Fréttablaðið - 12.05.2017, Síða 22
Byrjunarlið Þórs/KA
Spila 3-4-3 eins og Chelsea
markvörður
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
26 ára – Nýr leikmaður
vörN
Bianca Sierra S
25 ára – Nýr leikmaður
Lillý Rut Hlynsdóttir H
20 ára
Zaneta Wyne
25 ára – var í fyrra
miðja
Hulda Björg Hannesdóttir M H H
17 ára
Natalia Gómez Junco S H H
25 ára – var í fyrra
Andrea Mist Pálsdóttir M S H
19 ára
Anna Rakel Pétursdóttir S
19 ára
SókN
Hulda Ósk Jónsdóttir M M
20 ára
Stephany Mayor M S S
26 ára – var í fyrra
Margrét Árnadóttir M H
18 ára
M Mark í fyrstu 3 leikjunum
S Stoðsending í fyrstu 3 leikj-
unum
H Hjálparstoðsending í fyrstu 3
leikjunum
Lillý rut Hlynsdóttir með regnbogafyrirliðabandið sitt í leiknum á móti Fylki á dögunum. FréttabLaðið/Eyþór
Fimm leikmenn hafa skorað sex mörk þórs/ka tll þessa í sumar og fimm hafa gefið stoðsendingu. Hér fagna stelpurnar einu marka sinna í 4-1 sigri á Fylki um síðustu helgi. FréttabLaðið/Eyþór
Fótbolti „Þetta er draumabyrjun en
kemur okkur samt ekkert á óvart þó
að þetta komi kannski öllum öðrum
á óvart,“ segir Lillý Rut Hlynsdóttir
þegar við hefjum spjallið. Eins og
inni á vellinum þá er hún yfirveguð
en um leið full sjálfstrausts og með
mikla trú á sínu liði. Það er ljóst að
þetta er ekki hin venjulega tvítuga
knattspyrnukona.
Sigrar á Val, Breiðabliki og Fylki
skila liðinu þriggja stiga forystu á
toppi Pepsi-deildar kvenna. Lillý
fagnaði tvítugsafmælinu sínu í árs-
byrjun en hún er samt að hefja sitt
sjötta tímabil í Pepsi-deildinni og
nálgast óðum hundraðasta leikinn
fyrir Þór/KA. „Ég held að ég hafi spil-
að 94. leikinn minn síðast. Ég er alla-
vega ekki ein af ungu stelpunum því
við erum frekar ungt lið,“ segir Lillý
Rut. Það er vissulega hægt að taka
undir það enda meira en helmingur
byrjunarliðsins fæddur 1997 eða
síðar. Allir markaskorararnir í sigr-
inum á Fylki voru tvítugar eða yngri.
Fullkomin blanda
„Heimastelpurnar eru svo flottar.
Við erum með fullkomna blöndu
af ungum heimastelpum og mjög
sterkum útlendingum. Það sem
hefur gert okkur betri er að okkur er
treyst fyrir þessu og við fáum tæki-
færið þótt við séum ungar,“ segir
Lillý sem kom inn í byrjunarliðið
sumarið 2012, þá aðeins fimmtán
ára gömul.
Tvær þær yngstu í byrjunar-
liðinu í sumar eru hin 18 ára Mar-
grét Árnadóttir og hin 17 ára Hulda
Björg Hannesdóttir sem báðar voru
á skotskónum á móti Fylki. „Það er
ekki að sjá að þær séu að spila fyrstu
meistaraflokksleikina,“ sagði Lillý.
Ábyrgðin hefur þó aldrei verið
meiri á Lillý en í ár þar sem hún er
komin með fyrirliðabandið í fjar-
veru Söndru Maríu Jessen og stýrir nú
þriggja manna vörn Þórs/KA-liðsins.
„Mér líður bara mjög vel í þessu
hlutverki. Við Sandra erum í þessu
saman. Hún er samt fyrirliði númer
eitt þegar hún er heil,“ segir Lillý Rut
en hún er í miðri vörninni í 3-4-3
leikkerfi og stýrir liðinu þaðan.
„Þetta kerfi er búið að ganga mjög
vel og ég held að þetta henti okkur
betur miðað við þá leikmenn sem
við erum með. Þessar nýju stöður
henta eiginlega öllum betur,“ segir
Lillý Rut og bætir við: „Kerfið gefur
mér aðeins meira frelsi og býður upp
á betri sendingar því það gefur mér
fleiri kosti fram á völlinn. Það hentar
mér mjög vel,“ segir Lillý.
þarf að halda ró sinni
Lillý kom inn í vörnina þegar Arna
Sif Ásgrímsdóttir fór út í atvinnu-
mennsku og það er því mikið á
svona ungan leikmann lagt að ætla
að stýra varnarleik liðsins í nýju
leikkerfi. Hún byrjaði á miðjunni
en þurfti að breyta aðeins um stíl
sem miðvörður.
„Ég þarf að halda ró minni og má
ekki fara úr stöðu. Þetta er í rauninni
bara þriðja tímabilið mitt í miðverði
því ég var alltaf á miðjunni. Ég þarf að
passa mig að hlaupa ekki út um allt
eins og maður gerði,“ segir Lillý.
Eini nýi erlendi leikmaður liðsins
er sú sem spilar við hlið Lillýjar og
þær ná vel saman. „Það er mjög þægi-
legt að spila með henni. Hún talar
endalaust og það er ekki hægt að sjá
að við séum að spila saman í fyrsta
skiptið,“ segir Lillý og þar er enn eitt
dæmið um hversu vel gengur að velja
erlenda leikmenn inn í liðið.
„Við höfum verið mjög heppnar
með útlendinga öll árin sem ég er
búin að vera hérna,“ segir Lillý.
Eftir þrjár umferðir er lið Þórs/KA
með fullt hús og búið að vinna tvö
af liðunum sem áttu að berjast um
Íslandsmeistaratitilinn í ár. Þar var
Þór/KA „aðeins“ spáð fjórða sætinu.
Markmiðið er og hefur alltaf verið á
hreinu. „Markmið númer eitt er að
verða Íslandsmeistari,“ sagði Lillý
sem var í síðasta meistaraliði Þórs/
KA. „Ég var með í öllum leikjunum
nema þeim síðasta þegar við tókum
á móti bikarnum. Ég missti af sigur-
veislunni,“ segir Lillý en þá var hún
upptekin í verkefni með sautján ára
liðinu. „Það var ótrúlegt tímabil og
vonandi verður þetta tímabil eitt-
hvað því líkt.“
Þetta var samt erfiður vetur fyrir
norðankonur. Mikil umræða varð
um það hvort Þór/KA ætti yfirhöfuð
að tefla fram sameiginlegu liði áfram
og svo sleit markadrottningin Sandra
María Jessen krossband í landsleik í
mars. Þetta tvennt átti örugglega
sinn þátt í því að þjálfarar, fyrir-
liðar og forráðamenn höfðu ekki allt
of mikla trú á liðinu þrátt fyrir að
sterkir erlendir leikmenn væru áfram
á Akureyri og ungu stelpurnar einu
ári eldri.
Gott að eiga Söndru maríu inni
„Hún gerði okkur bara sterkari ef
eitthvað er, umræðan um hvort það
ætti að stía okkur í sundur eða ekki.
Hópurinn varð samheldnari. Það
er auðvitað mikill missir að Söndru
Maríu en það er gott að eiga hana
inni. Vonandi verður hún klár sem
fyrst. Hún er mjög mikilvægur part-
ur af hópnum enn þá,“ segir Lillý.
Ein af breytingunum á liðinu er að
nú stendur íslensk stelpa í markinu.
Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir kom
norður frá ÍBV. „Hún smellpassar
inn í liðið og er frábær karakter. Það
er gott að hafa loksins íslenskan
markvörð fyrir aftan sig. Hún verður
stundum svolítið æst en það er mjög
gott að hafa hana fyrir aftan sig. Hún
er búin að standa sig mjög vel,“ segir
Lillý. Þór/KA er bara búið að fá á sig
Gott að hafa pabba til að segja mér til
Lillý Rut Hlynsdóttir er reynsluboltinn í toppliði Þórs/KA þó að hún sé bara nýbúin að halda upp á tvítugsafmælið. „Við erum með
fullkomna blöndu af ungum heimastelpum og mjög sterkum útlendingum,“ segir Lillý sem fetar í fótspor foreldra sinna á vellinum.
eitt mark á 270 mínútum og það kom
úr víti.
Pabbi hennar var miðvörður
Lillý Rut er heldur betur með fót-
boltann í blóðinu því báðir foreldrar
hennar spiluðu með Þór á árum áður
en þetta eru þau Hlynur Birgisson og
Inga Huld Pálsdóttir. „Þau eru bæði
mjög harðir Þórsarar. Pabbi spilaði
sem miðvörður á seinni hluta ferils-
ins en mamma var framherji. Ég fékk
því aðeins meira frá pabba mínum,“
segir Lillý í léttum tón. „Það er mjög
mikið rætt um fótbolta á heimilinu
og það er mjög gott að hafa pabba til
að segja manni til,“ segir Lillý.
ooj@frettabladid.is
Þetta kerfi er búið
að ganga mjög vel og
ég held að þetta henti okkur
betur miðað við þá leikmenn
sem við erum með. Þessar
nýju stöður henta eiginlega
öllum betur
Lillý Rut Hlynsdóttir
1 2 . M a í 2 0 1 7 F Ö S t U D a G U R22 S p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:5
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
6
-8
9
3
4
1
D
1
6
-8
7
F
8
1
D
1
6
-8
6
B
C
1
D
1
6
-8
5
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
1
1
5
2
0
1
7
C
M
Y
K