Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Qupperneq 22
Helgarblað 22.–25. júlí 20162 Verslunarmannahelgin - Kynningarblað
Þjóðhátíðargestir fræðast
um sögu eldgosanna
Þjóðhátíð á Pizza 67
V
ið erum í sjálfu sér ekki að
fá fleiri gesti um verslunar
mannahelgina en vanalega
en við erum hins vegar að
fá fjölmarga þjóðhátíðar
gesti hingað. Það er útbreiddur
misskilningur að hér séu allir bara
að drekka og skemmta sér á Þjóðhá
tíð. Hér er margt fólk sem nýtur þess
að skoða menninguna yfir daginn
og kemur hingað á safnið til að
fræðast um eldgosin. Hins vegar er
það einstakt um verslunarmanna
helgina að þá eru einu gestirnir fólk
sem sækir Þjóðhátíðina, því þá eru
allar ferðir bókaðar fyrir þjóðhá
tíðargesti, hvort sem það er flug eða
með Herjólfi. Aðrar helgar koma
hingað margir erlendir og innlend
ir ferðamenn.“
Þetta segir Kristín Jóhannsdóttir,
forstöðumaður Eldheima, safns
um Heimaeyjargosið og Surtseyjar
gosið, tvo heimssögulega viðburði.
Safnið var opnað í maí árið 2014
og er því tveggja ára gamalt. Um
tvær ólíkar og aðskildar sýningar
er að ræða, Heimaeyjargosið 1973,
sem lagði byggð í Vestmannaeyjum
í rúst tímabundið, og hins vegar
Surtseyjar gosið, en það var neðan
sjávargos á árunum 1963–1967,
sem myndaði Surtsey en eyjan er á
heimsminjaskrá.
„Miðpunktur sýningarinnar um
Heimaeyjargosið eru rústir húss úr
gosinu. Hægt er að skoða það frá
öllum hliðum en auk þess er hægt
að standa við skjá með stýripinna
og ferðast í gegnum húsið til að sjá
hvaða hlutir voru skildir eftir og í
hvaða ástandi þeir komu undan
ösku eftir 40 ár,“ segir Kristín.
Sú staðreynd að enginn lét lífið
af völdum gossins hefur gert sam
starf við íbúa um að gera þessari
sögu skil auðveldara: „Þó að vissu
lega sé sárt að missa heimili sitt er
það ekkert í líkingu við að missa ást
vini. Núna er sá tími runninn upp
að fólk er tilbúið að rifja upp þessa
sögu og vill halda henni til haga fyrir
komandi kynslóðir.“ Kristín seg
ir að sýningarnar um Heimaeyjar
gosið og Surtseyjargosið séu gjör
ólíkar: „Annars vegar eru það þessir
mannlegu hrakningar og hins vegar
eru það vísindin en í Surts
eyjarsýningunni er ferl
ið rakið nákvæmlega
og vísindalegar
upplýsingar fram
settar á aðgengi
legan hátt.“
Eldheimar
eru til húsa
að Suðurvegi/
Gerðis braut 10 í
Vestmannaeyjum,
eða við rætur fjalls
ins þar sem Heima
eyjargosið átti sér stað:
„Fólk tekur þetta í sömu ferðinni,
það gengur jafnvel á gíginn eða fer
um hraunið og fær síðan restina
af sögunni hérna á safninu á eftir,“
segir Kristín.
Nánari upplýsingar um sýn
ingarnar er að finna á Facebook eða
heimasíðunni eldheimar.is. n
P
izza 67 hefur verið í Vest
mannaeyjum í yfir 20 ár
en Sævar Hallgrímsson og
Anný Aðalsteinsdóttir eru
nýtekin við rekstrinum og
standa því frammi fyrir sinni fyrstu
Þjóðhátíð í Eyjum sem veitingafólk.
Búast má við þéttsetnum stað alla
helgina og fjölmörgum sendingum
út til þjóðhátíðargesta auk þess sem
margir munu sækja pítsurnar sín
ar. Pizza 67 er allt í senn veitinga
staður þar sem gestir geta sest að
snæðingi, en einnig er boðið upp á
heimsendingu og að pítsan sé sótt á
staðinn. Veitingastaðurinn er með
45 sæti og um versl
unarmannahelgina
verður einnig opið
út í garð sem er yfir
byggður með tjaldi
en þar eru um 50
sæti til viðbótar.
Það verður því sæta
pláss fyrir tæplega 100
manns á Þjóðhátíð – og
veitir ekki af!
„Frá föstudegi til
sunnudags verður opið hér
frá kl. 10 á morgnana til klukkan
21 því um það leyti tæmist bærinn
og fólk fer inn í dal,“ segir Anný en
staðurinn lagar sig að sjálfsögðu að
þörfum þjóðhátíðargesta. Vanalega
er Pizza 67 í Vestmannaeyjum opin
frá 11 á morgnana til klukkan 22 auk
þess sem alltaf er nætursala um helg
ar á heimsendingum.
„Hér verður þjóðhátíðarstemn
ing yfir daginn og plötusnúðar munu
skemmta á staðnum, við keyrum síð
an á pítsunum og hamborgurum sem
munu renna út í stríðum straumum,“
segir Anný. Hún segir að þetta árið
komi þau ekki til með að hafa mikinn
tíma til að fara inn í dal að skemmta
sér eins og undanfarin ár, því eftir
lokun munu þau þurfa að undirbúa
næsta dag. „Það getur þó verið að
maður nái aðeins að kíkja á sunnu
dagskvöldið,“ segir hún vongóð.
Þau segjast spennt fyrir Þjóðhá
tíðinni, þau búist við sannkallaðri
þjóðhátíðarstemningu á Pizza 67, líkt
og undanfarin ár, enda hefur staður
inn skipað fastan sess hjá mörgum
þjóðhátíðargestum.
Þau eru sammála um að allur
gangur sé á því hvernig fólk nálgast
veitingarnar sínar: „Margir koma á
staðinn og sækja eða snæða á staðn
um. En það eru líka margir sem nýta
sér heimsendinguna,“ segir Sævar.
„Bærinn er líka fullur yfir daginn
á meðan barnadag
skráin stendur yfir
inni í dal og því mun
allt fyllast hér hjá
okkur,“ segir Anný.
Hún er núna í óða
önn að manna vakt
ir fyrir helgina en
hópur af aukastarfs
fólki ræður sig á vaktir
um verslunarmanna
helgina.
En hvað sem
verslunar mannahelginni
líður er Pizza 67 alltaf sígild
ur staður í Vestmannaeyjum og alltaf
mikið að gera. Af vinsælum pítsum
má nefna Pepperoni 67 og síðan
er það pítsan Sendillinn sem þykir
einstök. Innihald hennar er: Ostur,
sósa, hakk, skinka, sveppir, kjúkling
ur, piparostur, beikon – „hún er svo
smurð með sérstakri smurolíu,“ segir
Anný og bætir við: „Þetta þykir virki
lega „djúsí“ pítsa“.
Og svo eru það að sjálfsögðu
brauðstangirnar, þær eru alveg klikk
aðar hérna, enda mjög vinsælar,“
bætir Sævar við að lokum. n
Pizza 67
Heiðarvegi 5
Vestmannaeyjum
Sími: 481-1567
Eldheimar