Dagblaðið Vísir - DV - 26.07.2016, Síða 30
Vikublað 26.–28. júlí 201626 Fólk
S
andra Ellertsdóttir er aðeins
29 ára gömul en greindist
nýlega með brjóstakrabba-
mein í annað sinn. Hún er
ein þeirra kvenna sem bera
stökkbreytt BRCA-1 gen, en það
þýðir að líkurnar á því að greinast
með brjóstakrabbamein eru 80%.
Blaðakona DV ræddi við Söndru
um lífið og tilveruna, og hvernig
það er að greinast kornung með
lífshættulegan sjúkdóm – í tvígang.
Sandra greindist fyrst árið 2013,
þegar hún var 26 ára: Þá fékk hún
að vita að hún bæri í sér stökkbreytt
BRCA-1 gen og væri þar af leiðandi
í áhættuhópi. „Þegar ég greindist
fyrst var það auðvitað mikið sjokk
og ég þurfti algjörlega að stokka
upp öll mín plön. Öll plön eins og
barneignir þurfa að bíða betri tíma.
Samt upplifði ég alltaf að þetta
væri bara verkefni sem þyrfti að
klára. Þegar ég frétti svo af stökk-
breytingunni þá kom nokkurs kon-
ar skilningur varðandi spurningar
sem höfðu kviknað, eins og: Af
hverju ég?“
Að sigra krabbameinið
En hvernig tilfinning skyldi það
vera að greinast með krabbamein.
„Ég viðurkenni alveg að það fyrsta
sem ég hugsaði þegar ég fékk stað-
fest að þetta væri krabbamein, var
hversu ósanngjarnt mér þótti þetta,
og að ég væri ekki tilbúin til að deyja
strax. En svo fljótlega sættist maður
við greininguna og einbeitir sér að
því að ná bata og byrjar að hugsa að
maður ætli að sigra krabbameinið.“ Sandra ákvað að komast í fyrir-
byggjandi aðgerð á hinu brjóstinu,
en á meðan hún beið greindist
hún með krabbamein í því brjósti.
Þann 21. mars fór hún í skurð-
aðgerð þar sem brjóstið var fjarlægt
og núna er hún hálfnuð í lyfjameð-
ferð. Bataferlinu er þó engan veg-
inn lokið. Alvarlegum veikindum
fylgir að sjálfsögðu vinnumissir og
kostnaður við læknisaðstoð hleyp-
ur á hundruðum þúsunda. Sandra
hafði ekki náð að vinna sér inn full-
an veikindarétt frá því að hún veikt-
ist fyrst 2013, og áhyggjur af fjár-
málum liggja að vonum þungt á
henni. „Síðustu þrjú ár hafa verið
frekar erfið, með 4–5 aðgerðum,
tveimur heimsóknum á bráðamót-
töku, tveimur sýkingum, 12 lyfja-
meðferðum og geislameðferð.“
Draumur um börn
Sandra giftist í vor, en hún og Ólafur
Jakob, maður hennar, eiga þann
draum að eignast börn. „ Barneignir
eru eitt sem þarf að fresta vegna
veikindanna og eitt af því sem mér
fannst erfitt að sætta mig við þegar
ég greindist aftur núna í vor. Lyfja-
meðferðin getur valdið ófrjósemi
og það er erfitt að hugsa ekki um
það, sérstaklega þegar margir eru
að eignast börn í kringum mig.“
Framtíðin er þó björt, og engan
bilbug er að finna á Söndru þrátt
fyrir mótbyrinn. „Ég ætla að ná
bata og halda áfram að berjast. Ég
á að klára lyfjameðferðina núna í
lok ágúst. Svo stefni ég á að ná fyrri
krafti og halda áfram að reyna að
vera heilbrigð og við góða heilsu.
Svo þarf ég að fara í uppbyggingu á
hægra brjóstinu og eftir það er hægt
að pæla í barneignum.“
Hugsar jákvætt
Sandra ráðleggur ungu fólki sem
greinist með alvarlega sjúkdóma
að halda áfram að lifa eins eðlilegu
lífi og hægt er. „Alls ekki loka sig af.
Fara út í göngutúra og umgangast
fólk. Það hljómar kannski afar klisju-
kennt, en samt er ótrúlegt hvað einn
göngutúr getur gert fyrir andlegu
hliðina. Mér hefur líka fundist fínt
að vera ekkert of góð við sjálfa mig.
Ég leyfi mér ekki að vera uppi í rúmi í
heilan dag, fer frekar í sófann. Fer svo
í stutta göngutúra og reyni að hafa
eitthvað fyrir stafni. Mér finnst gott
að hafa plön, þótt það sé plan um
að gera ekki neitt. Ég vakna kannski
klukkan níu, spila tölvuleik til tólf,
borða hádegismat, fer út að ganga
klukkan tvö og svo framvegis. Þannig
líða dagarnir. Það skiptir gríðarlegu
máli að hafa hausinn í lagi, hugsa já-
kvætt og taka einn dag í einu.“
Taka höndum saman
Vinir og ættingjar Söndru standa nú
að söfnun fyrir hana og hafa stofn-
aði Facebook-síðu utan um það.
Síðan heitir Söfnum fyrir Söndru. Á
henni segir meðal annars: „ Sandra
er yndisleg manneskja, dugleg og
hefur ávallt verið hraust. Hún hefur
stundað íþróttir, fótbolta og hlaup.
Hún gekk í hjónaband með sínum
heittelskaða áður en hún hóf með-
ferð í vor en brúðkaupsferðir og
barneignir verða að bíða þar til með-
ferð lýkur.
Léttum undir með Söndru og
styrkjum hana. Margt smátt gerir eitt
stórt og er Sandra slík persóna sem
vert er að styrkja.“
Hægt er að leggja Söndru lið með
því að leggja inn á reikning: 526-14-
405045, kt.121286-2899. n
Sandra er aðeins 29 ára en berst
í annað sinn við krabbamein
„Ég ætla að ná bata og halda áfram að berjast“
Mæðgur í göngu Sandra ásamt móð-
ur sinni, Annabellu Jósefsdóttur Csillag,
þann 8. maí síðastliðinn í Göngum
saman, göngu til styrktar grunnrann-
sóknum á brjóstakrabbameini.
Nýgift! Sandra
og Ólafur Jakob
giftu sig 12. mars
síðastliðinn.
Ragnheiður Eiríksdóttir
ragga@dv.is
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira