Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.2016, Side 32
Vikublað 20.–22. september 201624 Menning
M
aður sem heitir Ove er
einleikur, unninn upp
úr samnefndri skáld-
sögu sem fyrst kom út
á sænsku ári 2012. Ís-
lenska þýðingin var gefin út ári síð-
ar og vakti strax mikla lukku hjá
lesendum. Til marks um vinsældir
sögunnar þá hefur útgefandi henn-
ar, bókaútgáfan Veröld, nú gert sam-
anlagt sjö endurprentanir á verkinu.
Snúið á þvermóðsku
og þröngsýni
Söguhetja verksins er hinn rúðu-
strikaði tæknifræðingur Ove. Ást-
kær eiginkona hans, Sonja, er ný-
látin og honum hefur verið sagt upp
starfi sínu, sökum aldurs. Hann sér
ekki lengur tilgang með tilveru sinni
og skipuleggur því dauða sinn með
tæknilega og fjárhagslega hagkvæm-
um hætti, líkt og hann hefur ávallt
skipulagt flestar sínar gjörðir í líf-
inu. En hin fjölmörgu reglubundnu
eftirlitsstörf sem hann hefur kom-
ið sér upp með árunum og varða
raðhúsalengjuna sem hann býr í,
trufla þessar fyrirætlanir hans. Ungt
par af erlendum uppruna er að flytja
inn í eitt raðhúsið við götuna ásamt
barnungum dætrum sínum. Fyrstu
kynni þeirra af Ove eru við búferla-
flutningana þegar þeim verður það
á að brjóta regluna um akstur við
raðhúsalengjuna. Að auki tekst
þeim einnig að bakka bílkerrunni
sinni utan í póstkassa Oves. Hann
leynir hvorki vandlætingu sinni né
hneykslun á óskiljan legum skorti
þeirra á almennu verksviti og þekk-
ingu á regluverki staðarins. Á end-
anum hjálpar hann þeim þó að rétta
kerruna af og bakka henni til baka.
Ýmis verkefni tengd þessum og öðr-
um nágrönnum hans taka nú að
hlaðast á hann og þrátt fyrir arfa-
slaka félagsfærni tekst honum að
leysa úr öllum þeim málum sem
upp koma í raðhúsalengjunni og
jafnvel víðar.
Inn í þetta allt saman fléttast svo
frásagnir Ove af lífshlaupi sínu og
ástarsaga hans og Sonju. Hún hafði
hvatt hann til menntunar, umborið
alla sérviskuna í honum og alltaf
tekist að stýra honum í rétta átt,
þrátt fyrir óendanlega þvermóðsku
hans og þröngsýni. Hún var ham-
ingja hans, líf og yndi. Það má ef til
vill helst finna handritinu til foráttu
að þar er freistast til þess að koma
of stórum hluta bókarinnar til skila
í stað þess að kafa örlítið dýpra ofan
í hluta hennar.
Sigurður Sigurjónsson
trúverðugur Ove
Sigurður Sigurjónsson túlkar Ove
með framúrskarandi hætti í þessari
uppfærslu. Það hlýtur að vera erfitt
fyrir vinsælan leikara á hans aldri
að sýna á sér alveg nýja hlið, en hér
finnst mér honum takast að koma
áhorfendum skemmtilega á óvart.
Leikstjórinn, Bjarni Dagur, hefur
slípað frá alla þá takta sem oft hafa
einkennt leik Sigurðar, ekki síst hvað
varðar áherslur og raddbeitingu,
Dæmigerð
Viveca Sten
H
in sænska Viveca Sten er
vinsæll glæpahöfundur og
sjötta bókin í Sandhamn-
seríunni, Hættuspil, hefur
verið ofarlega á metsölulista Ey-
mundsson frá því hún kom út.
Aðalpersón-
urnar eru, líkt
og áður, lög-
fræðingurinn
Nóra Linde og
vinur hennar,
rannsóknarlög-
reglumaðurinn
Thomas
Andreas son.
Óttaslegin kona
kemur til Sand-
hamn en finnst
síðan látin. Thomas rannsakar
málið og Nóra blandast inn í
það. Á sama tíma glímir Nóra
við vandamál í einkalífi. Einkalíf
í norrænum sakamálasögum er
aldrei rólegt og vandræðalaust,
eins og lesendur þessara bóka
vita mætavel.
Bækur Sten reynast yfir-
leitt vera þægileg afþreying,
þótt óneitanlega vildi maður sjá
þar ögn meiri kraft. Það á við
um þessa bók sem er þokka-
lega spennandi og reyndar nálg-
ast lokakaflarnir það að vera
æsispennandi. Það háir Sten
sem höfundi að hún er ekki lipur
stílisti og þar er stirðleiki of áber-
andi á köflum.
Sten er í hópi þeirra norrænu
glæpasagnahöfunda sem gagn-
rýna í bókum sínum kynþátta-
fordóma og hatur á útlendingum,
sem er sannarlega gott og bless-
að, en það er ekki sama hvernig
það er gert. Meinið er að predik-
anir í skáldskap virka aldrei,
sama hversu vel meinandi höf-
undar eru. Sten hættir því miður
um of til að predika.
Hættuspil er ekki slæm glæpa-
saga en heldur ekki sérlega til-
þrifamikil. Þetta er ekki bók sem
heldur lesandanum föngnum frá
fyrstu síðu. Það er helst í síðustu
köflunum sem veruleg spenna
færist í verkið. Aðdáendur höf-
undar, sem eru margir, eru þó
líklegir til að verða ánægðir því
Hættuspil er dæmigerð Vivecu
Sten glæpasaga. n
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Hættuspil
Höfundur: Viveca Sten
Þýðandi: Elín Guðmundsdóttir
Útgefandi: Ugla
365 blaðsíður
Ástarsaga
manns
með of
stórt
hjarta
Bryndís Loftsdóttir
ritstjorn@dv.is
Leikhús
Maður sem heitir Ove
Höfundur: Fredrik Backman
Leikgerð: Marie Persson Hedenius, Johan
Rheborg og Emma Bucht
Þýðing: Jón Daníelsson
Leikstjórn: Bjarni Haukur Þórsson
Leikari: Sigurður Sigurjónsson
Leikmynd og búningar: Finnur Arnar
Arnarson
Lýsing: Magnús Arnar Sigurðarson
Sýnt í Þjóðleikhúsinu