Fréttablaðið - 03.03.2017, Side 30
„Tryggingar veita þér og þínum fjárhagslegt öryggi og hugarró sem felst í því að hafa öryggisnet þegar áföllin dynja á,“ segir Hafsteinn Esekíel Hafsteinsson, sölu- og þjónustustjóri hjá Sjóvá. MYND/VILHELM
Fasteignatrygging bætir ýmiss konar tjón sem íbúðareigandi getur orðið fyrir, t.d.
ef vatn flæðir úr leiðslum og skemmir gólfefni eða innréttingar.
Fjölskyldutrygging tryggir m.a. innbúið þitt, sem eru þeir munir sem þú tekur
þegar flutt er.
Þegar fyrsta fasteign er keypt er
mikilvægt að huga vel að trygg-
ingamálum. Þar skiptir persónu-
leg og fagleg þjónusta mjög miklu
máli. Hér svarar Hafsteinn Ese-
kíel Hafsteinsson, sölu- og þjón-
ustustjóri hjá Sjóvá, nokkrum al-
gengum spurningum er snúa að
fyrstu kaupum á fasteign.
Tryggingar virka flóknar og
margir vita ekki hvað er innifalið
í hverri tryggingu. Getur þú sagt
okkur í einföldu máli hvað er á
bak við hverja tryggingu?
Í einföldu máli má segja að
sjúkdómatryggingar séu til þess
fallnar að tryggja fjárhagslegt
öryggi þitt ef þú veikist alvar-
lega eða slasast. Líftrygging er
síðan bakland þinna nánustu ef þú
skyldir falla frá á meðan Barna-
trygging er til þess að vernda
framtíðaröryggi barna þinna.
Fjölskyldutrygging tryggir inn-
búið sem þú átt og heimilisfólk
fyrir tjóni á eigum og fyrir slys-
um í frítíma. Þegar við tölum um
innbú er átt við þá muni sem þú
tekur með þér þegar þú flytur.
Fyrir fasteignina bjóðum við
brunatryggingu sem er skylda að
kaupa samkvæmt lögum. Til við-
bótar ættir þú að kaupa fasteigna-
tryggingu sem bætir tjón á eign-
inni ef t.d. vatn flæðir úr leiðslum
og skemmir gólfefni eða innrétt-
ingar.
Nú tala margir um að þeir fái
aldrei neitt úr tryggingum
sínum. En hvað er fólk raunveru-
lega að kaupa með tryggingum?
Jú, það er rétt að mörgum finnst
þeir ekki fá mikið fyrir pening-
ana þegar þeir kaupa tryggingar.
Tryggingar veita þér og þínum
fjárhagslegt öryggi og hugarró
sem felst í því að hafa öryggisnet
þegar áföllin dynja á. Trygging-
ar eru þó í raun vara sem við vilj-
um helst ekki nota. Ef þú þarft að
leita til tryggingafélagsins er það
oftast í kjölfar óhapps, slysa eða
einhvers konar tjóns og hver vill
upplifa það? En við gerum okkar
besta til að taka vel á móti þér og
við bætum fólki tjón sitt að fullu
í meira en 90% tilfella. Við vitum
hvað tryggingar skipta fólk miklu
máli þegar á reynir og þess vegna
er það okkur kappsmál að keppast
við að fólk sé rétt tryggt.
Hvaða tryggingar þarf ég þegar
ég hef keypt mína fyrstu íbúð?
Fyrir utan tryggingarnar sem ég
nefndi áður, þ.e. fjölskyldu- og
fasteignatryggingar, er nauðsyn-
legt að huga að líf- og sjúkdóma-
tryggingum. Sá sem kaupir sína
fyrstu íbúð eða annars konar fast-
eign skuldbindur sig til fjölda ára.
Viðkomandi þarf því að tryggja
fjárhagslegt öryggi sitt ef eitt-
hvað skyldi koma upp á.
Fjárhagslegt öryggi – hvað ber
að hafa í huga?
Það er sjálfsagt að allir þekki
sinn rétt. Ef þú ert launþegi, þ.e.
vinnur hjá öðrum, skaltu kanna
hjá stéttarfélaginu þínu og lífeyr-
issjóði hvaða réttindi þú átt ef þú
veikist alvarlega eða slasast. Þau
réttindi bæta sjaldnast tekjutap
að fullu. Þar koma tryggingar-
félögin inn og er því rétt að leita
til þeirra og fá þar ráðgjöf um
tryggingar sem þú getur keypt til
viðbótar. Við mælum með að allir
sem hafa fjárhagslegar skuld-
bindingar og sjá fyrir öðrum
byrji á því að kaupa líf- og sjúk
dómatryggingar.
Ef þú ert sjálfstæður atvinnu-
rekandi þarft þú að huga sérstak-
lega að sjúkra- og slysatrygging-
um sem gilda bæði í vinnu og frí-
tíma. Við getum hjálpað þér við að
finna út hvaða tryggingar henta
þér best.
Fasteign, bruni og innbú
Mikilvægt er, þegar íbúð er keypt
í fjölbýli, að kanna hvort hús-
félagið sé með sameiginlega fast-
eignatryggingu. Fasteignatrygg-
ing er valkvæð og greiðir bætur
vegna tjóna á föstum innrétting-
um og gólfefnum sem skemmast,
t.d af völdum vatns úr leiðslum
og innbrots. Hún innifelur líka
glertryggingu og foktryggingu
svo eitthvað sé nefnt. Fjölskyldu-
trygging innifelur innbústrygg-
ingu sem tryggir húsgögn og
lausamuni sem skemmast t.d. í
vatnstjóni eða innbroti. Þannig að
ef við ættum að setja þetta upp í
verkefnalista þá myndi hann líta
svona út:
Kaup á fasteign
l Fasteignatrygging
l Líf- og sjúkdómatrygging fyrir
fjölskyldumeðlimi sem eru 18
ára og eldri og barnatrygging
fyrir börnin
l Fjölskyldutrygging sem tryggir
innbúið og fjölskylduna
l Athuga eldvarnarbúnað og inn-
brotavarnir
Ég hvet því alla sem eru að fjár-
festa eða að íhuga að fjárfesta í
eign að fara vel yfir öll sín trygg-
ingamál og ganga úr skugga um
að ef komi eitthvað upp á, þá sé
trygging til staðar svo tjónið bitni
ekki á heimilinu.
Allar nánari upplýsingar
má finna á www.sjova.is.
Huga þarf mjög vel að tryggingum
Réttar tryggingar skipta mjög miklu máli þegar fyrsta fasteign er keypt. Þær tryggingar snúa bæði að fasteigninni sjálfri en ekki síður
að þeim sem hana kaupir. Sjóvá veitir persónulega og faglega þjónustu öllum þeim sem eru að íhuga kaup á sinni fyrstu fasteign.
FYrSTA HEIMILIð Kynningarblað HEIMILISTrYggINgAr
3. mars 20174
1
3
-0
6
-2
0
1
7
1
0
:4
6
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
1
3
-E
E
A
4
1
D
1
3
-E
D
6
8
1
D
1
3
-E
C
2
C
1
D
1
3
-E
A
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
2
0
1
7
C
M
Y
K