Fréttablaðið - 12.05.2017, Qupperneq 8
atvinnumál Forsvarsmenn HB
Granda standa við áform sín um að
hætta botnfiskvinnslu á Akranesi
og verður hún sameinuð starfs
stöð fyrirtækisins í Reykjavík. Hjá
HB Granda og dótt ur fé lögum á
Akra nesi starfa 270 manns, þar af
vinna 86 við botn fisk vinnsl una
sem fá upp sagn ar bréf fyrir næstu
mán aða mót, en allt að 150 störf,
að afleiddum störfum meðtöldum,
munu tapast í byggðarlaginu.
Þessa niðurstöðu tilkynnti Vil
hjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB
Granda, starfsfólki í gær en ástæðan
er fyrirsjáanlegt tap fyrirtækisins af
vinnslunni. Starfs fólkinu, sem er
að stofni til konur, verður boðið
að sækja um önnur störf hjá HB
Granda og dótt ur fé lögum, en þau
störf eru flest öll í Reykjavík. Það til
boð féll í grýttan jarðveg þess starfs
fólks sem nú horfir fram á atvinnu
missi, enda þýðir vinna í Reykjavík
tveggja klukkutíma ferðalög fyrir
starfsfólk.
Þegar málið kom fyrst upp voru
viðbrögð sveitarfélagsins að bjóða til
viðræðna um bætta hafnar aðstöðu
og hvaðeina annað sem gæti orðið
til þess að forsvarsmenn og eigend
ur HB Granda myndu endurhugsa
ákvörðun sína. Faxaflóahafnir gáfu
grænt ljós á þær hugmyndir, en
kostnaður við uppbyggingu hafnar
mannvirkja hefði verið þeirra. Þegar
allt er talið hefði sá kostnaður getað
orðið um þrír milljarðar króna. Mitt
í þessari málaleitan sveitarfélagsins
tilkynnti stjórn fyrirtækisins, og
samþykkti, um 1,8 milljarða arð
greiðslu til hluthafa.
Í tilkynningu HB Granda segir:
„For ráða menn Akra nes kaup staðar
og HB Granda munu halda áfram
við ræðum um að standa að frek ari
upp bygg ingu atvinnu lífs á Akra nesi.
Umdeild ákvörðun HB
Granda áfall fyrir Skagamenn
Skagamönnum tókst ekki að telja eigendum HB Granda hughvarf og botnfiskvinnsla fyrirtækisins verður
lögð niður og flutt til Reykjavíkur. Ljóst er að 86 starfsmenn, mest konur, fá uppsagnarbréf fyrir mánaða-
mót. Forsvarsmenn HB Granda segja að hluta starfsfólks verði boðin vinna við fiskvinnslu í Reykjavík.
Þriðji hver starfsmaður HB Granda á Akranesi missir vinnuna. FréttABlAðið/Anton
150
störf, að afleiddum störfum
meðtöldum, tapast á
Akranesi.
Einn liður í því er að full trúar Akra
nes kaup staðar í Faxa flóa höfnum
beiti sér fyrir því að ráð ist verði í
nauð syn legar við halds að gerðir á
Akra nes höfn.“
Eins og Fréttablaðið hefur greint
frá hafa áform HB Granda orðið til
þess að viss ákvæði laga um stjórn
fiskveiða eru til skoðunar innan
stjórnkerfisins. Undir er fyrsta grein
fiskveiðistjórnunarlaganna, en þar
segir meðal annars að lögin eigi að
tryggja trausta atvinnu og byggð í
landinu. Undir liggur að andi fisk
veiðistjórnunarlaganna er byggða
festa og því var einnig sett ákvæði
um forkaupsrétt sveitarfélaga.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
sjávarútvegs og landbúnaðarráð
herra hefur skipað þverpólitíska
nefnd sem á að finna fyrirkomulag
varðandi gjaldtöku í sjávarútvegi,
en ráðherra útilokar ekki að nefndin
horfi til álitamála er varða fiskveiði
stjórnunarlögin einnig.
svavar@frettabladid.is
atvinnumál „Væntingar okkar eru
þær að HB Grandi standi við það
sem kemur fram í þeirra yfirlýsingu
og bjóði þessu fólki alvöru valkost
í vinnu. Við munum fylgja því vel
eftir,“ segir Sævar Freyr Þráinsson,
bæjarstjóri Akraness, um ákvörðun
HB Granda um að hætta botnfisk
vinnslu í bænum.
Sævar segir ákvörðunina von
brigði. Hann sé þó sannfærður um
að það séu tækifæri fólgin í áfram
haldandi viðræðum við HB Granda.
Þá væntir hann þess að það takist að
tryggja þeim 86 starfsmönnum, sem
sagt verður upp, störf, vonandi sem
flestum á Akranesi.
Sævar óttast þó ekki fólksflótta úr
bænum. „Ég held að tækifæri fyrir
okkur í atvinnuuppbyggingu séu tölu
verð. Við trúum því að við getum verið
með öfluga starfsemi hér í sjávarútvegi
og sömuleiðis í annarri vinnu.“
Bærinn ætlar þó ekki að láta stað
ar numið í uppbyggingu á Akranes
höfn. Ætla bæjaryfirvöld að tryggja
að það verði ráðist í hafnarfram
kvæmdir og þær kláraðar á næstu
tveimur árum.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, for
stjóri HB Granda, segir hugmyndir
um að bjóða starfsfólki að starfa
áfram innan fyrirtækisins ekki full
mótaðar. Kanna þurfi möguleika og
afstöðu starfsfólksins. „Við eigum
núna eftir að taka þessar viðræður
við trúnaðarmenn og stéttarfélagið
og fara yfir möguleikana. Við eigum
eftir að kanna vilja þeirra til að starfa
hjá okkur áfram, skipta um störf og
taka þau sem eru í boði.“ – þea
Vænta þess að Grandi standi við tilboðið
Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda. FréttABlAðið/GVA
atvinnumál „Auðvitað héldum við
öll í vonina um að að þessu kæmi
ekki. Þetta er það sem er að rústa litlu
bæjarfélögunum, þegar stóru fyrir
tækin koma og haga sér eins og ein
hverjir kóngar. Þetta er náttúrulega
ömurlegt,“ segir Elsa Hrönn Gísla
dóttir, starfsmaður HB Granda.
Hún segir starfsmenn hafa fengið
það á tilfinninguna að þetta yrði raun
in strax á fyrsta fundi þegar áformin
voru tilkynnt. Fundur gærdagsins hafi
einfaldlega staðfest þann grun.
Sjálf segist Elsa ekki geta hugsað
sér að vinna fyrir HB Granda í
Reykjavík. „Skólarnir opna ekki 6.30
á morgnana sem ég þyrfti til þess að
koma mér niður á Granda í traffík
inni,“ segir hún.
„Þetta er voðalega kjánalega sett
upp hjá honum að kasta þessu fram
að þetta sé möguleiki. Ekki nema
að hann ætli persónulega að passa
fyrir okkur börnin, sem ég stórefast
um,“ segir Elsa enn fremur.
Segir tilboðið
kjánalegt
atvinnumál „Þetta er rosalegt högg
fyrir bæjarfélagið þar sem þetta eru
ekki bara þessir hátt í níutíu starfs
menn. Það eru búðir sem þjóna og
rafvirkjar og fleira. Þetta eru svo
mörg önnur störf en bara þau sem
eru í fiskvinnslunni þannig að þetta
hefur áhrif á allt samfélagið,“ segir
Jónína Björg Magnúsdóttir, starfs
maður HB Granda.
Hún segir að einstæð móðir með
börn muni ekki geta nýtt sér til
boð um að vinna fyrir HB Granda í
Reykjavík. „Það færi allur þeirra aur
í barnapössun. Þetta er ekki sniðugt.
Ég mun ekki nýta mér þetta.“
Hún segir þó atvinnuhorfur á
Akranesi betri en oft áður. „Það eru
stöður innan Akraneskaupstaðar.
Það er verið að opna nýja deild á
sjúkrahúsinu og þar skapast störf.
Ég geri mér samt ekki alveg grein
fyrir því hversu mörg.“ – þea
Högg fyrir
bæjarfélagið
Ég held að tækifæri
fyrir okkur í
atvinnuuppbyggingu séu
töluverð. Við trúum því að
við getum verið með öfluga
starfsemi hér í sjávarútvegi
og sömuleiðis í annarri
vinnu.
Sævar Freyr
Þráinsson,
bæjarstjóri
Akraness
Heilbrigðismál „Það er alvarlegt
mál þegar heilbrigðisyfirvöld eru
ekki að segja fólki satt,“ segir Guð
mundur Karl Snæbjörnsson læknir
um það sem hann segir rangfærslur
um veipur, eða rafrettur.
Guðmundur Karl er einn þeirra
sem standa fyrir ráðstefnu í Háskóla
bíói klukkan tvö á morgun um mál
efnið. Segir hann að ráðstefnan sé
einn mesti tóbaksvarnaraktívismi í
Íslandssögunni. Annars vegar verður
sýnd heimildarmyndin A Billion
Lives og svo taka við erindi frá fræði
mönnum og umræður.
„Þetta er hluti af höfundum tveggja
tímamótaskýrsla frá Lýðheilsustofn
un Englands og Royal College of Phys
icians, sem er 500 ára læknafélag,“
segir Guðmundur Karl og bætir því
við að skýrslurnar byggist á hundr
uðum vandaðra rannsókna.
„Þar ráðleggja þeir sterklega veip
ur sem leið til að hætta reykingum og
halda því fram að þær geti lækkað
dánartölur, ekki bara um hundruð
eða þúsund heldur milljarða sam
kvæmt mati WHO fyrir næstu öld,“
segir hann enn fremur.
Guðmundur Karl segir umræð
una hér á landi, sem og víðar, ekki
byggjast á vísindum og staðreynd
um. „Hér virðast allir vera á móti
veipum án þess að hafa skoðað
þetta nægilega vel að mínu mati
og líka að mati RCP og PHE. Flestir
viðurkenna í dag að þetta sé 95 til
99,9 prósent skaðminna. Þetta er
bara nobrainer.“
Hann segir ráðstefnuna þó ekki
vera neinn fögnuð. Ef einhver sé á
öndverðum meiði þá sé honum vel
komið að lesa fyrirlesurum pistil
inn. – þea
Læknir segir heilbrigðisyfirvöld ekki segja satt um veip
Guðmundur Karl Snæbjörnsson
læknir. FréttABlAðið/Anton BrinK
atvinnumál „Þetta eru gríðarleg von
brigði í ljósi þess að hér hefur verið
landvinnsla á bolfiski í rúm hundrað
ár,“ segir Vilhjálmur Birgisson, for
maður Verkalýðsfélags Akraness.
Vilhjálmur segir að mikilvægt sé
að fólk átti sig á því að árið 2002 hafi
verið 350 manns í vinnu hjá Haraldi
Böðvarssyni, sem rann síðar inn í
Granda. Greiddir hafi verið út tveir
milljarðar á ári í laun hjá HB og fyrir
tækið hafi verið stærsti launagreið
andi í Norðvesturkjördæmi. „Núna
er þetta allt farið.“
Þá segir Vilhjálmur að mikill
mannauður sé fólginn í þeim starfs
mönnum sem sagt verður upp. - þea
Þyngra en
tárum taki
Vilhjálmur
Birgisson,
formaður VlFA
1 2 . m a í 2 0 1 7 F Ö s t u D a g u r8 F r é t t i r ∙ F r é t t a b l a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-9
3
1
4
1
D
1
6
-9
1
D
8
1
D
1
6
-9
0
9
C
1
D
1
6
-8
F
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K