Fréttablaðið - 03.03.2017, Qupperneq 2
Bjarkarhlíð opnuð
Bjarkarhlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis, var opnuð á Bústaðavegi í Reykjavík í gær. Hér taka Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráð-
herra, Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu,
við bjarkarhríslum frá Rögnu Björgu Guðbrandsdóttur, verkefnastjóra Bjarkarhlíðar. Umhverfis húsið standa fjölmargar bjarkir. Fréttablaðið/anton brink
Veður
Veður breytist lítið og verður áfram bjart
og fallegt í flestum landshlutum í dag.
Norðausturhornið sker sig dálítið úr, því
þar má reikna með éljum þótt almennt
sé um þokkalegt veður að ræða á þeim
slóðum. sjá síðu 26
Aðalfundur BÍ 2017
Fimmtudaginn 6. apríl kl. 20.00 í Síðumúla 23
Aðalfundur Blaðamannafélags Íslands árið 2017 verður haldinn
fimmtudaginn 6. apríl n.k. að Síðumúla 23 3. hæð, 108 Reykjavík þar
sem félagið er til húsa og hefst fundurinn stundvíslega kl. 20.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrslur frá starfsnefndum
Kosningar*
Lagabreytingar
Önnur mál
BÍ-félagar eru hvattir til að mæta
*Framboð til formanns BÍ þarf að berast skrifstofu BÍ ekki síðar en tveimur vikum fyrir boðaðan aðalfund.
Viðskipti Dæmi eru um að úlpur
og annar útivistarfatnaður frá
íslenska fatamerkinu 66°Norður
fáist mörgum tugum prósenta
ódýrari á erlendum netverslunum
en í verslunum keðjunnar hér á
landi. Íslenskir neytendur geta í ein-
hverjum tilvikum leyft sér að máta
fatnaðinn í verslunum hér á landi
en farið á netið þegar heim er komið
og sparað sér háar fjárhæðir.
Í Fréttablaðinu í gær var fjallað
um að íslensk fataverslun væri eina
smásöluverslunin sem ekki hefur
náð vopnum sínum eftir hrun. Velta
fataverslunar dróst saman um tólf
prósent í janúar miðað við árið á
undan. Þá var rætt við nemendur í
Háskólanum í Reykjavík sem allir
höfðu sömu sögu að segja. Of dýrt
væri að versla hér á landi og þá
borgaði sig að kaupa af erlendum
vefverslunum eða kaupa mikið
magn að utan.
Þýska vefverslunin Bike24
selur vandaðan útivistarfatnað,
þar á meðal þó nokkrar flíkur frá
66°Norður. Þrátt fyrir að versl-
unin taki 15 evrur í sendingargjald,
Íslandspóstur rukki 595 krónur við
komuna til landsins og lagður sé 24
prósent virðisaukaskattur á vöruna
við komuna til landsins, er mun
hagstæðara að kaupa fatnaðinn af
vefsíðunni.
Fréttablaðið gerði aðrar stikk-
prufur á íslenskum merkjum sem
notið hafa velgengni erlendis en
það sama var ekki uppi á teningnum
með verðmun miðað við íslenskan
markað. Dæmi um vörumerki sem
voru skoðuð voru íslensku barna-
fatamerkin Igló+Indí og As We Grow.
Ólafur Arnarson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir að verð-
Erlendar vefsíður selja
66°Norður mjög ódýrt
Íslenskir neytendur geta mátað úlpur frá útivistarmerkinu 66°Norður í versl-
unum hérlendis en keypt sömu vöru mun ódýrari af þýskri vefverslun.
Formaður Neytendasamtakanna segir um óútskýrðan verðmun að ræða.
Skjáskot tekin af síðu
vefverslunar 66°Norður
Virðisaukaskattur er
lagður á alla vöru sem
pöntuð er að utan, við
komuna til landsins,
samtals 24% af virði
vörunnar.
Íslandspóstur
rukkar 595 krónur
fyrir þjónustu sína ef
óskað er eftir rafrænni
tilkynningu.
Bike24 rukkar 15 evrur í
sendingarkostnað til Ís-
lands, um 1.700 krónur.
n Verð í verslun 66°Norður n Verð í vefverslun með öllum gjöldum
34%
Dýrari á ÍslanDi
Hekla úlpa
39.000 kr. 29.212 kr.
34%
Dýrari á ÍslanDi
Öxi jakki
29.000 kr. 21.615 kr.
106%
Dýrari á ÍslanDi
VatnajÖkull Vesti
27.000 kr. 13.079 kr.
munurinn komi sér í opna skjöldu.
„Þetta er ekki eðlilegur verðmunur.
Maður gerir ráð fyrir að vörur séu
eitthvað ódýrari þegar þær eru seldar
á netinu. Það þarf ekki að vera með
útstillingu með sama hætti og net-
verslun fylgir ekki sami húsnæðis-
og launakostnaður. En það á ekki að
muna þetta miklu. Þetta er það sem
maður kallar óútskýrðan verðmun.“
Í Fréttablaðinu í gær sagði Andrés
Magnússon, formaður Verslunar og
þjónustu, að allar aðstæður séu uppi
fyrir hagstæða verslun hér á landi.
Hann gæti þó ekki svarað því hvort
íslensk verslun sé einfaldlega með of
háa álagningu.
„Þetta er rosalegt. Það er ekki
verið að leyfa íslenskum neytendum
að njóta styrkingar krónunnar. Ef
neytendur telja að tilteknar vörur
séu óeðlilega dýrar vegna þess að
styrking krónunnar hefur ekki verið
látin ná í gegn þá vita menn að þeir
njóta fullrar styrkingar ef þeir versla
við erlendar netverslanir,“ segir
Ólafur. snaeros@frettabladid.is
↣↣↣
Þetta er rosalegt. Það er
ekki verið að leyfa íslenskum
neytendum að njóta styrk-
ingar krónunnar.
LögregLumáL Lífsýni úr grænlenska
skipverjanum sem hefur verið í
gæsluvarðhaldi undanfarnar vikur
vegna gruns um aðild að dauða
Birnu Brjánsdóttur tengja hann
beint við Birnu.
Þetta staðfesti Jón H. B. Snorra-
son, aðstoðarlögreglustjóri hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu, í
samtali við fréttastofu í gær.
Maðurinn var úrskurðaður í
áframhaldandi fjögurra vikna
gæsluvarðhald á grundvelli
almannahagsmuna sem þýðir að
hann er nú undir sterkum grun um
að hafa banað Birnu. Maðurinn
neitar enn sök hvað það varðar en
hefur nú játað aðild sína að vörslu
á 23,4 kílóum af hassi sem fundust
um borð í togaranum Polar Nanoq.
– gag
Lífsýni tengja
manninn beint
við Birnu
FrakkLand Lögreglan í París gerði
í gær rassíu inni á heimili François
Fil lon, forsetaframbjóðanda
franskra Repúblikana. Frá þessu
greindi Le Parisien og hafði eftir
nafnlausum heimildarmönnum.
Húsleitin er liður í rannsókn lög-
reglu en Fillon er grunaður um að
hafa greitt konu sinni og börnum
laun úr ríkissjóði fyrir störf sem
aldrei voru innt af hendi. Átti
kona hans, Penelope, að hafa verið
aðstoðarmaður og börnin lögfræð-
ingar. Le Canard Enchainé hefur
greint frá því að hún hafi þegið
nærri hundrað milljónir króna yfir
nokkurra ára tímabil.
Fillon hefur hins vegar neitað
sök og ætlar að halda forsetafram-
boði sínu til streitu. Á miðvikudag
sagðist frambjóðandinn fórnarlamb
pólitískrar morðtilraunar.
Fylgi hans hefur dalað talsvert í
kjölfar ásakananna. Mælist hann
nú með 21 prósents fylgi. Emm-
anuel Macron mælist með 24 pró-
sent og Marine Le Pen 25 prósent
samkvæmt nýrri könnun PrésiTrack
Opinionway og ORPI. – þea
Húsleit inni
á heimili
Fillon
François Fillon forsetaframbjóðandi.
norDicpHotos/aFp
✿ samanburður á verði á íslandi og í erlendum vefverslunum
3 . m a r s 2 0 1 7 F ö s t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-D
5
F
4
1
D
1
3
-D
4
B
8
1
D
1
3
-D
3
7
C
1
D
1
3
-D
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K