyrirtak málningarþjónusta ehf. hef­ ur þjónað fyrirtækjum, stofnunum, húsfélögum og heimilum til margra ára. Fyrirtækið tekur að sér öll helstu verkefni sem koma að viðhaldi og breytingum á fasteignum, jafnt að innan sem utan,“ segir Ámundi. n Fyrirtak málningarþjónusta Sími: 770-7997. fyrirtak@fyrirtak.is www.fyrirtak.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.