Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Síða 6
Vikublað 10.–12. maí 20166 Fréttir
s: 426 5000 - booking@bbkefairport.is - bbkeflavik.com
Ertu á leið í flug?
13.900 kr. fyrir 2 með morgunmat
Við geymum bílinn frítt, keyrum þig á
flugvöllinn og sækjum þig við heimkomu
Láttu fara
vel um þig
nóttina fyrir
eða eftir flug
og gistu hjá
okkurNý rúm frá RB
rúm
1. maí til 15. júní
Tapar áTTa milljörðum
á Vaðlaheiðargöngum
Gamma segir þjóðhagslegt tap ganganna nema rúmum átta milljörðum króna
Þ
jóðhagslegt tap af
Vaðlaheiðargöngum mun
nema rúmum átta milljörð-
um króna. Tafir á verkinu og
aukinn stofnkostnaður hafa
ásamt öðru leitt til þess að tapið er
nú tæplega tvöfalt meira en spáð var
í árslok 2012.
Þetta segir Gísli Hauksson, for-
stjóri Gamma, en fjármálafyrirtækið
hefur unnið nýtt mat á þjóðhagsleg-
um áhrifum Vaðlaheiðarganga. Eldra
mat sem unnið var með sömu að-
ferðafræði sýndi tap upp á 4,3 millj-
arða króna. Niðurstöður þess gáfu til
kynna að framkvæmdin stæðist ekki
ásættanlega kröfu um þjóðhagslega
arðsemi.
„Stofnkostnaður verkefnisins hef-
ur aukist um að minnsta kosti 1,5 til
tvo milljarða króna miðað við það
sem komið hefur fram í fjölmiðl-
um. Vatnslekinn einn og sér hefur
skilað tapi upp á um tvo milljarða.
Síðan bætum við við töfunum og fjár-
magnsgjöldunum sem leggjast ofan
á vegna þeirra, og öðrum þáttum, og
þetta gefur okkur um það bil rúmlega
átta milljarða króna sem er þá þjóð-
hagslega tapið af þessu verkefni út frá
þessari aðferðafræði,“ segir Gísli.
Uppfærðu líkanið
Aðferðafræðin sem Gísli vísar til
byggir á arðsemislíkaninu Teresu
sem danska samgönguráðuneytið
hefur þróað og notað til að forgangs-
raða fjárfestingum í samgöngum
eftir þjóðhagslegri arðsemi. Líkanið
byggir á félagshagfræðilegum grunni
og tekur til atriða eins og stofnkostn-
aðar, rekstrar- og viðhaldskostnaðar
og ávinningi notenda. Árið 2012 verð-
launaði Gamma meistararitgerð hag-
fræðingsins Vilhjálms Hilmarssonar
sem komst að þeirri niðurstöðu að
þjóðhagslegt tap ganganna næmi 4,3
milljörðum samkvæmt aðferðafræði
Teresu.
„Við byggðum á sambærilegri að-
ferðafræði og uppfærðum líkanið
miðað við stöðuna í dag. Þættir eins
og að opna átti göngin á þessu ári, en
verða nú ekki opnuð fyrr en í fyrsta
lagi á næsta ári, eða mögulega 2018,
hafa til að mynda áhrif. Þetta byggir á
miklu stærri þáttum en eingöngu það
að horfa á verkefnið eitt og sér, held-
ur einnig áhrif þess á nærumhverfið,
þjóðarbúið, skattgreiðendur, ríkis-
sjóð og fórnarkostnað fjármagns. Það
er í hvað annað hefði verið hægt að
ráðstafa þessum fjármunum ríkisins,“
segir Gísli og heldur áfram:
„Það er hins vegar mikilvægt að
taka fram að þetta verkefni mun skila
miklum ábata fyrir svæðið sem mun
njóta góðs af þessu og það er ekki
hægt að draga dul á það. En ef mað-
ur skoðar stöðuna út frá þjóðhagsleg-
um áhrifum verkefnisins þá er staðan
í heild ekki eins jákvæð.“
Vilja Sundabraut
Aðspurður hvers vegna Gamma sýni
þjóðhagslegum ábata Vaðlaheiðar-
ganga áhuga svarar Gísli að fjár-
málafyrirtækið hafi meðal annars
fjallað um verkefnið við kynningar á
hugmyndum þess um innviðafjár-
festingar. Fyrirtækið hefur ásamt lög-
fræðistofunni Lex unnið að því að
setja saman vinnuhóp sem hefði það
hlutverk að skoða hvort hægt sé að
koma á framkvæmd við Sundabraut.
Samkvæmt útreikningum Gamma
nemur uppsafnað þjóðhagslegt tap
þess að ekki var ráðist í framkvæmd-
ir við Sundabraut á árunum 2005 til
2007 um 15 til 20 milljörðum króna.
„Við höfum skrifað töluvert um
Sundabrautina og erum að reyna að
þrýsta aðeins á það verkefni og koma
því áfram. Þetta hefur ekkert með það
að gera að það sé ekki hægt að velja
samgönguverkefni út frá pólitískum
forsendum en með þessu líkani ligg-
ur að minnsta kosti fyrir hvað verk-
efni eru þjóðhagslega hagkvæmust.
Við munum að þegar ákvörðunin um
Vaðlaheiðargöng var tekin var ekki
farið í neina alvöru úttekt á þjóðhags-
legum ábata og þetta var á endanum
hrein og klár pólitísk ákvörðun sem
var tekin með frekar skömmum fyrir-
vara að undirlagi þingmanna svæðis-
ins,“ segir Gísli. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Tafist Stjórn Vaðlaheiðarganga gerir ráð fyrir að þau verði komin í notkun í fyrsta lagi í
desember 2017 eða ári á eftir áætlun. Heitt og kalt vatn í báðum endum ganganna hafa gert
verktökum þar lífið leitt og ófyrirséður kostnaður aukist um rúma tvo milljarða króna. Ljóst
er að 8,7 milljarða króna lán ríkisins til verksins dugar ekki. Mynd ValGeir BerGMann
Ár á eftir áætlun
Stjórn Vaðlaheiðarganga
gerir ráð fyrir að göngin verði
komin í notkun í fyrsta lagi í
desember 2017 eða ári á eftir
áætlun. Heitt og kalt vatn
í báðum endum ganganna
hafa gert verktökum þar lífið
leitt og ófyrirséður kostnaður
aukist um rúma tvo milljarða
króna miðað við upphaflegar
áætlanir. Ljóst sé að 8,7
milljarða króna lán ríkisins til
verksins dugi ekki og ekki sé
sjálfgefið að veggjöld standi
að fullu undir kostnaði við
gerð ganganna.
Forstjóri Gamma Gísli Hauksson bendir á
að ófyrirséður kostnaður Vaðlaheiðarganga
hafi aukist um milljarða króna. Mynd arnþór B.
Sjálflímandi
hnífaparaSkorður
Hjálpa þér að halda öllu í
skorðum í skúffum. Einnig
sjálflímandi filt til að klæða
skúffur og filt með verjandi
efni svo ekki falli á silfur
og silfurplett. Við eigum
líka fægilög, fægiklúta og
ídýfulög til að hreinsa.
Sendum í póstkröfu
Gullkistan
Frakkastíg 10 - Sími 551 3160 - gullkistan@vortex.is - www.thjodbuningasilfur.is