Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Side 20
Vikublað 25.–27. október 20164 Rómantík - Kynningarblað Miðdepill fjölda ástarsagna Héraðsskólinn á Laugarvatni Á stin hefur svo sannarlega fengið að blómstra í gegn­ um árin í Héraðsskólanum á Laugarvatni. Árin 1928– 1996 var þar starfrækt hótel á sumrin og menntaskóli á veturna og var þar vafalaust til ófárra ástarsam­ banda stofnað. Okkar ástkæri rithöf­ undur, Halldór Laxness, á svo meðal annars Héraðsskólanum að þakka að hafa kynnst henni Auði sinni þar sem hún vann þar við hótelstörf á sumrin. Því má segja að þetta glæsilega hús, sem hannað var af arkitekti Íslands, Guðjóni Samúelssyni, hafi ósjaldan verið miðdepillinn í fjölmörgum ást­ arsögum. Vinirnir Sverrir Steinn Sverrisson og Sveinn Pálsson opnuðu húsið á nýj­ an leik árið 2013 og reka þar svokallað Boutique Hostel með veitingastað og ráðstefnuhöldum allan ársins hring. Veitingastaðnum er stjórnað af styrkri hönd franska kokksins Christophe Perrin, sem eldar gómsætan mat úr fyrsta flokks íslensku hráefni. Stefnan er að hafa lítinn og einfaldan matseð­ il þar sem hráefnið fær að njóta sín, auk þess bragðast allt svo miklu betur í sveitinni. „Það er alltaf notalegt að komast úr borginni og heimsækja Bláskóga­ byggð. Hið fullkomna stefnumót hæf­ ist á klassískum gullhring með stoppi í ísbúðinni í Efstadal og hádegisverði í Friðheimum. Eftir það væri dýrlegt að baða sig í laugunum í Fontana Spa. Ævintýragjarnir kjósa kannski frekar að kafa í Silfru á Þingvöllum eða skella sér í snjósleðahasar. En það er alltaf gott að enda góðan dag með ljúffengum kvöldverði hér í gömlu skólastof­ unum í Héró, með gull­ fallegt útsýnið yfir vatnið og Heklu. Einhvers stað­ ar verður maður svo að sofa og í Héraðsskólan­ um bjóðum við gestum upp á virki­ lega notaleg herbergi með glæsilegu útsýni,“ segir Sverrir. Í réttum skilyrð­ um dansa norðurljósin svo róman­ tískan polka fyrir áhorfendur eins og þeim einum er lagið. n Héraðsskólinn á Laugarvatni. Nánari upplýsingar um bókanir og fleira má nálgast á vefsíðu hostels- ins, heradsskolinn.is Héraðsskólinn er einnig áberandi á öllum sam- félagsmiðlum svo sem Facebook, Instagram, Twitter, Pinterest, Youtube og Google+.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.