Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Síða 8
Vikublað 20.–22. september 20168 Fréttir Skráðu þig í Bed&Breakfast klúbbinn okkar og fáðu betri kjör s: 426 5000 — booking@bbkefairport.is — bbkeflavik.com Ertu á leið í flug? Við geymum bílinn frítt, keyrum þig á flugvöllinn og sækjum þig við heimkomu Stáltech ehf. - tunguhálSi 10, Reykjavík - S: 5172322 CNC renniverkstæði Gerir út báta í hvala- skoðun n eyþór arnalds keypti allt hlutafé special tours í reykjavík í vor n „hvalveiðar fara minnkandi“ Þ etta er áhugaverður geiri í ferðaþjónustunni og sérstak­ lega þegar maður getur farið með ferðamenn út í náttúruna svona stutt frá Reykjavík,“ segir Eyþór Arnalds, fjárfestir og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg, sem hefur keypt ferðaþjónustufyrir­ tækið Special Tours í Reykjavík. Fyrir­ tækið á sér langa sögu og var í fyrra rekið með 79 milljóna króna hagnaði. „Þetta fyrirtæki á sér 20 ára sögu en byrjaði smátt og hefur vaxið jafnt og þétt. Þetta er í raun og veru nýtt verk­ efni fyrir mig. Ég hef ekki verið í ferða­ þjónustu áður en þetta er grein inn­ an hennar sem mér fannst hvað mest spennandi og jákvæð,“ segir Eyþór. Fylgja aukningunni Einkahlutafélag í eigu Eyþórs, Við fjöruborðið, keypti í vor allt hluta­ fé Special Tours sem selur ferðir í hvala­, lunda­ og norðurljósa skoðun frá Reykjavíkurhöfn. Eyþór vill ekki gefa kaupverðið upp en hann hefur tekið sæti í stjórn ferðaþjónustu­ fyrirtækisins ásamt lögmönnunum Atla Birni Þorbjörnssyni og Friðbirni Eiríki Garðarssyni. Fjárfestirinn, sem situr alls í stjórnum 31 fyrirtækis, hef­ ur hingað til komið að rekstri stóriðju­ og iðnfyrirtækja eins og GMR Endur­ vinnslu og Kratus á Grundartanga og er einn hluthafa í kísilverkefni Thorsil í Helguvík. „Flestar höfuðborgir eru þannig að þú þarft að fara langan veg til að kom­ ast í náttúru. Það er aftur á móti heil­ mikið af henni í Faxaflóa og hvalir og norðurljósin sem hafa slegið í gegn. Mér fannst þetta því mjög áhugavert og svolítið fallegt. Ég held það sé óhjá­ kvæmilegt að fylgja þessari aukningu sem er í gangi í ferðaþjónustunni og þess vegna var keypt nýtt skip í vor,“ segir Eyþór. Vísar hann til kaupa Special Tours á hvalaskoðunarskip­ inu Lilju frá Noregi síðastliðið vor sem varð þá fjórða skipið í flota fyrir­ tækisins. Samkvæmt nýbirtum árs­ reikningi þess skilaði það jákvæðri afkomu upp á alls 142 milljónir á ár­ unum 2014 og 2015. Fyrirtækið átti í lok síðasta árs eignir upp á 465 millj­ ónir og skuldaði þá 306 milljónir. Hlynntur hvalveiðum Mun minna veiddist af hrefnu á Faxa­ flóa á síðustu vertíð, sem lauk nú í sumar, en fyrri ár, líkt og kom fram í umfjöllun Fiskifrétta um veiðarnar í síðustu viku. Veiddust þá 46 hrefn­ ur samanborið við 41 árið 2015 en í sumar voru notuð tvö skip en einung­ is eitt árið á undan. Hvalaskoðunar­ samtök Íslands hafa undanfarin ár gagnrýnt hrefnuveiðar á Faxaflóa og bent á að þar sé að finna eitt mikil­ vægast hvalaskoðunarsvæði lands­ ins. Aðspurður segist Eyþór hlynntur sjálfbærum hvalveiðum. „Ég held að sjálfbærar veiðar eigi alltaf rétt á sér en ég tel mikilvægt að þessi vaxtarbroddur, að skoða hvali, fái að njóta sín sem best á Faxaflóa. Ég vona menn að menn nái sátt um þessi mál. Það má segja sem svo að hvalveiðar fara minnkandi en hvalaskoðun er í mikilli sókn.“ n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Special Tours Ferðaþjónustufyrirtækið á fjóra báta og gerir út frá Reykjavík. mynd SiGTryGGur ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.