Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2016, Qupperneq 17
Graníthöllin er í rúmgóðu og fal-legu húsnæði að Bæjarhrauni 26 í Hafnarfirði þar sem vel er tekið á móti öllum, enda ávallt heitt á könnunni á þeim bænum og bakkelsi í boði. Heiðar Steinsson, eigandi Granít- hallarinnar, segir að nú sé að fara í hönd sá árstími þegar auðveldara sé að eiga við lagfæringar á legsteinum. „Við erum með einstaklega gott tilboð þessa dag- ana; allt innifalið með öllum legsteinum, með stærri steinum eru granít lukt, granítvasi, batterískerti, áletrun og uppsetning á höfuðborgarsvæðinu innifalin, með minni steinum er áletrun og uppsetning innifalin. Við ráðleggj- um fólki að vera snemma í því að panta steina svo við eigum möguleika á að setja þá tímanlega upp fyrir sumarið. Legsteinar sem lengi hafa staðið úti í alls kyns veðri og eiga það til að láta á sjá, eins og við Íslendingar þekkj- um. Það gerist stundum að ýmis óhreinindi festast við steininn og oft og tíðum dofnar letur eða málning flagnar úr – svo áletrun- in verður jafnvel ólæsileg. Frost og þíða, með mikilli bleytutíð inni á milli, get- ur komið róti á jarðveginn og valdið því að leg- steinar taki að halla,“ segir hann. Viðgerðir og viðhald legsteina Þar koma starfs- menn Granít- hallarinnar sterkt inn; því bæði viðhald og þrif eru mikilvægir þættir í starf- seminni. „Hjá okkur vinna menn með áralanga reynslu og þeir eru vel tækjum búnir. Granít höllin tekur að sér viðgerðir og viðhald allra tegunda legsteina, þrif og endurmálun leturs, auk þess að rétta við steina og styrkja jarðveg eða undirstöður. Það reynist fólki mjög vel að leita til fagað- ila með reynslu á þessu sviði. Við hvetjum aðstandendur til þess að huga að þessum vorverkum sem fyrst.“ Uppsetning felst í því að koma legsteini á sinn stað. Vinnu- aðferð Graníthallarinnar er sú að grafið er niður í leiðið og þar í settur hellusandur til að mynda sterka undirstöðu fyrir leg- steininn og beðramma, þegar það á við. „Við setjum upp legsteina á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannabyggðar- lögum og pökkum fyrir landsbyggðina þar sem við sendum um allt land.“ Fallegir legsteinar Að sögn Heiðars býð- ur Graníthöllin fallega og vandaða legsteina og fyrsta flokks þjónustu á samkeppnishæfu verði. „Graníthöllin býður upp á fjölbreytt úrval legsteina úr graníti. Um er að ræða allt frá einföldum og klassískum legsteinum, upp í skraut- lega steina með miklum útskurði. Í versl- un okkar að Bæjarhrauni 26 erum við með yfir hundrað gerðir af legsteinum og ef þú finnur ekki það sem þú leitar að er ekkert mál að sérpanta, eftir ósk- um hvers og eins. Það er ekki dýrara og því ættu því allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi,“ segir Heiðar að lokum. Sérhæfðir í að lagfæra legsteina með öllum legsteinum allt innifalið Bæjarhrauni 26, hafnarfirði Sími 555 3888 granithollin.iS öll okkar verð miðaSt við fullBúinn Stein með uppSetningu 329.000 kr. Áður: 433.350 kr. 313.000 kr. Áður: 413.350 kr. 385.000 kr. Áður: 503.350 kr. 149.000 kr. Áður: 227.050 kr. 270.000 kr. Áður: 351.550 kr. 304.000 kr. Áður: 402.350 kr. 268.620 kr. Áður: 406.900 kr. 188.100 kr. Áður: 297.300 kr. 188.100 kr. Áður: 297.300 kr. 539.900 kr. Áður: 746.000 kr. 297.420 kr. Áður: 442.900 kr. *F rí up ps et ni ng m ið as t v ið u pp se tn in gu á h öf uð bo rg ar sv æ ði nu . M eð fy rir va ra u m p re nt vi llu r o g up ps el da r v ör ur . nr . 1 16 -5 nr . 1 16 -5 nr . 1 04 nr . 1 18 nr . 1 13 nr . 2 02 1 nr . G S1 00 2 nr . 2 04 2 nr . 2 04 6 nr . 2 02 0 nr . 1 29 -3 Einn spörfugl fylgir Einn spörfugl fylgir Þessa dagana býður Graníthöllin upp á sérlega hagstætt tilboð. Veglegur kaupauki fylgir öllum legsteinum. Áletrun og uppsetning fylgir í verði. Ígrafin mynd og spörfugl fylgir minni steinum og ígrafin mynd, granítvasi, lukt og batterískerti fylgja stærri steinunum. Starfsmenn Graníthallarinnar sjá svo um að koma honum fyrir á leiði viðkomandi. Sú þjónusta er innifalin sé uppsetning innan Stór- Reykjavíkursvæðisins, en viðbótargjald bætist við sé ferðinni heitið út á landsbyggðina. Granítlukt fylgir öllum steinum nema þeim sem eru með luktargati sem granítluktin passar ekki í, þeim steinum fylgir Rossato bronslukt. Verðtilboð á legsteini með öllu innföldu er frá kr. 139.000,- fyrir eftir fyrir eftir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.