Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 4
... fæst í næsta apóteki
og helstu stórmörkuðum
Mundir þú eftir að bursta
og skola í morgun?
GUM eru hágæða tannvörur
– allar upplýsingar á www.icecare.is
tannlæ
knar
mæla m
eð
GUM
tannvö
rum
RÚSSLAND Sex rússneskir diplómat-
ar hafa látið lífið á skömmum tíma.
Samsæriskenningar hafa farið á flug
vegna dauðsfallanna en sumir telja
ótrúlegt að um tilviljun sé að ræða.
Vitaly Churkin, fastafulltrúi Rússa
hjá Sameinuðu þjónuðum, lést í
síðustu viku eftir að hafa veikst
skyndilega á leið til vinnu. Í upp-
hafi var talið að hann hefði fengið
hjartaáfall en krufning leiddi í ljós
að dánarorsök var önnur.
Í janúar létust sendiherra Rúss-
lands í Indlandi, konsúllinn í Aþenu
og í nóvember lést annar rússneskur
erindreki í New York. Allir létust
snögglega eftir óvænt veikindi.
Dauðsföll síðustu tveggja erind-
rekanna voru öllu ofbeldisfyllri.
Andrei Karlov, sendiherra Rússlands
í Tyrklandi, var skotinn til bana á
listasýningu í Ankara 19. desember
síðastliðinn. Sama dag var Petr
Polshikov, starfsmaður utanríkis-
þjónustunnar, myrtur í íbúð sinni
í Moskvu.
Að lokum má nefna að fyrrverandi
yfirmaður í leyniþjónustunni KGB,
Oleg Erovinkin, fannst myrtur í
skotti bíls síns annan dag jóla. – jóe
Dularfullir dauðdagar diplómata
Vitaly Churkin lést í lok febrúar, degi fyrir 65 ára afmælisdag sinn. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
Samsæriskenningar hafa
farið á flug vegna dauðsfall-
anna en sumir telja ótrúlegt
að um tilviljun sé að ræða.
Það kemur fram í
kaupmáttaraukn-
ingu sem ég reikna með að
flestum
launþegum
þyki hið besta
mál.
Gylfi Magnússon,
dósent í hagfræði
Þetta hefur gríðarleg
áhrif og er mikið
áhyggjuefni.
Þórdís Lóa Þórhalls-
dóttir, forstjóri Grey
Lina á Íslandi
EfNAhAgSmáL Gengi Bandaríkja-
dals er komið niður fyrir 108 krónur
og hefur krónan ekki verið sterkari
gagnvart dal frá því í október 2008.
Gengi krónu gagnvart dal var sautján
prósentum sterkara í gær en það var
fyrir ári. Gengi krónu gagnvart evru
er 20 prósentum sterkara en það var
fyrir ári.
Aðilar í ferðaþjónustu hafa
áhyggjur. „Miðað við þessar síðustu
breytingar erum við ekki farin að
fá viðbrögð frá viðskiptavinunum
sjálfum en við fáum strax frá endur-
söluaðilum, sem eru ferðaskrifstofur
úti um allan heim að selja ferðir til
Íslands. Þetta hefur gríðarleg áhrif
og er mikið áhyggjuefni,“ segir Þór-
dís Lóa Þórhallsdóttir, forstjóri Grey
Line á Íslandi.
Seðlabankinn hefur að undan-
förnu reynt að stemma stigu við
þessari gengishækkun og aukið
gjaldeyriskaup sín. En þrátt fyrir
að bankinn hafi keypt gjaldeyri
fyrir 29,3 milljarða í febrúar, eða
um helminginn af heildarveltu á
markaði, styrktist gengi krónunnar
gagnvart evru um 10 prósent í mán-
uðinum. Til samanburðar keypti
Seðlabankinn gjaldeyri fyrir aðeins
um fimm milljarða í janúar.
Gylfi Magnússon, dósent í hag-
fræði og fyrrverandi viðskiptaráð-
herra, segir að fyrir hinn almenna
borgara, sem ekki er í útflutningi, sé
þróun gjaldmiðilsins hið besta mál.
„Þetta er nú ein helsta skýringin fyrir
því að verðbólga hefur haldist mjög
lág um nokkur misseri þrátt fyrir að
innlendur kostnaður hafi hækkað,
meðal annars vegna launahækkana.
Það kemur fram í kaupmáttaraukn-
ingu sem ég reikna með að flestum
launþegum þyki hið besta mál,“
segir hann. Gylfi hefur ekki áhyggjur
af auknum innflutningi vegna sterk-
ara gengis. „Sá grundvallarmunur
er núna og í bólunni 2004-2006 að
núna er afgangur á viðskiptajöfn-
uði og við erum ekki að fjármagna
neyslu með lánum beint eða óbeint
frá útlöndum þannig að að því
leytinu til hringja ekki viðvörunar-
bjöllur jafn hátt núna og þá,“ segir
Gylfi en samkvæmt nýbirtum tölum
var afgangur af vöru- og þjónustu-
viðskiptum 148 milljarðar á síðasta
ári á föstu gengi og hefur ekki áður
mælst hærri hér á landi. Gylfi segir
þó að það geti komið upp vandamál
sem útflutningsgreinarnar myndu
þá finna fyrst fyrir. Ferðaþjónustan
hafi til dæmis átt afskaplega góð ár
undanfarið.
Gylfi hefur ágæta tilfinningu fyrir
stöðu efnahagsmála. „Það eru engar
sérstakar ástæður til þess að leggjast
í þunglyndi yfir efnahagshorfum. Við
erum ágætlega stödd en hætturnar
eru gamalkunnar. Ef við ofkeyrum
okkur eitthvað.
Til dæmis ef fjárfestingin í því sem
tengist ferðageiranum verði of mikil
eða þá að við förum aftur að sjá við-
skiptahalla. En ekkert af því virðist
þannig að það stefni beinlínis í óefni.
jonhakon@frettabladid.is
Styrking krónunnar hið besta
mál fyrir almenna borgara
Krónan hefur ekki verið sterkari gagnvart Bandaríkjadal síðan í október 2008. Atvinnurekendur í ferða-
þjónustu hafa áhyggjur en dósent í hagfræði segir ástæðulaust fyrir almenning að leggjast í þunglyndi yfir
efnahagshorfum. Munur núna og í síðustu bólu sé að neysla er ekki fjármögnuð með lánum frá útlöndum.
200
150
100
n Dollari n Evra n Pund
181,47
113,47
130,04
141,22
107,73
132,28
2.3.2016 2.3.2017
✿ Þróun gjaldmiðla gagnvart krónu
Þetta hefur versnað
ef eitthvað er. Auk
blæðinganna líður
nú yfir hana
minnst annan
hvern dag
Lilja Bára
Kristjánsdóttir
SAmfÉLAg Ástand fimmtán ára dal-
vískrar stúlku, sem glímir við að
reglulega blæðir úr augum, nefi og
eyrum, auk annarra kvilla, hefur
ekki batnað síðustu tvo mánuði.
Móðir stúlkunnar er langþreytt á
ástandinu.
Sagt var frá máli Heklu Rúnar
Árskóg í upphafi þessa árs. Auk
blæðinganna fær Hekla tíð uppköst.
Þá fylgja talsverðir verkir veikind-
unum. Lilja Bára Kristjánsdóttir,
móðir stúlkunnar, er ráðþrota.
„Þetta hefur versnað ef eitthvað
er. Auk blæðinganna líður nú yfir
hana minnst annan hvern dag,“
segir Lilja Bára. Hún segir að það
gangi hægt að fá aðstoð lækna. „Ég
hef beðið nú eftir símtali frá lækni
í um tvær vikur eftir að hafa beðið
eftir símtali frá öðrum lækni í rúmar
þrjár.“
Mál Heklu vakti talsverða athygli
þegar sagt var frá því. Lilja segir að
margir hafi haft samband við hana
vegna málsins en enginn þeirra hafi
verið heilbrigðisstarfsmaður. Hún
segir að það komi til greina að skoða
meðferðir erlendis.
Hún bætir við að hún muni að
sjálfsögðu halda áfram að leita lif-
andi ljósi að lækningu handa dóttur
sinni. – jóe
Yfirlið bætist við óútskýrðar blæðingar úr augum og eyrum
Mæðgurnar eru ráðþrota yfir veik-
indum Heklu.
TækNi Google Assistant, raddstýrður
aðstoðarmaður úr smiðju Google,
er nú fáanlegur á fleiri Android-
símum. Hingað til hafði forritið ein-
göngu verið fáanlegt fyrir Pixel-síma
Google. Frá þessu greindi Google á
dögunum.
Google Assistant svipar til Siri, sem
eigendur iPhone-síma þekkja, og
Cortönu, sem notendur Windows 10
þekkja. Getur forritið tekið við radd-
skipunum eða einfaldlega spjallað
við notendur ef sá gállinn er á þeim.
Samkvæmt umfjöllun Tech-
Crunch um Google Assistant er for-
ritið fullkomnara en Siri, Cortana og
Alexa að því leyti að það á auðveld-
ara með að halda áfram samtali við
notandann án þess að ítreka þurfi
sömu spurninguna. Samtalið sé sem
sagt náttúrulegra og líkara raunveru-
legu samtali.
Þá getur Google Assistant, líkt og
sambærileg forrit, minnt mann á við-
burði, tekið myndir, þýtt texta, veitt
leiðsögn, kíkt á veðrið og svo fram-
vegis. Hundruð milljóna Android-
notenda fá því aðgengi að aðstoðar-
manninum nú þegar. Aðgengið er
bundið við Marshmallow og Nougat
útgáfur Android-stýrikerfisins. – þea
Google
Assistant í
fleiri síma
Google Assistant er sagt vera fullkomn-
ara en Siri og Cortana. NoRDICPHoToS/AFP
3 . m A R S 2 0 1 7 f Ö S T U D A g U R4 f R É T T i R ∙ f R É T T A B L A ð i ð
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-E
9
B
4
1
D
1
3
-E
8
7
8
1
D
1
3
-E
7
3
C
1
D
1
3
-E
6
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K