Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Síða 27
Umræða Stjórnmál 27Helgarblað 29. apríl–2. maí 2016 Tjarnargata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3909 • www.101.is • 101@101.is Lei fur Hr afn hil du r Gu ðrú n K ris tín 82 0 8 101 K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f a s t e i gna s a l i Stu rla 89 9 9 08 3 D aði 82 0 8 103Eym un du r 69 0 1 42 2 Tjarnargata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3909 • www.101.is 101@ i Lei fur Hr afn hil du r Gu ðrú n K ris tín 82 0 8 101 K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f a s t e i gna s a l i Stu rla 89 9 9 08 3 D aði 82 0 8 103Eym un du r 69 0 1 42 2 Tjarn rgata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3909 • www.101.is • @101.is Lei fur Hr afn hil du r Gu ðrú n K ris tín 82 0 8 101 K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f a s t e i gn sa l i Stu rla 89 9 9 08 3 D aði 82 0 8 103Eym un du r 69 0 1 42 2 Tjarnargata 4 • 101 Reykjavík • Sími 511 3101 • Fax 511 3 09 • www.101.is • 101@101.is Lei fur Hr afn hil du r Gu ðrú n K ris tín 82 0 8 101 K r i s t í n S i gu r e y S i gu rða rdó t t i r - l ögg i l t u r f t e gn sa l i Stu rla 89 9 9 08 3 D aði 82 0 8 103Eym un du r 69 0 1 42 2 Sig rún 85 7 2 267 Þar sem hjartað slær Lei fur 82 0 8 100 ÞAR SEM HJARTAÐ SLÆR Kláraðu dæmið á asus.dv.is *Um er að ræða prent- og vefáskrift að DV á 3.190 kr/mán. Skuldbinding til 36 mánaða, greitt með kredikorti. Vantar þig far- tölVu? Með því að gerast áskrifandi að DV núna færðu Asus fartölvu Bullandi ágreiningur um fjölda mála n Fullkomlega óraunhæft að ljúka öllum málum Þingmálaskráin er eins og innantómt kosningaloforð Eyjan sendi eftirfarandi spurningar á formenn allra þingflokka stjórnarand- stöðuflokkanna varðandi þingmálalista ríkisstjórnarinnar. 1 Hvaða mál á þingmálalistanum er nauðsynlegt að verði samþykkt á þessu þingi? 2 Hvaða mál ríkisstjórnarinnar eru þingmenn stjórnarandstöðunnar tilbúnir að styðja? 3 Hvaða málum eru þingmenn tilbúnir að til að veita hlutleysi, þ.e. að standa ekki í vegi fyrir samþykkt þeirra? 4 Hvaða málum munu þingmenn berjast gegn? 5 Hversu raunhæft er að leggja upp með þingmálalista sem telur ríflega 70 mál þegar ætla má, samkvæmt yfirlýsingum stjórnarflokkanna, að kosið verði í haust? Svör flokkanna voru mjög misítarleg. Að- eins Björt framtíð svaraði spurningunum lið fyrir lið en hinir flokkarnir með snubb- óttari hætti. Vinstri græn segja listann ekki raunhæfan enda séu á honum stór þingmál sem enn hafi ekki verið lögð fram og sum hafi jafnvel ekki enn verið skrifuð. „Vafalaust eru ýmis mál á listanum ágæt og önnur nauðsynleg en flest mega bíða haustsins og hvaða ríkisstjórn sem er gæti leitt þau til lykta að baki kosningum.“ Afar fá mál sem liggur á Svar Samfylkingarinnar er í sama dúr, svo líkt raunar að velta má fyrir sér hvort sam- ráð hafi verið milli flokkanna tveggja við samningu svaranna. Þar segir, líkt og í svari Vinstri grænna, að listinn sé óraunsær sökum þess að viðamikil lagafrumvörp séu á honum sem ekki hafi enn verið skrifuð. „Það eru ýmis mál á listanum ágæt og önnur nauðsynleg en afar fá sem ekki mega bíða haustsins.“ Píratar gera nokkuð betri grein fyrir sinni afstöðu. Ljóst sé að ríkisstjórnin þurfi sjálf að forgangsraða þeim málum sem sé þjóðfélagslega brýnt að verði að lögum fyrir þinglok, enda séu fáir þingdagar eftir. „Þegar ríkisstjórnin hefur lagt fram raunhæfan málalista þá er hægt að fara út í umræður um hvað sé raunhæft að klára á þessu þingi. Ljóst er að það er ágreiningur á milli Framsóknarflokks og Sjálfstæð- isflokks um stór mál. Vert er að minna á að þetta er óskalisti, nánast eins og innantómt kosningaloforð sem allir vita að verður aldrei að veruleika á svo skömm- um tíma. Píratar hafa verið talsmenn vandaðrar stjórnsýslu og lagasetningar og það kann ekki góðri lukku að stýra að ætla að keyra flókin og erfið mál í gegnum lagasetningu á svo skömmum tíma.“ Góð mál inni á milli Líkt og fyrr segir eru svör Bjartrar framtíðar ítarlegust. Í þeim kemur fram að ekki sé hægt að taka afstöðu til mála sem ekki séu komin fram og þannig sé háttað um fjölda málanna á listanum. Mörg málanna séu einnig enn til umfjöllunar í nefndum þingsins og því séu afdrif þeirra ekki ljós. „Það eru góð mál þarna inni á milli sem eru langt komin og við erum ánægð með, svo sem útlendingalögin. Greiðsluþátttaka sjúklinga er mikilvægt mál og eins munum við að sjálfsögðu styðja mál sem varða losun hafta.“ Munu ekki kyngja búvörulögum Björt framtíð mun hins vegar, sam- kvæmt svörum flokksins, gera verulegar athugasemdir við búvörusamninga og breytingar á búvörulögum. Þau mál séu þó ekki enn, frekar en fjöldi annarra, komin inn í þingið. „Við eigum síðan eftir að sjá hvort mál Sigmundar Davíðs um samein- ingu Þjóðminjasafns og Minjastofnunar verði einhvern tíma sett á dagskrá en við erum mjög gagnrýnin á það. Of snemmt er að segja til um mál eins og breytingar á lögum um LÍN og almannatryggingar sem við höfum ekki séð.“ Þá segja þingmenn Bjartrar framtíðar að ekki sé raunhæft að leggja fram svo umfangsmikinn lista þingmála í ljósi þess að kjósa eigi í haust. „Mörg málanna hefðu átt að vera löngu komin fram ef það er vilji ráðherra að ná þeim í gegn. Þá hefur rík- isstjórninni ekki tekist að rökstyðja hvers vegna hún þurfi að klára öll þessi mál fyrir kosningar.“ Markmiðið að klára öll málin Ásmundur Einar Daðason, þingflokks- formaður Framsóknarflokksins, segir að markmiðið sé að klára afgreiðslu mála sem á þingmálalistanum séu. Það sé algjörlega skýrt. Spurður hvaða mál gætu hugsanlega beðið ítrekar Ásmundur að til standi að ljúka afgreiðslu sem flestra mála áður en boðað verði til kosninga. „Það á að geta ríkt sátt um mörg þeirra mála sem eru á þessum þingmálalista en stjórnar- andstaðan verður sjálf að svara því hvað hún muni styðja og hvað ekki,“ sagði Ásmundur spurður um hvaða viðbrögðum hann ætti von á frá stjórnarandstöðunni varðandi málaskrána.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.