Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 16
Helgarblað 29. apríl–2. maí 201616 Fréttir Fær sömu hækkun og hæstaréttardómarar n Grunnlaun ríkissaksóknara hækka um 26% en yfirvinnueiningum fækkar talsvert G runnlaun Sigríðar J. Frið- jónsdóttur ríkissaksóknara voru hækkuð um ríflega 26 prósent, eða um 270 þús- und krónur á mánuði, með úrskurði kjararáðs frá því í janúar síðastliðnum. Ástæða hækkunar- innar er sú að lögum samkvæmt skal ríkissaksóknari njóta sömu kjara og hæstaréttardómarar. Í lok síðasta árs voru laun dómara, þar með hæstaréttardómara, hækkuð frá og með 1. janúar síðastliðnum. Í lok janúar kom kjararáð saman til fundar og úrskurðaði um breytingar á launum ríkissaksóknara í sam- ræmi við hækkunina sem hæstarétt- ardómarar höfðu fengið. Úrskurð- ur kjararáðs birtist á vefsíðu þess á dögunum. Einingar hífðu upp launin Þrátt fyrir að ríkissaksóknari fari upp um sjö grunnlaunaflokka í launa- töflu kjararáðs með ákvörðuninni þá hækka heildarlaun Sigríðar J. þó aðeins um rúmar 47 þúsund krónur. Ástæðan er sú að fyrir breytinguna var hún með mun fleiri yfirvinnu- einingar greiddar sem hífðu grunn- laun hennar umtalsvert upp. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu kjararáðs voru mánað- arlaun ríkissaksóknara fyrir sam- kvæmt launaflokki 140, eða 1.021.420 krónur á mánuði. Ofan á það lögðust síðan 73 yfirvinnuein- ingar sem námu 652.182 krónum. Heildarlaun saksóknara voru því 1.673.602 krónur á mánuði fyrir úr- skurðinn. Eftir breytingarnar nú fær rík- issaksóknari hins vegar laun samkvæmt launaflokki 147, eða 1.292.529 krónur á mánuði. Því til viðbótar leggjast nú aðeins 48 yfir- vinnueiningar ofan á grunnlaun- in, eða 428.832 krónur. Heildarlaun saksóknara eftir ákvörðun kjararáðs eru því 1.721.361 króna. Hækkun heildarlauna nemur því aðeins 2,8 prósentum, eða 47.759 krónum. Yfirvinnan of stór hluti launa Athygli vekur að fyrir breytingarn- ar nú var hlutfall grunnlauna rík- issaksóknara aðeins 61 prósent af heildarlaunum. Eftir breytingarn- ar er hlutfall grunnlauna 75 pró- sent af heildarlaunum. Sú staðreynd að dómarar, og þar af leiðandi rík- issaksóknari, voru að fá umtalsvert hlutfall launa sinna í tímabundn- um álagsgreiðslum, var meðal þess sem formaður Dómarafélags Íslands benti á þegar hann svaraði frétta- flutningi Fréttablaðsins af launa- hækkunum dómara þegar blað- ið greindi frá ákvörðun kjararáðs í launamálum þeirra í lok desember síðastliðinn. Blaðið hafði greint frá því að laun dómara hefðu hækkað um tugi pró- senta en benti Skúli Magnússon, for- maður Dómarafélagsins, á að í ljósi þess að þau samanstóðu að veru- legu leyti af yfirvinnugreiðslum næmi hækkun heildarlauna dómara aðeins um sjö til átta prósentum. n Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is Ríkissaksóknari Sigríður J. Friðjónsdóttir fékk leiðréttingu á launum sínum í samræmi við úrskurð kjararáðs á launum dómara. Ríkissaksóknari skal lögum samkvæmt njóta sömu kjara og hæstaréttardómarar. Þrátt fyrir að fara upp um sjö launaflokka hækka heildarlaun hennar þó lítið. MYnd SigtRYgguR ARi JóhAnnSSon Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is Bakarameistari & Konditormeistari Allt frá konfektmola upp í fullbúna veislu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.