Fréttablaðið - 03.03.2017, Page 22
3 . m a r s 2 0 1 7 F Ö s T U D a G U r22 s p o r T ∙ F r É T T a B L a ð i ð
kÖrFUBoLTi „Úrslitahelgin fer fram í
Daytona og þetta verður mikil upp-
lifun,“ segir Elvar Már Friðriksson
en hann er búinn að leiða Barry-
háskólann frá Miami í undanúrslit
í Sunshine State-deildinni, SSC, í
Bandaríkjunum.
Njarðvíkingurinn hefur farið á
kostum í liði Barry með 16,5 stig
og 7,8 stoðsendingar að meðaltali
í leik. Barry vann deildina og Elvar
Már var kosinn besti leikmaður
deildarinnar. Hann átti stórleik er
Barry lagði Florida Tech, 87-84, í
átta liða úrslitum SSC. Þá skoraði
hann 20 stig, gaf 11 stoðsendingar
og tók 7 fráköst.
Æfir alltaf aukalega
„Mér líkar mjög vel hérna. Ég er í
góðu umhverfi og það finnst mér
skipta máli. Það er aðalástæðan
fyrir að mér gengur svona vel,“ segir
Elvar hógvær en hann leggur mikið
á sig.
„Ég æfi aukalega alla daga og
er ekkert í sólbaði út í eitt. Það
skemmir ekkert að hafa þetta veður
hérna þó svo maður eyði mestum
tíma innandyra. Mér finnst ég vera
að bæta leik minn heilt yfir. Ég hef
verið að leggja áherslu á að bæta
hraða og styrk. Ég hef verið með
lyftingaáætlun frá landsliðinu svo
skýt ég mikið aukalega. Ég er því að
bæta mig jafnt og þétt.“
Það er auðvitað mikill heiður
fyrir Elvar Má að hafa verið valinn
bestur í deildinni. Hann var valinn
nýliði ársins í fyrra og er annar leik-
maðurinn í sögu deildarinnar sem
hlýtur báðar útnefningarnar.
Skemmtileg viðurkenning
„Það var ágætis viðbót við að vinna
deildina. Kjörið var á milli mín og
eins liðsfélaga míns. Ég held ég hafi
unnið hann með einu atkvæði.
Ég var því heppinn að vinna og ég
er mjög glaður með það. Þetta er
skemmtileg viðurkenning,“ segir
Njarðvíkingurinn en fyrsta árið í
Bandaríkjunum var hann í LIU-
háskólanum í New York. Hann sér
ekki eftir að hafa skipt og segist hafa
valið rétt. Verki Elvars og félaga er
ekki lokið og þeir ætla sér alla leið
um helgina.
„Við unnum deildina og ég held
að við séum líklegastir. Þetta er
samt útsláttarkeppni og þá veit
maður aldrei hvað gerist. Það er
svolítið spurning um dagsformið
í þessum leikjum. Ég tel okkur lík-
lega. Erum á góðu skriði og ég held
að við eigum góða möguleika. Þetta
verður mikil upplifun og mikil
umgjörð í kringum helgina. Þetta
verður mjög amerískt. Þeir kunna
þetta hérna,“ segir Elvar léttur en
hann er í krefjandi námi í viðskipta-
stjórnun. „Þetta er bara körfubolti
og skóli hérna.“
Elvar Már klárar námið næsta
vetur og tók aldrei annað í mál.
„Menntunin er jafn mikilvæg og
körfuboltinn,“ segir þessi hæfi-
leikaríki leikmaður en hann hefur
sett stefnuna á atvinnumennskuna
eftir háskólanámið.
„Áður en ég kom út var mark-
miðið alltaf að komast í atvinnu-
mennsku. Ég ætlaði að nota þetta
sem stökkpall í atvinnumennskuna
og eftir tímann hér verð ég meira
tilbúinn í það. Bæði sem leikmaður
og manneskja.“
Ætlar að komast á EM
Hugur Elvars er aftur á móti ansi
mikill á EM í körfubolta en þangað
ætlar hann sér að komast.
„Það er mín aðalhvatning að
komast á EM. Ég missti af því síðast
þar sem ég var að skipta um skóla.
Ég ætla ekki að missa af því aftur. Ég
hef lagt hart að mér og ætla að kom-
ast í hópinn.“ henry@frettabladid.is
Ég ligg ekki
bara í sólbaði
Njarðvíkingurinn Elvar Már Friðriksson hefur farið
á kostum með Barry-háskólanum í Miami. Hann var
kjörinn besti leikmaður SSC-deildarinnar og er á
leið í úrslitahelgi þar sem hann ætlar alla leið.
Elvar er hér í búningi Barry þar sem hann hefur farið á kostum. nordicphotoS/gEtty
Áður en ég kom út
var markmiðið
alltaf að komast í atvinnu-
mennsku. Eftir tímann hér
verð ég meira tilbúinn. Bæði
sem leikmaðu og manneskja.
Elvar Már Friðriksson
FÖSTUDAGA KL. 19:20
Martha & Snoop's
POTLUCK DINNER PARTY
MARGFALT
SKEMMTILEGRI
365.is 1817
Tryggðu
þér
áskrift á
aðeins
333 kr. á
dag
9.990 kr
. á mánu
ði
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
4
-0
7
5
4
1
D
1
4
-0
6
1
8
1
D
1
4
-0
4
D
C
1
D
1
4
-0
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K