Fréttablaðið - 03.03.2017, Blaðsíða 21
Fótbolti Stelpurnar okkar í kvenna-
landsliðinu í fótbolta mæta Japan í
öðrum leik liðsins á Algarve-mótinu
í fótbolta klukkan 14.45 en leiknum
verður lýst beint á Vísi. Ísland er með
eitt stig í B-riðlinum eftir sterkt jafn-
tefli við firnasterkt lið Noregs þar sem
Freyr Alexandersson landsliðsþjálfari
gaf óreyndari leikmönnum tækifæri.
Japan er einnig ógnarsterkt en það
spilaði til úrslita á HM 2015 í Kanada
og varð heimsmeistari fjórum árum
áður. Ísland og Japan hafa einu sinni
mæst en það var einmitt á Algarve-
mótinu fyrir tveimur árum. Þá höfðu
þær japönsku 2-0 sigur.
Stelpurnar okkar munu spila 3-5-2
leikkerfið í dag sem Freyr Alexand-
ersson landsliðsþjálfari prófaði fyrst á
móti í Kína fyrir áramót.
„Þetta leikkerfi gekk vel þar að
mörgu leyti á meðan við höfðum orku
í það. Það var rakt loft í Kína og mér
fannst liðið þreytt á þessum tíma.
Það hélt vel á meðan við vorum með
ferska fætur,“ sagði Freyr við íþrótta-
deild fyrir mótið. Landsliðsþjálfarinn
vildi eiga aðra leikaðferð á lager til að
geta til dæmis notað á Evrópumótinu
í Hollandi í sumar. Það gæti ráðist í dag
hvort þetta kerfi verði yfir höfuð notað
til frambúðar eða ekki.
„Ég mun prófa það aftur og mun,
eftir að hafa greint leikina, breyta
tæknilegum útfærslum. Við munum
prófa það á móti Japan þannig að
það verður spennandi að sjá hvort
við förum lengra með það eða látum
staðar numið eftir Algarve,“ sagði
Freyr.
Íslenska liðið þurfti að fá undan-
þágu hjá mótshöldurum til að gera
breytingu á liðinu vegna meiðsla
Söndru Maríu Jessen. Guðmunda
Brynja Óladóttir hefur verið kölluð
inn fyrir Akureyringinn sem meiddist
illa gegn Noregi og verður ekki meira
með á mótinu. - tom
Mögulegt lokapróf stelpnanna í 3-5-2
Sandra María Jessen verður ekki meira með. Fréttablaðið/VilhelM
Á morgun, laugardag, efnum við til sölusýningar
í verslun okkar, Nóatúni 4.
Þar gefst tækifæri til að skoða allt það nýjasta sem við bjóðum.
Má þar nefna splunkunýjar uppþvottavélar frá Siemens og Bosch með til að mynda alveg einstakri Zeolith®-
þurrkun, sem þurrkar allt eins og best verður á kosið, líka plastið. Síðan erum við alveg sérlega hrifin af nýja 60° C
hraðkerfinu þar sem þvotturinn tekur aðeins 60 mínútur með þessum fína árangri.
Svo skuluð þið alveg endilega skoða bakstursofnana með brennslusjálfhreinsun sem fengu nýlega hæstu einkunn
hjá sænska neytendablaðinu Testfakta. Nú fá burstinn og hreinsiklúturinn að hvíla sig því að sjálfhreinsunin sér um
öll þrif. Siemens hefur framleitt ofna með brennslusjálfhreinsun í 47 ár eða síðan 1970. Er ekki kominn tími til að
hætta að skrúbba ofninn?
Fjöldi tilboða í tilefni dagsins. Veitum afslátt af öllum vörum sem ekki eru á Tækifærisverði.
Komið og njótið dagsins með okkur!
Kíktu á nýja Tækifærisbæklinginn okkar!
Sölu-
s ý n i n g
Nóatúni 4 • Sími 520 3000
www.sminor.is
Tæki
fæ
ri
Kælitæki /
Uppþvottav
élar / Eldun
artæki / Þv
ottavélar o
g þurrkarar
/ Ljós / Sím
tæki / Ryks
ugur / Kaffi
vélar / Smá
tæki
Það verða
Tækifæris
dagar hjá o
kkur í mar
s. Glæsileg
t úrval
Siemens o
g Bosch he
imilistækja
í eldhús o
g þvottahe
rbergi.
Sum þeirra
eru nú á T
ækifærisv
erði.
Einnig ver
ður sölusý
ning í vers
lun okkar l
augardagi
nn 4. mars
.
Þann dag
veitum við
afslátt af ö
llum vörum
sem ekki
eru þegar
á afslætti.
Opið frá kl
. 10 til 16.
Nóatúni 4
• Sími 52
0 3000
www.smi
nor.is
Fótbolti Jóhann Berg Guðmunds-
son verður ekki í leikmannahópi
Burnley fyrir leik liðsins gegn Gylfa
Þór Sigurðssyni og félögum í Swan-
sea um helgina. Jóhann Berg er að
glíma við vöðvameiðsli í læri sem
hann varð fyrir í bikarleik Burnley
gegn Lincoln í síðasta mánuði. Hann
hefur þó ekki spilað deildarleik
síðan 2. janúar er Burnley tapaði
fyrir Manchester City, 2-1.
Óvíst er hvort Jóhann Berg verður
klár í slaginn þegar Ísland mætir
Kósóvó í undankeppni HM 2018
þann 24. mars.
Leikur Burnley og Swansea fer
fram á laugardaginn kl 15.00 og
verður Gylfi Þór Sigurðsson á sínum
stað í leikmannahópi síðarnefnda
liðsins, sem er nú tveimur stigum
frá fallsæti. Burnley er í ellefta sæti
deildarinnar, sjö stigum á undan
Swansea. – esá
Jóhann Berg
enn úr leik
Jóhann berg í leik með burnley.
Fréttablaðið/Getty
Handbolti Hafdís Renötudóttir,
markvörður Stjörnunnar, er eini
nýliðinn í landsliðshópi Axels
Stefánssonar sem hann valdi fyrir
æfingaferð landsliðsins til Hollands.
Ísland spilar þar tvo leiki, 17. og 18.
mars, við geysisterkt lið Hollands.
Hafdís sló í gegn á nýliðinni bikar-
helgi í handbolta er hún átti stórleik
í úrslitaleiknum gegn Fram.
Sunna Jónsdóttir gat ekki gefið
kost á sér í verkefnið vegna meiðsla
og þá mun Lovísa Thompson spila
með U-19 landsliðinu í undan-
keppni EM á sama tíma. – esá
Bikarhetjan
í landsliðið
hafdís renötudóttir fagnar um síðustu
helgi. Fréttablaðið/andri Marinó
s p o r t ∙ F r É t t a b l a ð i ð 21F Ö s t U d a G U r 3 . m a r s 2 0 1 7
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
1
4
-0
2
6
4
1
D
1
4
-0
1
2
8
1
D
1
3
-F
F
E
C
1
D
1
3
-F
E
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K