Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 15.03.2016, Side 46
34 Fólk Vikublað 15.–17. mars 2016 Allt til ræktunar og fullt af fíneríi fyrir heimilið og bústaðinn HÖFÐABAKKA 3 / 110 REYKJAVÍK / SÍMI 587 2222 / litlagardbudin.is / Við erum á Facebook Miðar seldir fyrir 270 milljónir n Vinsældir Mamma mia! slá öll met n Fullt út úr dyrum á frumsýningu S öngleikurinn Mamma mia! var frumsýndur í Borgar- leikhúsinu á föstudags- kvöld fyrir fullu húsi, að sjálfsögðu, enda fjölmargir búnir að bíða sýningarinnar með mikilli eftirvæntingu. Mamma mia! hefur farið sigurför um heiminn og því var ekki við öðru að búast en að undirtektirnar hér á landi yrðu góð- ar. Óhætt er að segja að eftirspurnin eftir miðum hafi farið fram úr björt- ustu vonum því nú þegar er búið að selja um 36 þúsund miða á söngleik- inn. Ef allir hafa greitt 7.500 krónur fyrir miðann sinn, sem hann kostar í miðasölu án afsláttar, er Borgar- leikhúsið búið að selja miða á sýn- inguna fyrir 270 milljónir króna. Það hlýtur að teljast nokkuð gott miðað við að aðeins ein sýningarhelgi er liðin. Leikhúsgestir hafa keppst við að lofsama sýninguna á samfélags- miðlum og má því ætla að Mamma mia! standist allar væntingar. Gott orðspor sýningarinnar mun eflaust auka eftirspurnina enn frekar og ljóst er að þeir sem að sýningunni standa munu ekki unna sér hvíldar fyrr en einhvern tímann í sumar, þegar leikhúsið fer í frí. Það er Unnur Ösp Stefánsdóttir sem leikstýrir sýn- ingunni, en með aðalhlutverk fara Jóhanna Vigdís Arnardóttir, Helgi Björnsson og Þórunn Arna Krist- jánsdóttir. n Brugðu á leik Guðmundur Stein- grímsson og Dagur B. Eggertsson létu fara vel um sig í sólstólum skömmu fyrir sýninguna. Glæsileg á hækjum Leikkonan Vigdís Hrefna Pálsdóttir fótbrotnaði þegar hún féll á æfingu á verkinu Hleyptu þeim rétta inn í Þjóðleikhúsinu. Önnur leikkona þurfti að taka við keflinu, enda stóð til að frum- sýna verkið nokkrum dögum síðar. Vigdís gerir hins vegar gott úr þessu og kíkir sjálf í leikhús. Hér er hún í góðum félagsskap Magnúsar Geirs Þórðarsonar útvarpsstjóra. Flott fjölskylda Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Kristján Arason mættu með dóttur sína í leik- húsið og leikhússtjórinn Kristín Eysteinsdóttir heilsaði upp á þau. Flott hjón Tónlistarmaðurinn KK lét sig ekki vanta og mætti með eiginkonuna, Þórunni Rannveigu Þórarinsdóttur, upp á arminn. Flottar mæðgur Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir átti góða endurkomu í leiklistina og sló í gegn bæði í Ófærð og Rétti. Hún bauð dóttur sinni með í leikhús. Mæðgur Björk Eiðsdóttir, ritstjóri Man magasín, og dóttir hennar Blær brostu breitt til ljósmyndara. Spenningur Andri Snær Magnason og kona hans, Margrét Sjöfn Torp, voru spennt fyrir söngleiknum. Sætar mæðgur Rakel Þorbergsdóttir, fréttastjóri RÚV, mætti með dóttur sína í leikhúsið. Þær mæðgur voru að sjálfsögðu léttar í lund fyrir sýningu. Tilhlökkun Júlíus Vífill Ingvarsson, borgar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, og kona hans, Svanhildur Blöndal, lyftu sér upp í leikhúsinu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.