Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 22
22 Fréttir Erlent Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016
A
llt bendir til þess að auð
kýfingurinn og strigakjaft
urinn Donald Trump hljóti
útnefningu Repúblikana
flokksins til forsetakosn
inganna í haust. Hafi hann þar
betur gegn fulltrúa Demókrata
flokksins, líklega Hillary Clinton,
verður slóvensk eiginkona hans,
Melania Trump, forsetafrú Banda
ríkjanna. Melania, sem er fyrr
verandi fyrirsæta, þykir hafa bein
í nefinu. „Ég verð ég sjálf. Ég verð
ólík öllum fyrri forsetafrúm og
mun hjálpa bæði konum og börn
um. Þau eru framtíðin,“ sagði hún
nýlega, spurð hvernig hún myndi
gegna embættinu. Hér á eftir fara
nokkrar staðreyndir um þessa 45
ára gömlu þokkadís.
Hún gæti minnt á
Jackie Kennedy
Kunnugir segja hættulegt að van
meta Melania. Pamela Keogh,
ævisöguritari Jackie Kennedy,
sagði við Daily Mail á dögunum að
Melania gæti orðið eins og Jackie.
„ Falleg, gáfuð og sjálfstæð“ auk
þess að vera glæsileg á velli.
Talar fimm tungumál
Tungumálin sem Melania talar
eru slóvenska, enska, franska,
serbneska og þýska. Það eitt og sér
gæti aflað henni vinsælda víða um
heim en þykkur slóvenskur hreimur
er þó sögð ástæðan fyrir því að hún
hefur lítið haft sig í frammi opinber
lega – til þessa. Það að Donald eigi
innflytjanda fyrir eiginkonu þykir
ekki falla að málflutningi hans sjálfs
í garð útlendinga.
Hún væri fyrsta forsetafrúin
sem birst hefur nakin
Árið 2000 sat Melania fyrir nakin í
myndatöku fyrir GQ. Á einni um
talaðri mynd sást hún handjárnuð
við skjalatösku um borð í einkaþotu
unnusta síns – Donalds Trump.
Jafnvel þó að Pat Nixon og Betty
Ford hafi báðar setið fyrir, yrði Mel
ania fyrsta bandaríska forsetafrúin
sem gert hefði það nakin.
Sér um uppeldi „Mini-Donalds“
Barron er níu ára sonur þeirra hjóna.
Hann kann best við sig í jakkafötum
eða á golfvellinum með föður sín
um. Hann er sagður elska að segja
fólki fyrir verkum, líkt og faðir sinn.
„Ég kalla hann MiniDonald. Hann
hefur rekið barnfóstrur og hús
þernur,“ sagði Melania í viðtali árið
2011 – en bætti við að honum hefði
reyndar fljótt snúist hugur.
Þykir indæl manneskja
Melania þykir afar heillandi í ná
vígi. Hárgreiðslukona hennar hefur
sagt að henni sé „ómögulegt að vera
kvikindisleg“. Vinkona Melaniu,
Wendi Deng, fyrrverandi eigin
kona Ruperts Murdoch, lýsti henni
í viðtali við New York Times. „Hún
er eiginmanni sínum stoð, frábær
móðir og indælis manneskja.“ Jafn
vel slúðurdálkahöfundurinn Liz
Smith, sem ekki kallar allt ömmu
sína, lýsir henni sem sérstaklega
yndislegri manneskju.
Hún er innflytjandi
Trump hefur talað á mjög niðrandi
hátt um innflytjendur, til dæmis
Mexíkóa. Melania er innflytjandi
en styður samt skoðanir eigin
manns síns. „Ég fer að lögum,“
sagði hún við MSNBC. „Ég ætlaði
aldrei að koma hingað án tilskil
inna leyfa.“ Þegar hún var spurð
um ummæli eiginmanns síns um
að Mexíkóar væru nauðgarar og
glæpamenn, svaraði hún því til að
hún væri ekki móðguð fyrir þeirra
hönd. Hann hefði verið að tala um
þá Mexíkóa sem koma ólöglega inn
í landið.
Reynir að siða mann sinn til
Á kosningafundi í Arizona í síðustu
viku greindi hún frá því að hún og
Ivanka, dóttir fyrrverandi eigin
konu Trumps, Ivönu, séu ekki alltaf
ánægðar með karlinn. Þær hvetji
hann til að vera „forsetalegri“. Hún
sé óhrædd við að ráðleggja eigin
manni sínum en að eðlilegt sé að
þau séu ekki sammála um allt. „Ég
stend gallhörð á mínu og ég held
að það sé sambandinu mjög mikil
vægt.“
Hún vill ekki að hann tísti
Donald hefur látið eins og bjáni á
Twitter. Hann hefur meðal annars
kallað stofnanda Huffington Post,
Arianna Huffington, „óaðlaðandi
að innan sem utan“ og bætti við að
hann skildi hvers vegna maðurinn
hennar hefði farið frá henni fyrir
karlmann. Þá hefur hann sagt á
Twitter að Katy Perry hljóti að hafa
verið ölvuð þegar hún giftist Russell
Brand. Á NBC var Melania spurð
hvaða ávana hún vildi að eigin
maðurinn léti af – ef hún mætti
velja. Hún svaraði því til að hann
mætti hætta að nota Twitter. n
„Ég stend gallhörð á mínu“
n Innflytjandinn Melania Trump gæti orðið forsetafrú n Talar fimm mál og vill að Trump hætti á Twitter
Baldur Guðmundsson
baldur@dv.is
„Ég verð ég sjálf.
Ég verð ólík öllum
fyrri forsetafrúm og
mun hjálpa bæði konum
og börnum. Þau eru
framtíðin
Melania Trump
Þykir indæl Kunnugir
fara fögrum orðum um
mögulegt forsetafrúarefni.
MynD EPA
Klif ehf • Grandagarði 13, Reykjavík
Sími 552-3300 • www.klif.is
Gróðurhús í úrvali
Kjöreign ehf - Ármúla 21 - 108 Reykjavík
Sími: 533-4040 - www.kjoreign.is
Dan Wiium Hdl, lögg.
fasteignasali, Sími 896-4013
Ólafur Guðmundsson
Sölustjóri, sími 896-4090
Þórarinn Friðriksson Lögg.
fasteignasali, sími 844-6353
Rakel Salóme Eydal
Skjalagerð
Sigurbjörn Skarphéðinsson
Lögg. fasteignasali, skjalagerð
Kjöreign fasteignasala – traust og örugg þjónusta í 40 ár