Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 6
Helgarblað 10.–13. júní 20166 Fréttir
E
f skipulagsyfirvöld leyfa þetta
laxeldi þá munum við skoða
allar lagalegar leiðir til að
fá það stöðvað. Það er alveg
klárt,“ segir Jón Helgi Björns
son, formaður Landssambands
veiðifélaga, um áform Hraðfrysti
hússins Gunnvarar (HG) um fram
leiðslu á 6.800 tonnum af laxi í sjó
kvíum í Ísafjarðardjúpi.
„Þetta er prófmál um hvort þær
umhverfisreglur sem gilda í landinu
verndi svona litlar ár eins eru þarna í
djúpinu. Eða er það virkilega þannig
að leyfilegt sé að ógna slíku lífríki,“
segir Jón.
Samþykkti tillöguna
Skipulagsstofnun samþykkti í apríl
síðastliðnum tillögu Háafells ehf.,
dótturfélags Gunnvarar, um mats
áætlun á umhverfisáhrifum sjókvía
eldisins. Féllst stofnunin á tillöguna
með athugasemdum eins og þeim að
útgerðarfyrirtækið þurfi í frummats
skýrslu til hennar að lýsa ítarlega
þeirri viðbragðsáætlun sem fylgt
verður ef eldislax sleppur frá fyrir
tækinu. Einnig hvernig verja eigi að
hann gangi upp í ár sem renna í Ísa
fjarðardjúp. Skýrslan er ekki tilbúin
en Landssamband veiðifélaga sendi
í desember frá sér fréttatilkynningu
þar sem hótað var að leita til dóm
stóla vegna laxeldisáformanna. Jón
Helgi segir sambandið enn bíða
niðurstöðu yfirvalda.
„Málið er í bið hvað það varðar en
við teljum af og frá að það sé löglegt
að hefja þarna eldi á ógeldum löx
um. Við teljum að það að setja upp
eldi á þessum stað gangi í bága við
fleiri en ein lög. Það eru þarna fjór
ar litlar ár sem eru með um 150–
350 laxa meðalveiði. Ef menn setja
þarna eldi með 2,6 milljónir fiska
á hverjum degi verður það umfang
sem þessi stofn mun ekki þola vegna
erfðamengunar og lúsamengunar
sem fylgir svona eldi. Við ætlum því
að hinkra og sjá hver niðurstaða yfir
valda verður,“ segir Jón.
Farið að lögum
Hraðfrystihúsið ætlar sér að nota
kynbættan eldisfisk, upprunninn frá
Noregi, og áformar að eldi hefjist á
næsta ári. Fyrirtækið hefur rekið eldi
á þorski og regnbogasilungi í Ísa
fjarðardjúpi en horfir nú til laxeldis
„til að auka arðsemi fiskeldisstarf
seminnar“. Í tilkynningu LV fullyrti
sambandið að útgerðarfyrirtækið
væri að skjóta sér undan mögulegri
skaðabótaskyldu með því að skrá
rekstur verkefnisins undir dóttur
félaginu Háafelli. Í tilkynningu sem
birtist á vef Gunnvarar í desember
segir að fyrirtækið hafi í öllu um
sóknarferlinu farið að lögum og að í
lögum um fiskeldi séu gerðar kröfur
um eigin fjármögnun eldisaðila. Þar
gildi sömu reglur um Gunnvöru og
Háafell.
„Þar sem Gunnvör, sem er gríðar
lega fjárhagssterkt félag, setti fiskeldið
í sér félag og takmarkast þar með
ábyrgðin við hlutafé dótturfélagsins.
Við erum að benda á þá staðreynd að
það sé því ekki það afl á bak við hugs
anlegar bótakröfur vegna umhverfis
vandamála eins og var þegar félagið
var með þetta sjálft á höndum,“ segir
Jón Helgi. Forsvarsmenn Hraðfrysti
hússins Gunnvarar vildu ekki tjá sig
um málið þegar eftir því var leitað.
Vísuðu þeir í áður nefnda tilkynningu
á vef útgerðarinnar. n
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Ætla sér að stöðva
laxeldi Gunnvarar
n Veiðifélög óttast áhrif sjókvíaeldis í Ísafjarðardjúpi
og bíða niðurstöðu skipulagsyfirvalda
Ísafjörður Skipulagsstofnun
féllst í apríl á tillögu Háafells,
dótturfélags HG, um áætlun
um mat á umhverfisáhrifum
sjókvíaeldis. Landssamband
veiðifélaga gagnrýnir verk-
efnið harðlega.
Formaður LV Jón Helgi
Björnsson segir sjókvía-
eldið koma til með að
hafa áhrif á fjórar litlar
ár í Ísafjarðardjúpi.
adams hágæða bón
og hreinsivörur
auðvelt
í notkun
frábær
ending
H Jacobsen eHf - ReykJavíkuRvegi 66 - s: 699 3135
Kraftmikil fasteignasala sem fer ótroðnar slóðir
af því að þín
fasteign
skiptir máli