Fréttablaðið


Fréttablaðið - 12.05.2017, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 12.05.2017, Qupperneq 22
Byrjunarlið Þórs/KA Spila 3-4-3 eins og Chelsea markvörður Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir 26 ára – Nýr leikmaður vörN Bianca Sierra S 25 ára – Nýr leikmaður Lillý Rut Hlynsdóttir H 20 ára Zaneta Wyne 25 ára – var í fyrra miðja Hulda Björg Hannesdóttir M H H 17 ára Natalia Gómez Junco S H H 25 ára – var í fyrra Andrea Mist Pálsdóttir M S H 19 ára Anna Rakel Pétursdóttir S 19 ára SókN Hulda Ósk Jónsdóttir M M 20 ára Stephany Mayor M S S 26 ára – var í fyrra Margrét Árnadóttir M H 18 ára M Mark í fyrstu 3 leikjunum S Stoðsending í fyrstu 3 leikj- unum H Hjálparstoðsending í fyrstu 3 leikjunum Lillý rut Hlynsdóttir með regnbogafyrirliðabandið sitt í leiknum á móti Fylki á dögunum. FréttabLaðið/Eyþór Fimm leikmenn hafa skorað sex mörk þórs/ka tll þessa í sumar og fimm hafa gefið stoðsendingu. Hér fagna stelpurnar einu marka sinna í 4-1 sigri á Fylki um síðustu helgi. FréttabLaðið/Eyþór Fótbolti „Þetta er draumabyrjun en kemur okkur samt ekkert á óvart þó að þetta komi kannski öllum öðrum á óvart,“ segir Lillý Rut Hlynsdóttir þegar við hefjum spjallið. Eins og inni á vellinum þá er hún yfirveguð en um leið full sjálfstrausts og með mikla trú á sínu liði. Það er ljóst að þetta er ekki hin venjulega tvítuga knattspyrnukona. Sigrar á Val, Breiðabliki og Fylki skila liðinu þriggja stiga forystu á toppi Pepsi-deildar kvenna. Lillý fagnaði tvítugsafmælinu sínu í árs- byrjun en hún er samt að hefja sitt sjötta tímabil í Pepsi-deildinni og nálgast óðum hundraðasta leikinn fyrir Þór/KA. „Ég held að ég hafi spil- að 94. leikinn minn síðast. Ég er alla- vega ekki ein af ungu stelpunum því við erum frekar ungt lið,“ segir Lillý Rut. Það er vissulega hægt að taka undir það enda meira en helmingur byrjunarliðsins fæddur 1997 eða síðar. Allir markaskorararnir í sigr- inum á Fylki voru tvítugar eða yngri. Fullkomin blanda „Heimastelpurnar eru svo flottar. Við erum með fullkomna blöndu af ungum heimastelpum og mjög sterkum útlendingum. Það sem hefur gert okkur betri er að okkur er treyst fyrir þessu og við fáum tæki- færið þótt við séum ungar,“ segir Lillý sem kom inn í byrjunarliðið sumarið 2012, þá aðeins fimmtán ára gömul. Tvær þær yngstu í byrjunar- liðinu í sumar eru hin 18 ára Mar- grét Árnadóttir og hin 17 ára Hulda Björg Hannesdóttir sem báðar voru á skotskónum á móti Fylki. „Það er ekki að sjá að þær séu að spila fyrstu meistaraflokksleikina,“ sagði Lillý. Ábyrgðin hefur þó aldrei verið meiri á Lillý en í ár þar sem hún er komin með fyrirliðabandið í fjar- veru Söndru Maríu Jessen og stýrir nú þriggja manna vörn Þórs/KA-liðsins. „Mér líður bara mjög vel í þessu hlutverki. Við Sandra erum í þessu saman. Hún er samt fyrirliði númer eitt þegar hún er heil,“ segir Lillý Rut en hún er í miðri vörninni í 3-4-3 leikkerfi og stýrir liðinu þaðan. „Þetta kerfi er búið að ganga mjög vel og ég held að þetta henti okkur betur miðað við þá leikmenn sem við erum með. Þessar nýju stöður henta eiginlega öllum betur,“ segir Lillý Rut og bætir við: „Kerfið gefur mér aðeins meira frelsi og býður upp á betri sendingar því það gefur mér fleiri kosti fram á völlinn. Það hentar mér mjög vel,“ segir Lillý. þarf að halda ró sinni Lillý kom inn í vörnina þegar Arna Sif Ásgrímsdóttir fór út í atvinnu- mennsku og það er því mikið á svona ungan leikmann lagt að ætla að stýra varnarleik liðsins í nýju leikkerfi. Hún byrjaði á miðjunni en þurfti að breyta aðeins um stíl sem miðvörður. „Ég þarf að halda ró minni og má ekki fara úr stöðu. Þetta er í rauninni bara þriðja tímabilið mitt í miðverði því ég var alltaf á miðjunni. Ég þarf að passa mig að hlaupa ekki út um allt eins og maður gerði,“ segir Lillý. Eini nýi erlendi leikmaður liðsins er sú sem spilar við hlið Lillýjar og þær ná vel saman. „Það er mjög þægi- legt að spila með henni. Hún talar endalaust og það er ekki hægt að sjá að við séum að spila saman í fyrsta skiptið,“ segir Lillý og þar er enn eitt dæmið um hversu vel gengur að velja erlenda leikmenn inn í liðið. „Við höfum verið mjög heppnar með útlendinga öll árin sem ég er búin að vera hérna,“ segir Lillý. Eftir þrjár umferðir er lið Þórs/KA með fullt hús og búið að vinna tvö af liðunum sem áttu að berjast um Íslandsmeistaratitilinn í ár. Þar var Þór/KA „aðeins“ spáð fjórða sætinu. Markmiðið er og hefur alltaf verið á hreinu. „Markmið númer eitt er að verða Íslandsmeistari,“ sagði Lillý sem var í síðasta meistaraliði Þórs/ KA. „Ég var með í öllum leikjunum nema þeim síðasta þegar við tókum á móti bikarnum. Ég missti af sigur- veislunni,“ segir Lillý en þá var hún upptekin í verkefni með sautján ára liðinu. „Það var ótrúlegt tímabil og vonandi verður þetta tímabil eitt- hvað því líkt.“ Þetta var samt erfiður vetur fyrir norðankonur. Mikil umræða varð um það hvort Þór/KA ætti yfirhöfuð að tefla fram sameiginlegu liði áfram og svo sleit markadrottningin Sandra María Jessen krossband í landsleik í mars. Þetta tvennt átti örugglega sinn þátt í því að þjálfarar, fyrir- liðar og forráðamenn höfðu ekki allt of mikla trú á liðinu þrátt fyrir að sterkir erlendir leikmenn væru áfram á Akureyri og ungu stelpurnar einu ári eldri. Gott að eiga Söndru maríu inni „Hún gerði okkur bara sterkari ef eitthvað er, umræðan um hvort það ætti að stía okkur í sundur eða ekki. Hópurinn varð samheldnari. Það er auðvitað mikill missir að Söndru Maríu en það er gott að eiga hana inni. Vonandi verður hún klár sem fyrst. Hún er mjög mikilvægur part- ur af hópnum enn þá,“ segir Lillý. Ein af breytingunum á liðinu er að nú stendur íslensk stelpa í markinu. Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir kom norður frá ÍBV. „Hún smellpassar inn í liðið og er frábær karakter. Það er gott að hafa loksins íslenskan markvörð fyrir aftan sig. Hún verður stundum svolítið æst en það er mjög gott að hafa hana fyrir aftan sig. Hún er búin að standa sig mjög vel,“ segir Lillý. Þór/KA er bara búið að fá á sig Gott að hafa pabba til að segja mér til Lillý Rut Hlynsdóttir er reynsluboltinn í toppliði Þórs/KA þó að hún sé bara nýbúin að halda upp á tvítugsafmælið. „Við erum með fullkomna blöndu af ungum heimastelpum og mjög sterkum útlendingum,“ segir Lillý sem fetar í fótspor foreldra sinna á vellinum. eitt mark á 270 mínútum og það kom úr víti. Pabbi hennar var miðvörður Lillý Rut er heldur betur með fót- boltann í blóðinu því báðir foreldrar hennar spiluðu með Þór á árum áður en þetta eru þau Hlynur Birgisson og Inga Huld Pálsdóttir. „Þau eru bæði mjög harðir Þórsarar. Pabbi spilaði sem miðvörður á seinni hluta ferils- ins en mamma var framherji. Ég fékk því aðeins meira frá pabba mínum,“ segir Lillý í léttum tón. „Það er mjög mikið rætt um fótbolta á heimilinu og það er mjög gott að hafa pabba til að segja manni til,“ segir Lillý. ooj@frettabladid.is Þetta kerfi er búið að ganga mjög vel og ég held að þetta henti okkur betur miðað við þá leikmenn sem við erum með. Þessar nýju stöður henta eiginlega öllum betur Lillý Rut Hlynsdóttir 1 2 . M a í 2 0 1 7 F Ö S t U D a G U R22 S p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð 1 3 -0 6 -2 0 1 7 1 0 :5 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 1 6 -8 9 3 4 1 D 1 6 -8 7 F 8 1 D 1 6 -8 6 B C 1 D 1 6 -8 5 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 1 1 5 2 0 1 7 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.