Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Page 37
Menning 25Vikublað 15.–17. mars 2016
Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð
og samþykkt af Mannvirkjastofnun.
Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna
og léttir þrif.
Stigahúsateppi
Mikið úrval!
Mælum og gerum tilboð
án skuldbindinga og kostnaðar
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Sérverslun með teppi og parket
Fleiri hliðar á Reykjavík en grámi og ömurleiki
n Ásgrímur Sverrisson leikstýrir sinni fyrstu mynd í fullri lengd – Reykjavík n Blúsuð rómantísk kómedía um tilvistarkrísu kvikmyndabúðareiganda
Reykjavíkur karlmaður í tilvistar-
krísu. Ég var beðinn um að spyrja þig
hvort Reykjavík stæðist Bechdel-próf-
ið sem er notað til að mæla hvort kvik-
mynd geti talist kvenréttindasinnuð?
„Já, hún sleppur fyrir horn,“ segir
Ásgrímur og hlær. „Það er ein sena
þar sem tvær konur tala um húsa-
kaupasamning. Þannig að myndin rétt
slefar … með góðum vilja. En prófið
hefur náttúrlega ekkert að gera með
gæði myndanna, persónusköpun eða
eitthvað slíkt. Ég held að flesta langi
fyrst og fremst að skapa heilsteyptar
persónur hvort sem þær eru karlar eða
konur, óháð því hverrar þjóðar þær eru
eða hvernig þær eru á litinn. Bechdel-
prófið er mjög gott því það er að benda
á ákveðna tilhneigingu, en að nota það
sem einhvern algildan dóm væri nátt-
úrlega út í hött,“ segir hann.
Langaði að sýna borgina
í bjartara ljósi
Reykjavík hefur oftar en ekki verið
sýnd sem kaldur, napur og frekar
ömur legur staður, en það er greinilegt
að þig langaði að sýna hana á annan
hátt. Það er sumar, milt veður og bjart
– hvort sem það er dagur eða nótt.
„Já, algjörlega. Mig langaði að
sýna þá Reykjavík sem ég kannast við
og þekki. Auðvitað hefur hún margar
hliðar. Það er stundum allt ömurlegt
og ekkert að gerast í þessum „one
horse town,“ en hún getur líka ver-
ið skemmtileg, björt, full af áhuga-
verðu fólki, sem er að gera allskon-
ar, bæði heimskulega en líka flotta og
æðislega hluti. Það er mikill kraftur
hérna og getur verið mikið líf og fjör.
Maður fer alveg í gegnum allan skal-
ann. Þegar einhverjir útlendingar fara
að mæra Reykjavík langar mann alltaf
að segja þeim að vera hérna í janúar
og febrúar og ganga í gegnum það. En
ef einhver er að dissa Reykjavík þarf
maður að verja hana,“ segir Ásgrímur.
Lítill en harðsnúinn
skæruliðahópur
Sunna Gunnlaugs djasspíanóleikari
sér um tónlistina og hefur hún mikil
áhrif á stemningu myndarinnar.„Ég
var búinn að ákveða að hafa djass í
myndinni og Sunna blasti mjög fljótt
við. Hún hefur svo góða tilfinningu
fyrir melódíu, er náttúrlega frábær
spilari sem og hennar fólk, en svo hef-
ur hún þennan ofsalega fína elegans.
Það fannst mér vera rétt fyrir þessa
mynd. Það er æðislegt hvað hún stökk
á þetta þó hún hafi aldrei gert neitt
svona áður. Tónlist í kvikmyndum er
gjarnan notuð til að undirstrika sen-
ur, tilfinningar, áherslur í senum eða
ná utan um það, en hjá okkur var hún
notuð meira eins og brú á milli sena,
stemning áður en við förum úr einni
senu í aðra,“ segir Ásgrímur.
Hinn spænski Néstor Calvo, sá
um kvikmyndatöku en þeir Ásgrím-
ur lærðu saman í London fyrir þrem-
ur áratugum.
„Hann tók lokamyndina mína
sem við skutum á Snæfellsnesi og var
rosalega hrifinn af Íslandi. Við höfum
stefnt á að vinna eitthvað saman og
gera myndir saman í öll þessi ár. Á
þessum tíma hefur hann skotið hátt
í 30 kvikmyndir – og skotið þrjár
eða fjórar myndir frá því að hann
tók þessa. Ég hringdi í hann með
skömmum fyrirvara og hann sagði
bara „já!“ þótt þetta væru töluvert
þrengri aðstæður en hann er vanur.
Honum var alveg sama, og það var
algjörlega ómetanlegt. Af því að þetta
var svolítið eins og skæruliðahópur
sem fór af stað, lítill en harðsnúinn,“
segir Ásgrímur.
Hann segist hrósa happi yfir góð-
um hóp leikara sem hafi tekist á við
verkefnið af miklu áreynsluleysi. Auk
þess sem gaman hafi verið að vinna
með Ragnari Vald Ragnarssyni klipp-
ara. „Fegurðin í þessu var að þó að við
værum ekki með mikil auraráð vor-
um við með toppfólk, í því felast gæði
myndarinnar,“ segir Ásgrímur.
Rómantískar kómedíur
Það er merkileg tilviljun að myndin
Fyrir framan annað fólk eftir Óskar
Jónasson var frumsýnd í lok febrúar.
Það er önnur rómantísk kómedía þar
sem Reykjavík leikur stórt hlutverk –
er þetta eitthvað í andrúmsloftinu?
„Það er bara algjör tilviljun og
mjög skrýtin tilviljun. Óskar skaut
alveg hálfu ári á eftir mér en það
tók mig bara lengur að koma þessu
saman. Svona verkefni eru svo langan
tíma í þróun að það er erfitt að segja
að þetta sé eitthvað í andrúmsloftinu.
Reykjavík átti margra ára gerjunar-
tíma og þetta tók örugglega nokkur ár
hjá Óskari,“ segir Ásgrímur.
Hvert stefnir þessi mynd, fer hún
á hátíðir erlendis eða er hún fyrst og
fremst hugsuð fyrir íslenskan markað?
„Við erum rétt að byrja að skoða
það, en ég vil endilega sýna hana sem
víðast. Ég er sannfærður um að þetta
sé sammannleg mynd og fólk um
allan heim muni geta samsamað sig
persónunum, að þetta séu aðstæður
sem fólk út um allt þekki.“ n
Birta og hlýja Í myndinni birtist Reykjavík sem björt og sumarleg borg. Hér er Atli Rafn
Viðarsson í hlutverki Hrings.
Vitnað í kvikmyndasöguna Í Reykjavík vitnar Ásgrímur hingað og þangað til kvik-
myndasögunnar, meðal annars frægt atriði í kvikmyndinni Le Mépris eftir franska leikstjór-
ann Jean-Luc Godard.
„Hugmyndin var að
gera borgarsögu
um samband, um klárt og
greint fólk sem er svolítið
að klúðra lífi sínu.