Dagblaðið Vísir - DV - 22.07.2016, Qupperneq 38
Helgarblað 22.–25. júlí 201622 Menning
Þ
egar Bryan Cranston er kominn
aftur í eiturlyfjabransann finnst
manni eins og hér hljóti að
vera Breaking Bad í bíó á ferð.
En öllu er snúið á haus, hann er lögga
sem þykist vera eiturlyfjasali, og í Jesse-
hlutverkinu er aðstoðarmaður sem er
óheflaður en þó fær í sínu starfi.
Þetta er sönn saga sem gerist á 9.
áratugnum þegar stríðið gegn eitur-
lyfjum var í algleymingi og CIA,
Noriega og Contra-skæruliðar blönd-
uðust inn í málin. Hér er því um að
ræða nokkurs konar raunsæisútgáfu af
Miami Vice, þar sem óhóf Reagan-ár-
anna er sýnt í öllu sínu kókaínpæklaða
og stundum hómófóbíska veldi.
Þetta er þó ekki hefðbundin
„gangster“-mynd, og ofbeldið naumt
skammtað. Allt snýst um peninga-
þvætti, og eins og um 600 Íslendingar
vita er Panama besti staðurinn til að
geyma illa fengið fé. Myndin á því meira
erindi við Íslendinga í dag en búast
mætti við af sögu um suður ameríska
eiturlyfjabaróna á 9. áratugnum.
Leynilögreglumaðurinn samsamar
sig skúrkunum eins og lög gera ráð fyrir
í slíkum myndum, en í stað þess að gera
illmennin að svölum töffurum skín
manneskjulega hliðin í gegn. Cranston
er góður að vanda, en persóna hans er
ekki nógu vel uppbyggð. Hvernig fór
bókhaldari að því að verða svona góð-
ur að villa á sér heimildir meðal stór-
glæpamanna? Og hvers vegna fara
þessir annars varkáru menn að treysta
honum svona mikið?
Myndin nær því
hvorki sömu hæð-
um og Donnie
Brasco, sem hún
minnir dálítið á, né
heldur meðalþætti
af Breaking
Bad. En
hvað gerir
það svo
sem? n
… komdu þá við hjá okkur
Ertu á leið í flug?
Hafnargötu 62, KEflavíK / pöntunarsími 421 4457
Hádegis-tilboð alla daga
GlerborG
Mörkinni 4, reykjavík | SíMi 565 0000 | www.GlerborG.iS
Breaking Bad og
Panama-skjölin
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
The Infiltrator
IMDb 7,4 RottenTomatoes 66% Metacritic 66
Leikstjóri: Brad Furman
Handrit: Ellen Brown Furman
Aðalhlutverk: Bryan Cranston, Diane
Kruger og Benjamin Bratt
Djúpt sokkinn Flestir
þekkja Bryan Cranston
úr sjónvarpsþáttunum
Breaking Bad.
Svanurinn skotinn í Svarfaðardal
Ása Helga Hjörleifsdóttir leikstýrir kvikmynd byggðri á verðlaunabók Guðbergs
F
yrr í mánuðinum hófust tökur
á kvikmyndinni Svanurinn í
leikstjórn Ásu Helgu Hjörleifs-
dóttur. DV fékk að skyggnast
á bak við tjöldin við tökur á
myndinni í Svarfaðardal við Eyjafjörð.
Kvikmyndin Svanurinn er byggð
á samnefndri skáldsögu Guðbergs
Bergssonar, sem hlaut Íslensku bók-
menntaverðlaunin árið 1991. Þetta
er fyrsta kvikmynd Ásu Helgu í
fullri lengd, en stuttmyndir henn-
ar hafa ferðast á hátíðir víða um
heim. Svanurinn segir frá Sól, níu ára
gamalli stúlku sem send er á sveita-
bæ til að vinna og þroskast, en verður
í staðinn lykilþátttakandi í atburðarás
sem hún skilur vart sjálf.
Gríma Valsdóttir leikur stúlkuna,
en Þorvaldur Davíð Kristjánsson og
Þuríður Blær Jóhannsdóttir
fara með önnur aðalhlutverk.
Þá koma Ingvar E. Sigurðs-
son og Katla Margrét Þor-
geirsdóttir einnig við sögu.
Myndin er framleidd af
Vintage Pictures og aðal-
framleiðendur eru Hlín
Jóhannesdóttir og Birgitta
Björnsdóttir. Svanurinn verð-
ur frumsýnd á næsta ári. n
Við stjórnvölinn Þó að Svanurinn sé fyrsta
kvikmynd Ásu Helgu í fullri lengd er hún þraut-
þjálfuð með tökuvélina, hún lærði kvikmyndagerð
við Columbia-háskóla í New York og hefur leikstýrt
nokkrum vel heppnuðum stuttmyndum.
Nánar samstarfskonur Ása Helga hefur
áður leikstýrt Grímu í stuttmyndinni Þú og
ég. í bakgrunni er stórleikarinn Ingvar E.
Sigurðsson.
ACTION! Hin ellefu ára gamla Gríma Valsdóttir
í hlutverki aðalpersónunnar Sólar.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is