Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Síða 22
Vikublað 20.–22. september 20166 Áhrifaríkar meðferðir - Kynningarblað
U
m miðja síðustu öld
þróaði dr. John Uplegder
höfuðbeina- og spjald-
hryggjarmeðferð út frá
osteopathiu eftir miklar
vísindalegar rannsóknir. Meðferðin
felst í léttri snertingu til að greina
og hvetja líkamskerfi sem kallað
er „höfuðbeina- og spjaldhryggjar-
kerfið“ sem samanstendur af heila-
og mænuhimnum, heila- og
mænuvökva sem umlykur,
nærir og verndar mið-
taugakerfið. Losað
er um hindranir
og við það eflist
starfsemi mið-
taugakerfis-
ins. Vegna þess
hve vel með-
ferðin styður
við náttúrulega
tilhneigingu lík-
amans til að laga
sig sjálfur er hún í
auknum mæli not-
uð bæði sem fyrir-
byggjandi meðferð
sem og árangursrík með-
ferð við mörgum kvillum. Þar
má nefna höfuðverk/mígreni,
svima, króníska hálsbólgu og
bakverki, magakveisu, ein-
hverfu, króníska þreytu, vefja-
gigt, þunglyndi, kvíða og
margt fleira. Í raun er með-
ferðin að styðja við sjálfs-
heilunargetu líkamans, sama
hvert ástandið er.
Markmiðið er að losa
hindranir til að efla starfsemi
miðtaugakerfisins og losa um
himnu- og bandvefskerfi alls lík-
amans.
Sálvefræn losun tekur
áhrif höfuð beina- og spjald-
hryggjarmeðferðarinnar enn
lengra með því að losa út bæld-
ar tilfinningar sem oft eru leifar af
áfalli eða uppsöfnuðum atvikum.
Meðferðin miðar að heildstæðri
nálgun á heilsu mannsins og geng-
ur út frá því að andleg og líkamleg
líðan sé samtengd:
„Líkamlega og tilfinningalega
erum við ein heild, við vinnum með
manneskjuna sem heild,“ segir Erla
Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari og með-
ferðaraðili hjá Upledger á Ís-
land. „Við erum að burð-
ast með alls kyns bældar
tilfinningar sem eru
að hafa áhrif á heilsu
okkar, hegðun og
samskipti.“
Er það ekki
orðin viðurkennd
staðreynd í lækna-
vísindunum að
andleg líðan og til-
finningar hafi áhrif
á líkamlega heilsu?
„Jú, en heil-
brigðiskerfið er
ekki ennþá að
vinna eftir því. Það
er ekki verið að líta
á fólk sem heild,
nokkuð sem þarf að
gerast í náinni framtíð
og ásamt aukinni samvinnu á
milli heildrænna lækninga og
hefðbundinna. En þetta er allt á
réttri leið.“
Aðspurð segir Erla að höfuð-
beina- og spjaldhryggjarmeð-
ferð hafi ekkert með neitt yfir-
náttúrulegt að gera en hún nálgist
manninn sem heild, án þess að að-
greina tilfinningar frá hinu líkam-
lega. Erla kynntist höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð fyrir um 20
árum í kjölfar krabbameins sem
hún fékk og læknaðist af.
„Ég starfaði sem sjúkraþjálfari
á Greiningar- og ráðgjafarstöðinni,
meðhöndlaði fötluð börn. Í kjölfar
krabbameinsins varð ég meira leitandi
og lærði nálarstungur og höfuð beina-
og spjaldhryggjarmeðferð. Það leiddi
til þess að ég hætti á Greiningar- og
ráðgjafarstöðinni og fór að að vinna
sjálfstætt. Þessi meðferð heillaði
mig bæði vegna þess hvað ég fann
mikinn mun á minni eigin heilsu og
að árangurinn varð miklu meiri og
varanlegri með skjólstæðinga mína.“
Erla rekur skóla í höfuðbeina-
og spjaldhryggarmeðferð og
skyldum meðferðum. Á fyrstu
áföngunum í námi í höfuðbeina-
og spjaldhryggjarmeðferð er
kennt að losa höfuðbeina- og
spjaldhryggjarkerfið og bandvefs-
og himnukerfi líkamans. Á seinni
stigum í náminu er sálvefræn vinna
og samtalstækni kennd til að losa
um tilfinningabælingar sem oft eru
orsök vandamála í líkamanum.
Annars staðar í sérblaðinu má
sjá auglýsingu á námskeiðum sem
Erla heldur, annars vegar í höfuð-
beina- og spjaldhryggjarmeð-
ferð og hins vegar í Visceral Mani-
pulation, en það er meðhöndlun á
innri líffærum og líffærakerfum.
Margvíslegar upplýsingar má
finna á www.upledger.is. n
Líkami og tilfinningar
eru ein heild
Upledger höfuðbeina- og spjaldhryggjarmeðferð
„Líkamlega og
tilfinningalega
erum við ein heild,
við vinnum með
manneskjuna sem heild.