Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Page 48

Dagblaðið Vísir - DV - 10.06.2016, Page 48
Helgarblað 10.–13. júní 2016 45. tölublað 106. árgangur Leiðbeinandi verð 684 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 RB RÚM ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA FRÁ 1943 RB RÚM DALSHRAUNI 8 HAFNARFIRÐI SÍMI 555-0397 RBRUM@RBRUM.IS WWW.RBRUM.IS Bætum andrúmsloftið með góðum ilm frá My Senso Mikið úrval af ESPRIT handklæðum Ég myndi hundsa hann! Ellý í MBA n Fjölmiðlakonan ástsæla Ellý Ármannsdóttir tilkynnti vinum sínum í áhrifaríkri færslu á Face- book á dögunum að hún væri að setjast á skólabekk í haust. Nánar tiltekið í MBA-nám við viðskipta- fræðideild Háskóla Íslands. Ellý seg- ir í færslunni að með náminu sé hún setja sjálfa sig í fyrsta sæti og láta gamla drauma ræt- ast. Sam- þykkið frá HÍ hafi kall- að fram gleðitár á hvarma. Með Hundinn á hælunum n „Farðu varlega, The Hound er á eftir þér!“ skrifar útvarps- stjarnan Auðunn Blöndal í Twitter-skilaboðum til Jóhann- esar Hauks Jóhannessonar sem kom fram í nýjasta Game of Thrones-þættinum á mánu- dag svo eftir var tekið í hvívetna. Auddi hrósar Jóhannesi fyrir frammistöðuna og birti mynd af sér uppáklæddum sem Hundur- inn frá því í auglýsingatöku fyrir Stöð 2 hér um árið. En Hundur- inn hyggur á hefndir gegn Lem Lemoncloak, sem Jóhannes leikur, og félög- um. Jóhann- es svarar um hæl og segir hundskvik- indið ekki eiga neitt í Lemon- cloak. Hitaði upp í þyrluflugi n Landsliðsmaðurinn Alfreð Finnbogason hitaði upp fyrir EM í Frakklandi með útsýnis- þyrluflugi yfir Íslandi á dögun- um. Á Facebook-síðu sinni, þar sem knattspyrnumaðurinn á ríf- lega 50 þúsund fylgjendur, deil- ir hann glæsilegu myndbandi þar sem honum er fylgt eftir í fluginu með þyrlufyrirtækinu Norður flug. Þar stendur Alfreð sig eins og hetja í landkynningu og viðurkenn- ir sjálfur að hafa verið agndofa yfir fegurð Íslands í útsýnisfluginu. Ekki slæm leið til að gíra sig upp fyrir EM, að næla sér í smá jarð- tengingu við nátt- úruöflin. Handboltakappi með hótel og laxveiðiá Arnar Jón Agnarsson og Freyr Heiðar Guðmundsson eru með stór plön á Raufarhöfn V ið vonumst til að verða inn- spýting í ferðamannabrans- ann á Norðausturlandi hvort sem það er með fjölgun veiði- manna eða hótelinu,“ segir Arnar Jón Agnarsson, stangveiðimaður og fyrr- verandi atvinnumaður í handbolta, sem hefur ásamt Frey Heiðari Guð- mundssyni tekið við rekstri Hótels Norðurljósa og Deildarár á Raufar- höfn. Arnar gerði nýverið tveggja ára samning um að spila með KR í 1. deild karla í handbolta en hann er einnig yfirþjálfari Gróttu. Í ofanálag tóku hann og Freyr við laxveiðiánni í sumar af Svisslendingnum Ralph Doppler sem hafði leigt hana í tæp 30 ár. Gerðu þeir tíu ára leigusamn- ing en fá að reka hótelið fram á haust. Eigandinn, sveitarfélagið Norður- þing, ætlar þá að selja reksturinn og Arnar segir nánast öruggt að þeir fé- lagar leggi fram tilboð. „Við erum núna að byggja við veiðihúsið sem er líklega fyrsta hús- ið sem hefur verið byggt þarna í 20 ár. Við erum að horfa til lengri tíma og ætlum að koma ánni í þann klassa sem hún á skilið að vera í. Doppler leigði hana út einungis 30 daga á ári og hún því verið vannýtt. Við teljum hana eiga mikið inni og að hún sé lítil, falin perla sem geti gefið gríðar- lega góða veiði,“ segir Arnar sem er einnig leigutaki Laxár á Ásum. „Við fengum aftur á móti stuttan samning um hótelið. Það verður selt eftir sumarið en það er mikil gróska í ferðamannaiðnaðinum og Norðausturland er næsti áfanga- staður ferðamanna. Hótel Norður- ljós er eina alvöruhótelið þarna í grenndinni en það er nánast öruggt að við munum leggja fram tilboð. Það er gott að vera á Raufarhöfn.“ n haraldur@dv.is Veiðimaður Arnar Jón Agnarsson segist fullviss um að ferðamannastraumurinn eigi eftir að ná til Norðausturlands í auknum mæli. „Það er gott að vera á Raufarhöfn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.