Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Blaðsíða 37
Helgarblað 10.–13. júní 2016 Menning 29 hugarástand sem tekur á sig efnislegt en hverfult form við og við. Það lifir aðeins jafn lengi og liturinn sjálfur. Ríkið hefur vakið sterk viðbrögð víð- ast þar sem það hefur holdgerst. „Þegar ég málaði ísjakann í Græn- landi kom lögreglan inn á hótelher- bergið mitt og skipaði mér að þrífa upp. Ég fór eiginlega bara að hlæja, hvernig á ég að þrífa upp lit af ísjaka sem flýtur fimm mílur á klukkustund frá landinu? Eftir mánuð verður ís- jakinn kominn til Kanada en er þá orðinn að klakamola! En ég gekkst nú samt við því að þrífa eftir mig, en setti það sem skilyrði að danska ríkið tæki sig til og myndi þrifi upp kjarnorkuúrgang frá Thule-her- stöð Bandaríkjamanna í norðvestur Grænlandi – ég heyrði ekkert meira frá þeim,“ segir Marco og glottir. „Hér á landi gildir það sama. Ég skal lofa að gera þetta aldrei aftur ef þið hættið að menga hverinn sjálf! Ef þið hættið að stunda mengandi álbræðslu, hættið að setja upp aug- lýsingar sem hvetja fólk til að fljúga til landsins,“ segir Marco og leggur áherslu á hvernig ferðamannaiðnað- urinn spillir náttúru Íslands. „Þið eruð að eyðileggja náttúr- una, þið leggið vegi yfir hálendið fyrir ferðamannarútur, þið flytjið marga tugi koltvíoxíðspúandi rúta að Geysi á hverjum degi, þær eru í gangi á meðan ferðamenn kasta smápeningum í hverina. Það snýst hins vegar allt um peninga. Þannig skapast þetta tvöfalda siðgæði.“ Spegill fyrir samfélög Sérðu gjörninginn sjálfan eða bara ljósmyndina af bleikum goshver sem listaverk? „Gjörningurinn er listaverk. At- burðurinn er bara eins og gjörninga- listaverk. Hann hverfur hins vegar mjög fljótt og því skráset ég hann á einhvern hátt, til dæmis með ljós- myndum. Ef ég gerði það ekki myndi enginn trúa mér þegar ég segði frá verkinu. Það er því gjörningur annars vegar og skrásetn- ing hins vegar,“ segir Marco. „Picasso sagði einu sinni að list væri raun- veruleiki sem er sýnd- ur með lygi. Þá átti hann við að þegar maður horfir á lands- lagsmálverk er það ekki landslag heldur túlkun á raunveru- veruleikanum, listin er því lygi sem sýnir raunveruleika. Duchamp sagði hins vegar að list gæti verið einhver hluti raun- veruleikans sem er sýndur á nýj- an hátt. Hann setti pissuskálina inn í safn og um leið var hún orðin eitt- hvað annað en pissuskál. Hverinn er á sama hátt raunveruleiki sem varð að listaverki.“ Álítur þú viðbrögð fólks og yfir- valda vera mikilvægan hluta af verk- unum sem þú gerir? „Það er bara óhjákvæmilegt að yfir- völd komi á eftir mér, þar sem ég bið ekki um leyfi. Yfirvöld vilja sýna vald sitt yfir borgurunum. Ég lít hins vegar ekki á þetta sem „aktívisma.“ Það er munur á því að vera aðgerðasinni og listamaður sem gerir málverk í lands- lagið, jafnvel þó að maður viti að þau muni hafi afleiðingar.“ Þér hefur stundum verið legið á hálsi fyrir að gera listaverk til þess eins að sjokkera og ögra, er eitthvað til í því? „Nei, alls ekki. Varðandi landslags- verkin þá er ég langt frá því að vera fyrstur að nota svona ávaxtalit til að lita fyrirbæri. Nicolas Uriburu litaði Grand Canal í Feneyjum á sjöunda áratugnum. Markmiðið með verkun- um mínum er ekki að ögra, en ég vil bjóða fólki birginn og og sýna því fram á eigin hræsni. Ég vil vera spegill fyrir samfélög sem hugsa ekki almenni- lega um umhverfið, ég vil skapa um- ræður svo fólk geti velt fyrir sér eigin gjörðum í gegnum verkin mín. Ég er kannski barnalegur en ég held að ef ég held áfram að hrópa þá muni fólk byrja að hlusta og þannig geri ég gagn. Ég álít að list í dag eigi að snúast um samskipti og staðhæfingar en ekki bara um að gera fólk ánægt. Listaverk eiga ekki bara að passa vel við sófann þinn og fylla þig sjálfsánægju. Þau snúast um innihald frekar en form. Ég vil tala til vitsmunanna frekar en bara að veita fólki þá ánægju sem fylgir því að eiga fallegan hlut á veggnum heima hjá sér.“ Morðhótanir og þjóðernishyggja Hefur þér þá aldrei dottið í hug að reyna að fá leyfi fyrir verkunum? „Nei, því ég get ekki séð að vatnið í goshvernum tilheyri nokkrum manni, það tilheyrir öllum. Það kemur marga kílómetra neðan úr jörðinni, það er enginn fáni á því. Það væri allt annað ef ég brytist inn í húsið þitt og hefði gert þetta þar. Ísland er ekki eign Íslendinga, við erum öll frá þessari jörð, við erum öll afrískir apar í grunninn, öll eins, mis- munurinn er bara kominn til vegna stjórnmála og trúarbragða.“ Komu viðbrögðin frá almenningi hér á landi þér óvart? „Já, það kom á óvart hversu lituð þau voru þjóðernishyggju. Ég fékk mikið af líflátshótunum.“ Virkilega? „Já, alveg heilmikið! „Ekki koma til landsins, helvískur, ég mun drepa þig“ og svo framvegis. Ég var mjög hissa því ég hélt að fólk hérna væri svo frjálslegt, þú veist, Björk og svona … en þið eruð svo lokuð! Það sem truflaði mig mest var þegar ég uppgötvaði að ef nafnið mitt væri „Gunnarsson“ hefði þetta aldrei orðið svona mikið mál. Þetta er af því að nafnið mitt er greinilega útlenskt. Ólafur Elíasson getur hins vegar litað á uppi á fjöllum án þess að nokkur geri mál úr því og Listasafn Íslands kaupir mynd af því fyrir fúlgur fjár. Hann setti miklu meira en fimm lítra í ána, og Íslendingar eru stoltir af honum!“ segir Marco. „Ég held að þið, Íslendingar, ættuð að líta vandlega í spegil og velta fyrir ykkur hvort þið séuð að standa ykkur. Mér finnst það ekki. Þið eigið fallega náttúru en eruð smám saman að eyðileggja hana fyrir peninga.“ n „Markmiðið með verkunum mínum er ekki að ögra, en ég vil bjóða fólki birginn og og sýna því fram á eigin hræsni. The Red Thermal Project (2015) Marco Evaristti hefur sjaldan hlotið jafn hörð viðbrögð og þegar hann litaði Strokk bleikan í fyrra. Green river (1998) Ólafur Elíasson notaði úranín til að lita íslenska á eiturgræna. The Ice Cube Project (2004) Fyrsta verkið í Pink State-seríunni var rauður ísjaki við strönd Grænlands. S HELGASON - Steinsmiðja síðan 1953 Opnunartími Mán - fim 9:00 -18:00 Föstudaga 9:00 - 17:00 Laugardaga 10:00 -14:00 Sími: 557 6677 Netfang: shelgason@shelgason.is www.shelgason.is komin í verslanir Sennilega hollasta rauð a kjöt sem völ er á IP-dreifing | Fornubúðir 3, Hafnarfj. | www.hrefna.is | hrefna@hrefna.is | sími: 577-3408

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.