Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2016, Side 22
Vikublað 25.–27. október 20166 Rómantík - Kynningarblað 18 Rauðar rósir er tíu ára! Tilboð á íslenskum rósum út október 1 8 Rauðar rósir er gamalgróin blómaverslun í hjarta Kópa- vogs. Búðin var stofnuð þann 20. október árið 2006 og hélt því upp á tíu ára afmæli síð- astliðinn fimmtudag. Í tilefni þeirra tímamóta verður nú tilboð á öllum íslenskum rósum út október. Því er um að gera að líta við og grípa með sér nokkrar íslenskar rósir og færa makanum, nú eða til að gleðja sjálf- an sig. „Það kom einmitt einn íslenskur víkingur til mín í dag og keypti af mér búnt af íslenskum rósum. Hann vill hvetja íslenska karlmenn til þess að vera rómantískari og er ég hon- um hjartanlega sammála,“ segir eigandi verslunarinnar, Sigríður I. Gunnarsdóttir, eða Didda eins og hún er oftast kölluð. 18 Rauðar rósir býður einnig upp á heimsendingar- þjónustu á Stór-Reykjavíkursvæð- inu. Hverjum þykir ekki gaman að fá óvæntar blómasendingar? Didda býr yfir áratugareynslu í blómabransanum. „Við höfum alltaf lagt ríka áherslu á að bjóða upp á glæsilegt úrval á íslenskum blómum og gjafavöru sem hentar við öll tæki- færi,“ segir Didda. Ásamt því sem starfsmenn kappkosta að veita við- skiptavinum sínum persónulega og faglega þjónustu, býður búðin upp á fjölbreytta og glæsilega gjafavöru. Meðal þeirra íslensku hönnuða sem 18 Rauðar rósir selur vörur fyrir eru: AUNTS DESIGN, Flóki & Co., IHANNA HOME, heklaíslandi, SveinBjörg, Þóra Sigurþórs, Jóns- dóttir & Co., Magga myndlist, El- ísabet Ásberg, Krista Design, JB art, Hjartalag og hið sívinsæla konfekt frá Hafliða Ragnarssyni í Mosfellsbak- aríi. Fuzzy-kollurinn fæst einnig í 18 Rauðum rósum. Að auki er að finna stórbrotið úrval erlendra framleið- enda og þar á meðal eru gómsætar franskar sælkerarvörur frá Nicolas Vahé. n 18 Rauðar rósir er til húsa að Hamraborg 3, 200 Kópavogi. Hafa má samband í síma 554-4818 eða í gegnum tölvupóst í 18raudarrosir@ 18raudarrosir.is. Nánari upplýsingar má nálgast á vefsíðu 18 Rauðra rósa, www.18raudarrosir.is og á Facebook- síðu verslunarinnar. Náttúruleg heilsulind á einum fegursta stað landsins Jarðböðin í Mývatnssveit eru opin alla daga ársins J arðböðin í Mývatnssveit eru kjörinn áfangastaður í rómantískri innanlands- ferð enda veita þau slökun og vellíðan í stórkostlegri nátt- úrufegurð Mývatns. Böðin eru enn fremur afar heilsusamleg og hafa góð áhrif á húðina. Baðaðstaðan á svæðinu var opnuð árið 2004 en vegna gríðarlegrar fjölgunar gesta undanfarin ár er ætlunin að stækka aðstöðuna til að gera rýmra fyrir gesti. Hönnun við það verk er þegar hafin en áætlað er að framkvæmd- ir hefjist upp úr miðju næsta ári. Að sögn Guðmundar Þórs Birgissonar, framkvæmdastjóra Jarðbaðanna í Mývatnssveit, eru um 85% gesta er- lendir ferðamenn en Íslendingar sækja böðin líka í miklum mæli, ekki síst heimamenn. „Margir gest- anna koma með skemmtiferðaskip- um til Akureyrar og taka dagsferðir þaðan. Einnig fáum við farþega úr Norrænu sem kemur til hafnar á Seyðisfirði,“ segir Guðmundur. Vatnið úr jarðböðunum er frá Kröflusvæðinu. „Hitastig vatns- ins er 37–39 stig en síðan er heitur pottur með 40–41 stiga heitu vatni,“ segir Guðmundur en vegna sístreymis er vatnið ávallt ferskt: „Þetta er ekki saltvatn heldur fersk- vatn úr um 2.000 metra djúpri bor- holu. Gegnumstreymi er stöðugt og því endurnýjast vatnið alltaf og er alltaf hreint.“ Aðdragandinn að stofnun Jarðbaðanna á sínum tíma var sá að heimamenn fóru í gufu- bað á Jarðbaðshólum og tjölduðu þar yfir heitum strók beint upp úr jörðu. Gufubaðið er enn til staðar og situr á hitauppsprettu. Þetta er því náttúrulegt gufubað en gufu- baðsklefarnir eru tveir. Fyrir utan þetta er síðan ágæt- ur veitingastaður á svæðinu, Kvika. Þar er áhersla lögð á létta rétti, til dæmis súpur og salöt. Jarðböðin í Mývatnssveit eru opin alla daga ársins. Á sumrin er opið frá níu á morgnana til miðnættis en á veturna er opið frá tólf á hádegi til tíu á kvöldin. Aðgangseyrir á sumrin er 4.000 krónur en 3.500 krónur á vet- urna. Frítt er fyrir börn yngri en 13 ára. Auk þess eru mörg stéttarfélög og starfsmannafélög með af- slætti og ýmiss konar afsláttarkort eru í boði. n Heimasíða Jarðbaðanna er jardbodin.is og símanúmer er 464- 4411. Allar íslenskar rósir á afslætti! Sælkeravörur frá Nicolas Vahé

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.