Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Side 12
Helgarblað 10.–13. júní 201612 Umræða Stjórnmál E llefu þingmenn hafa stað- fest að þeir hyggist ekki sækjast eftir áframhaldandi setu á þingi á næsta kjör- tímabili sem hefst, ef að lík- um lætur, í haust. Samanlögð þin- greynsla þeirra er 107 ár. Útlit er fyrir að eftir kosningar verði aðeins sex þingmenn á þingi með meira en 10 ára starfsreynslu. Nokkrir þingmenn eru enn óákveðnir. Reynsluboltum fækkar Á meðal þeirra sem láta af þing- mennsku eru reynsluboltar á borð við Einar K. Guðfinnsson, Kristján L. Möller, Ögmund Jónasson og Katrínu Júlíusdóttur. Af þessum þingmönnum hefur Einar setið í 24 ár á þingi, Ögmundur í 19 ár, Kristján í 17 ár og Katrín í 13 ár. Með þessum fjórum þingmönnum hverfur 73 ára samanlögð starfs- reynsla, en þau hafa sömuleiðis öll gegnt ráðherradómi. Fimm þing- menn – Brynhildur Pétursdóttir, Frosti Sigurjónsson, Hanna Birna Kristjánsdóttir, Páll Jóhann Pálsson og Sigrún Magnúsdóttir – hverfa á brott eftir aðeins eitt kjörtímabil á þingi, kjörtímabil sem ekki einu sinni spannar heil fjögur ár. Sigrún og Hanna Birna hafa sömuleiðis ráðherraembætti á ferilskrá sinni. Aðrir reynslumeiri þingmenn sem hætta eru Ragnheiður Ríkharðs- dóttir, sem hefur setið á þingi í níu ár, og Róbert Marshall eftir tæplega átta ár. Fyrirvari er gerður við Ragn- heiði þar sem hún hefur einungis tilkynnt að hún ætli ekki að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins en sá kvittur hefur verið á kreiki að hún ætli að ganga til liðs við Viðreisn. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir náðist ekki í hana. Tveir eftir frá 20. öldinni Það er því ljóst að þeir verða einung- is tveir þingmennirnir á næsta kjör- tímabili sem með réttu kallast reynsluboltar – að því gefnu að þeir nái kjöri. Steingrímur J. Sigfússon, sem fljótlega fer að vinna sér inn viðurnefnið Strom Thurmond* Ís- lands, ætlar a gefa kost á sér aftur, en hann hefur setið á þingi frá ár- inu 1983. Þá hefur Össur Skarphéð- insson ekki gefið annað í skyn en að hann haldi áfram, en hann hefur 25 ára reynslu af þingstörfum. Nái þeir kjöri verða þeir einu þingmennirnir sem hófu feril sinn á 20. öldinni. Að þeim undanskildum eru fjórir þing- menn með meira en áratugar þin- greynslu. Birgir Ármannsson (sem reyndar er enn óákveðinn), Bjarni Benediktsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Helgi Hjörvar tóku all- ir sæti á þingi árið 2003. Eins og sagði hér að framan er samanlögð þingreynsla þeirra þing- manna sem eru að hætta 107 ár. Svo við höldum áfram að leika okkur að tölum er samanlögð þingreynsla hinna sem eftir sitja 368 ár. Reynsla Össurar og Steingríms J. vegur þar þungt því samanlögð þingreynsla þeirra er 60 ár. Því má segja að með þeim 11 þingmönnum sem hætta glatist tæplega fjórðungur þing- reynslunnar. Meðalþingreynsla þeirra sem ekki hafa tilkynnt að þeir ætli að hætta er 7 ár, eða minna en tvö kjör- tímabil. Þessi tala mun að sjálf- sögðu verða nokkuð lægri eftir næstu kosningar því gera má ráð fyrir eðlilegri endurnýjun. Sitjandi þingmenn munu ýmist falla í próf- kjörum eða ná ekki inn á þing í þingkosningum og nýir og óreyndir setjast í þeirra stað. Þó er ekki úti- lokað að fyrrverandi þingmenn snúi aftur úr útlegð. Þannig er Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir bæði orðuð við framboð fyrir Viðreisn og Sjálf- stæðisflokkinn. Þorsteinn Pálsson hefur, þrátt fyrir að neita því ítrekað, einnig verið orðaður við Viðreisn og þá mun Álfheiður Ingadóttir einnig vera að velta fyrir sér framboði fyrir VG. Björn Valur Gíslason, varafor- maður VG, ætlar að freista þess að komast aftur á þing og líklegt er að Magnús Orri Schram láti slag standa í Kraganum fyrir Samfylkinguna eftir formannsframboðið. *Strom Thurmond sat í öldunga- deild Bandaríkjaþings í 48 ár sam- fleytt, frá árinu 1954 til 2003. Hann var fyrst kjörinn á þing fyrir demókrata en skipti yfir í Repúblikanaflokkinn árið 1964. n 107 ára rEynsla hvErfur af þingi n Meirihluti þingmanna ætlar að freista endurkjörs n reynsluboltarnir hverfa einn af öðrum Magnús G. Eyjólfsson Freyr Rögnvaldsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.