Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Page 6
Vikublað 25.–27. október 20166 Fréttir Meðfjárfestar Björgólfs kaupa í kísilveri Thorsil Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson fjárfesta í verksmiðjunni í Helguvík fyrir 575 milljónir króna F járfestarnir Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson hafa lofað fimm milljónum dala, jafnvirði 575 milljóna króna, til fjármögnunar kísil málmverksmiðju Thorsil í Helguvík. Fjárfestingin mun sam­ kvæmt heimildum DV tryggja þeim um 4,3 prósenta hlut í verkefninu. Björgólfur Thor Björgólfsson, með­ fjárfestir tvímenninganna í breska fjárfestingarfélaginu Novator Partners LLP, tekur ekki þátt í fjár­ mögnun verksmiðjunnar. Stýrir félögum Novator Andri og Birgir Már eru nánustu samstarfsmenn Björgólfs Thors en sá fyrrnefndi sat í stjórn Lands­ banka Íslands í kjölfar einkavæð­ ingar hans fyrir hönd eignarhalds­ félagsins Samson. Félagið var kjölfestufjárfestir í bankanum og í eigu Björgólfs Thors og föður hans Björgólfs Guðmundssonar. Það fór í þrot skömmu á eftir bankanum eða í nóvember 2008. Birgir Már var um tíma framkvæmdastjóri Samson en hefur síðustu ár setið sem stjórnar­ formaður íslenska tölvuleikja­ framleiðandans CCP og í stjórn fjarskiptafélagsins Nova. Breska fjárfestingarfélagið er stærsti einstaki eigandi CCP, í gegnum ís­ lensk dótturfélög, og seldi í byrjun október allt hlutafé sitt í Nova. Samkvæmt heimildum DV koma félög tengd Novator ekki að fjármögnun verksmiðju Thorsil. Andri og Birgir hafi ákveðið að fjár­ festa í verkefninu á eigin vegum. Þegar salan á Nova var tilkynnt sagðist Björgólfur Thor ekki ætla að nota afrakstur hennar, ríflega fimmtán milljarða króna, til fjár­ festinga hérlendis. Ekki náðist í Andra eða Birgi Má við vinnslu fréttarinnar. 13 milljarða hlutafé DV greindi þann 7. október síðast­ liðinn frá því að forsvarsmenn Thorsil myndu ljúka söfnun á þrettán milljarða króna hlutafé síð­ ar í þessum mánuði. Samningar við fjóra lífeyrissjóði, bandaríska fjár­ festingarfyrirtækið Equity Asset Group, og innlenda fag­ og einka­ fjárfesta, biðu undirritunar. Kom þá fram að Lífeyrssjóður verslunar­ manna, LSR, Almenni lífeyrissjóð­ urinn og Frjálsi lífeyrissjóðurinn ætluðu að leggja til samtals tæpa fjóra milljarða króna í hlutafé og Equity Asset Group um 40 milljónir dala eða 4,5 milljarða. Eigendur Thorsil og aðrir íslenskir fjárfestar hefðu skuldbundið sig fyrir því sem vantar upp í 116 milljóna dala hluta­ fé verksmiðjunnar, eða sem nemur 13,2 milljörðum króna. Búið væri að ganga frá lánasamningum við Arion banka, Íslandsbanka, og einn er­ lendan banka, en heildarfjárfesting Thorsil nemur 275 milljónum dala eða 31,6 milljörðum króna. Núverandi eigendur Thorsil eru Northsil ehf. með 61 prósents eignarhlut og Strokkur Silicon ehf. með 39 prósent. Northsil er aftur í eigu Johns Fenger, stjórnarfor­ manns Thorsil, Hákonar Björns­ sonar, forstjóra fyrirtækisins, Einars Sveinssonar, fjárfestis og föðurbróður Bjarna Benediktsson­ ar fjármálaráðherra, og Þorsteins Más Baldvinssonar, forstjóra Sam­ herja. Strokkur er í eigu fjárfest­ isins Harðar Jónssonar en Eyþór Arnalds, fjárfestir og fyrrverandi oddviti Sjálfstæðismanna í Árborg, er framkvæmdastjóri félagsins og stjórnarmaður í Thorsil. Samkvæmt upplýsingum DV hafa eigendur Thorsil tekið ákvörðun um að þeir muni, ásamt öðrum, leggja til það hlutafé sem upp á vantar. Þar af ætli Strokkur Silicon að eiga um 10 prósenta hlut í verksmiðjunni. Samkvæmt hlutafélagaskrá Ríkisskattstjóra hafa eigendur Thorsil nú þegar lagt fyrir tækinu til 852 milljónir króna í hlutafé. n Haraldur Guðmundsson Hörður Ægisson haraldur@dv.is/ hordur@dv.is Helguvík Andri Sveinsson og Birgir Már Ragnarsson verða í hluthafahópi Thorsil. MyNd SiGtRyGGuR ARi ljúffengur morgunmatur alla daga Kaffivagninn / Grandagarði 10, 101 Rvk. Sími: 551 5932 / www.kaffivagninn.is Opið virka daga frá 07:30–18:00 og um helgar frá 09:30–18:00 gamla höfnin Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða Andlitsbað með lúxusmaska eftir húðgerð hvers og eins, þar sem leitast er eftir því að ná fram því besta fyrir húðina þína með hágæða vörum. Frábær slökun og vellíðan.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.