Fréttablaðið - 12.05.2017, Page 10
öryggismál Friðfinnur Freyr Guð-
mundsson, verkefnisstjóri neyðar-
viðbúnaðar hjá Isavia, segir getu
Íslendinga til að takast á við stór hóp-
slys líkast til ekki nógu góða.
Friðfinnur, sem stýrði stórri flug-
slysaæfingu á Akureyrarflugvelli um
síðustu helgi, bendir á að hugsanleg
hópslys hérlendis séu alls ekki bund-
in við flug. Þau geti orðið í ferjum,
skemmtiferðaskipum og hópferða-
bílum.
„Þessar sviðsmyndir eru allar
þekktar og hafa meðal annars verið
tíundaðar í áhættuskoðun sem
Almannavarnir gerðu,“ segir Frið-
finnur sem kveður Isavia hafa styrkt
viðbragðsaðila heima í héraði til þess
að geta betur brugðist við hópslysum.
„Við höfum til dæmis styrkt björg-
unarsveitirnar um 38 milljónir und-
anfarin ár til þess að þær verði betur
í stakk búnar til þess að takast á við
hópslys almennt, ekki bara flugslys,“
segir Friðfinnur. Það fé sé sérstak-
lega eyrnamerkt hópslysabúnaði.
„Núna erum við með stórt verkefni
næstu þrjú árin þar sem við erum að
kaupa hópslysakerrur og dreifa um
landið. Þær eru fyrir búnað þannig
að það sé hægt að veita skjól og fyrstu
umönnun á hópslysavettvangi utan
alfararleiðar.“
Að sögn Friðfinns erum við best
undir það búin á suðvesturhorninu
að takast á við hópslys. Annað gildi til
dæmis um rútuslys á öræfum, flugslys
á Hornafirði eða ferjuslys á Seyðisfirði
þar sem viðbragðsaðilar hafi ekki
mikið umleikis. Almannavarnir hafi
hins vegar undanfarin tíu ár búið til
séráætlanir þar sem tekið er á slíkum
slysum.
„Þar er skilgreint hverja á að kalla
út, sem er allt heilbrigðiskerfið og
björgunarsveitir og svo framvegis.
Og síðan starfssvæðin; hvar við ætlum
að safna slösuðu fólki þar sem það er
frekar greint niður og hvert það muni
Loftbrú ef stórt hópslys verður
Vegna skorts á sjúkrarúmum gera viðbragðsáætlanir ráð fyrir að mynduð verði loftbrú úr landi ef stórt
hópslys verður. Tveir týndir „farþegar“ voru ófundnir er flugslysaæfingu á Akureyri lauk um liðna helgi.
Búið um slasaðan farþega áður en hann var fluttur á söfnunarstað í flugskýli
Isavia. Mynd/RagnaR Jón RagnaRsson
Við höfum til dæmis
styrkt björgunar-
sveitirnar um 38 milljónir
undanfarin ár til þess að þær
verði betur í stakk búnar til
þess að takast á við hópslys.
Friðfinnur Freyr
Guðmundsson,
verkefnisstjóri
neyðarviðbún-
aðar hjá Isavia
fara,“ segir Friðfinnur sem kveður það
hafa verið skoðað að senda slasaða úr
landi. Það hafi meira að segja verið
æft árið 2009 í samvinnu við SAS er
flogið var með „slasaða“ frá Akureyri
til Svíþjóðar.
SAS-vélin sem um ræðir var inn-
réttuð eins og bráðamóttaka. Frið-
finnur segir að þótt slíkar vélar séu
ekki til reiðu á Íslandi hafi íslensk
þota verið útbúin með hraði þegar
flóðbylgjan mikla varð í Asíu um jólin
2004 og send þangað.
Friðfinnur útskýrir að í hópslysum
fari slasaðir á söfnunarsvæði þar til
þeir fara í flutning og er sinnt þar á
meðan. „Þar safnast saman hjúkr-
unarlið, Rauði krossinn, björgunar-
sveitir og aðrir,“ segir hann.
Þar sem sjúkrabílar séu fáir og
fjöldi tiltækra sjúkrarúma takmark-
aður og sveiflist frá degi til dags eftir
mannafla og álagi á spítölunum
sé hin svokallaða loftbrú; sjúkra-
flutningar með flugi, æfðir á pappír-
unum. Um þetta hafi Almannavarnir
samninga við erlendar þjóðir. „Þetta
yrði alltaf krefjandi verkefni,“ segir
Friðfinnur og bendir jafnframt á að
aðrar þjóðir myndu líkast til aðstoða
við flutningana, sérstaklega ef þeirra
borgarar væru meðal slasaðra. „Ef
það myndi eitthvað stórt koma fyrir
íslenskan hóp erlendis þá myndum
við senda aðstoð.“
Friðfinnur, sem er björgunar-
sveitar maður sjálfur, segir eftir-
tektarvert hversu mikil fjölgun sé á
óhöppum með rútum þar sem legið
hafi við hópslysi. Auk þess sem vega-
kerfið þoli illa álagið nefnir hann
rútubílstjóra sem þekki ekki aðstæð-
ur hér en aki hér samt með farþega.
„Í áhættugreiningu Almannavarna
eru það fyrst og fremst rútuslys sem
menn hafa áhyggjur af vegna þess að
það er þekkt tölfræði að það er ekki
hættulegt að fljúga,“ segir hann.
Um 250 manns tóku þátt í stórri
flugslysaæfingu á Akureyri á laugar-
dag þar sem vél með áttatíu manns
innanborðs átti að hafa farist. Yfir sjö-
tíu statistar léku þá sem áttu að hafa
verið um borð. Tveir sem áttu að fela
sig á flugvallarsvæðinu fundust ekki
áður en æfingunni lauk heldur gáfu
sig sjálfir fram að henni lokinni.
Friðfinnur, sem stjórnaði æfing-
unni eins og fyrr greinir, segir að
umræddir tveir „farþegar“ hafi verið
skilgreindir sem lítið slasaðir þannig
að þeir hafi getað gengið.
„Þú ert ekki fótbrotinn að ganga
neitt frá. Þannig að það er lítið eða
óslasað fólk sem myndi hugsanlega
gera þetta. Þannig að þessi leit verður
afgangs og það síðasta sem við gerum.
Á þessari æfingu var svo mikið flug á
meðan á henni stóð að við vorum
alltaf að stoppa og náðum ekki að
klára þennan leitarfasa,“ útskýrir
Friðfinnur sem kveður alla þátttak-
endur í æfingunni hafa getað gefið
henni einkunn rafrænt eftir að henni
lauk. „Æfingin fékk yfir níu í einkunn
þannig að ég er mjög ánægður.“
gar@frettabladid.is
250
manns tóku þátt í flugslysa-
æfingu um liðna helgi.
Enn óeirðir í Venesúela
Mótmælandi í Karakas, höfuðborg Venesúela, skýlir sér á bak við skjöld sem á stendur „réttlæti“. Mótmælendur kljáðust í gær við óeirðalögreglu en
átök hafa staðið yfir frá upphafi aprílmánaðar. Talið er að 36 hafi farist og hundruð særst en mótmælendur eru að mótmæla ríkisstjórn sósíalistans
Nicolas Maduro. Upptökin eru meðal annars sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að slíta þingi og svipta þingmenn friðhelgi. noRdIcphotos/aFp
Viðskipti Á síðastliðnu viðskipta-
ári lækkaði hagnaður flugfélagsins
Emirates um 82 prósent. Ástæður
þess voru meðal annars minni eftir-
spurn eftir ferðalögum og atvik sem
ollu óstöðugleika, meðal annars
áform Trumps Bandaríkjaforseta.
CNN greinir frá því að arðgreiðsl-
ur voru afturkallaðar hjá félaginu í
fyrsta skipti síðan árið 1996. Til
samanburðar greiddi félagið ríkis-
stjórn Dubai 681 milljón dollara í
arð á síðasta ári, en þá nam hagn-
aður félagsins 7,1 milljarði dollara.
Stjórnarformaður Emirates,
Sheikh Ahmed bin Saeed Al Makt-
oum, segir síðasta árið hafa verið
eitt það erfiðasta í sögu félagsins og
sér hann fram á annað erfitt ár fram
undan. Hann segir það meðal ann-
ars skýrast af aukinni samkeppni og
óstöðugleika á mörkuðum sem hafa
áhrif á eftirspurn eftir flugi.
Í síðasta mánuði var tilkynnt
að Emirates væru að draga úr flug-
ferðum til Bandaríkjanna vegna nei-
kvæðra áhrifa af stefnu Trumps. – sg
Hagnaður
Emirates tók
mikla dýfu
Á síðasta fjárhagsári hagnaðist
Emirates um rúma 7 milljarða doll-
ara. FRéttaBlaðIð/Epa
grÆNlAND Steinefni í innlandsísnum
á Grænlandi kunna að geta unnið
bug á matvælaskorti í heiminum. Á
vef grænlenska útvarpsins er vitnað í
fyrirlestur Miniks Rosing, grænlensks
jarðfræðiprófessors við Kaupmanna-
hafnarháskóla, sem hann hélt á ráð-
stefnunni Future Greenland.
Að sögn prófessorsins er mikið
magn steinefna í ísnum sem geta
komið að gagni sem áburður. Skort-
ur sé á þessum steinefnum víða um
heim.
Vonast er til að framleiðsla á áburði
geti hafist innan tveggja ára. – ibs
Steinefni gætu
nýst í áburð
DANmörk Þeir sem hafa tilhneig-
ingu til að fá slæma timburmenn
eins og til dæmis höfuðverk, þreytu,
ógleði og uppköst eru í meiri hættu
á að misnota áfengi en aðrir þegar
til lengri tíma er litið. Þetta er niður-
staða könnunar dönsku lýðheilsu-
stofnunarinnar sem byggir á úttekt
á alþjóðlegum rannsóknum.
Danska fréttaveitan Ritzau hefur
það eftir prófessornum Janne Tol-
strup að ekki sé vitað hvers vegna
sumir fá mikla timburmenn en aðrir
sem drukkið hafa jafn mikið sleppi.
Hún bendir á að ekkert bendi til að
slæm þynnka komi í veg fyrir frek-
ari drykkju. Til dæmis drekki þeir
sem fá slæma timburmenn áfengi
daginn eftir í því skyni að draga úr
óþægindunum. – ibs
Þynnka eykur
hættuna á
misnotkun
Frá nuuk á grænlandi.
FRéttaBlaðIð/FRIðRIk
1 2 . m A í 2 0 1 7 F ö s t U D A g U r10 F r é t t i r ∙ F r é t t A B l A ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-8
E
2
4
1
D
1
6
-8
C
E
8
1
D
1
6
-8
B
A
C
1
D
1
6
-8
A
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K