Fréttablaðið - 02.06.2017, Side 2
Ef Reykjavíkurborg
ætlar að hafa þessa
starfsemi þá er það skylda
hennar að sjá til þess að
rekstrinum og viðhaldi sé
sinnt. Það eru mörg sóknar-
færi í þessari skemmtilegu
starfsemi.
Tómas Óskar
Guðjónsson,
forstöðumaður
Fjölskyldu- og
húsdýragarðsins
Veður
Áfram strekkings norðaustanátt
NV-til í dag, en lægir annars staðar.
Væta með köflum í flestum lands-
hlutum. Hiti 6 til 14 stig.
sjá síðu 22
Í sumarham
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra hélt glaður inn í sumarið í gær eftir síðasta dag þingsins, þegar þingmenn héldu í sumarfrí og andrúmsloftið léttist
til muna. Mikill hasar var á síðustu dögum þingsins og stíft fundað um tillögur Sigríðar Andersen dómsmálaráðherra um skipan dómara í Landsrétt.
Þá var fundað fram á nótt daginn áður, meðal annars um fjármálaáætlun og jafnlaunavottun. Öll þrjú málin voru samþykkt. Fréttablaðið/Ernir
Mannlíf „Ef Reykjavíkurborg ætlar að
hafa þessa starfsemi þá er það skylda
hennar að sjá til þess að rekstrinum
og viðhaldi sé sinnt. Það eru mörg
sóknarfæri í þessari skemmtilegu
starfsemi,“ segir Tómas Óskar Guð-
jónsson, forstöðumaður Fjölskyldu-
og húsdýragarðsins en mörg tæki
þarfnast endurnýjunar, viðhalds
og margt er hreinlega orðið ónýtt.
Nokkur tæki verða ekki í notkun í
sumar vegna niðurskurðar á atvinnu
fyrir unglinga. Fyrir utan leiktækin
eru girðingar löngu úr sér gengnar.
Alvarlegast sé þó aðstöðuleysi, fyrir
kennslu og starfsfólk sem uppfyllir
ekki lágmarkskröfur.
Kostnaður við endurnýjun og við-
gerðir er áætlaður 32,4 til 37,4 millj-
ónir króna, fyrir utan kostnað vegna
girðinga og starfsmannaaðstöðu.
Þetta kemur fram í svörum sviðsstjóra
ÍTR við fyrirspurn fulltrúa Framsókn-
ar og flugvallarvina.
Listinn yfir tæki sem þarf að laga
er langur. Krakkafoss, báturinn
frægi sem snýst, er viðhaldsfrekur
og þarfnast endurnýjunar enda á
fermingaraldri. Lestin er 16 ára og í
henni þarf að endurnýja rafgeyma.
Komið er að því að endurnýja hluta
af ökuskólabílunum, öll ljósin í hinni
15 ára hringekju eru ónýt, fallturninn
er áratugagamall, brunabíllinn er
ónýtur, litli leikkastalinn sjúskaður
og Naglfar, stóra leikkastalaskipið,
þarf að mála og dytta að.
Þá er æskilegt að setja viðunandi
undirlag eins og er við skóla við skip-
ið. Fjölga þarf rafmagnsbílum fyrir
yngri börn og bæta akstursaðstöðu.
Tómas segir að hann vonist eftir
auknu fjármagni. „Eftir langvarandi
hlé verða vonandi stigin fyrstu skrefin
til að bæta garðinn. Það hefur staðið
til að gefa í frá því fyrir hrun. Þetta er
mikið til uppsafnað. Nú þurfa allir
góðir menn að taka höndum saman
og gefa í.“ benediktboas@365.is
Fjölskyldugarðurinn
alveg að grotna niður
Fjölmörg leiktæki í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum eru orðin gömul og úr sér
gengin. Sum jafnvel ónýt og verða ekki í notkun í sumar. Um 35 milljónir kostar
að endurnýja tækin og vonar forstöðumaðurinn að nú verði spyrnt við fótum.
litli leikkastalinn er orðinn mjög sjúskaður en það er ekki hægt að mála hann
enda plasthúðaður. Fréttablaðið/anton brink
Það sem þarf að gera
tæki sem þarfnast
endurnýjunar
Krakkafoss (14 ára)
Fallturninn (10 ára)
Lestin (16 ára)
Hringekja (15 ára)
Fjölga þarf rafmagnsbílum
fyrir yngri börn og bæta aksturs-
aðstöðuna
Naglfar (leikkastalaskipið)
Litli leikkastalinn
tæki sem eru ónýt
Öll ljós í Hringekju
Brunabíllinn sem stendur við
Barnaborg (smáhýsin)
Öll átta gormaleiktæki
Rennibraut við Naglfar
Smiðjuvegi 2, Kópavogi - www.grillbudin.is - Sími 554 0400
Grillbúðin
76.900
Niðurfellanleg
hliðarborð á
3ja brennara
• Afl 14,8 KW(4 br)
• Afl 10,5 KW(3 br)
• 3 - 4 brennarar
• Brennarar úr ryðfríu stáli
• Postulínsemalerað eldhólf
• Grillgrindur úr pottjárni
• PTS hitajöfnunarkerfi
• Kveiking í öllum tökkum
• Niðurfellanleg hliðarborð (3 br)
• Gashella í hliðarborði (4 br)
• Tvöfalt einangrað lok með hitamæli
• Postulínsemaleruð efri grind
• Grillflötur 65 x 44 cm
• Auðveld þrif - Bakki fyrir fitu
undir öllu grillinu
20% afsláttur af
vínrauðum grillum
föstudag & laugardag
Gildir 2. og 3. júní
Skoði
ð nýja
vefve
rslun
www
.grillb
udin.i
s
Nr. 12931 og 12961 - Vínrautt
Opið virka daga 11-18
Laugardaga 11-16
55.920
Verð áður 69.900
71.920
Verð áður 89.900
VIðsKIPTI Stjórnendur líftækni-
félagsins WuXi NextCODE funda um
þessar mundir með mögulegum fjár-
festum, en heimildir Reuters herma
að fjárfestingarsjóðirnir Hillhouse
Capital og Sequoia Capital hafi sýnt
áhuga á að fjárfesta í félaginu, sem
Hannes Smárason stýrir. Vonast er
til að fjármögnuninni ljúki í júlí.
WuXi NextCODE lauk 75 milljóna
dala fjármögnun í byrjun síðasta
mánaðar. Sjóðirnir Temasek, sem er í
eigu singapúrska ríkisins, og Yunfeng
Capital, sem er í eigu Jacks Ma, stofn-
anda Alibaba, lögðu m.a. félaginu til
75 milljónir dala, um 7,4 milljarða
króna. Þess má geta að Temasek er
stór hluthafi í Alvogen, lyfjafyrirtæki
Róberts Wessman. Sjóður á vegum
Amgen, bandaríska lyfjarisans sem
keypti Íslenska erfðagreiningu 2012,
tók líka þátt í fjármögnuninni.
Fjármögnuninni er ætlað að skjóta
styrkari stoðum undir starfsemi
félagsins á alþjóðavísu, sérstaklega
í Kína, þar sem líftæknigeirinn vex
hratt. Sjálfur hefur Hannes sagt að
félagið geti orðið leiðandi í heim-
inum á sínu sviði.
Hannes var ráðinn forstjóri WuXi
NextCODE í mars. Áður hafði hann
setið í yfirstjórn félagsins. Hann kom
að stofnun NextCODE, dótturfélags
Íslenskrar erfðagreiningar, 2013, en
félagið seldi sjúkdómsgreiningar til
lækna og sjúkrahúsa í Bandaríkj-
unum. Líftæknirisinn WuXi AppTec
keypti NextCODE á 8,5 milljarða
króna í byrjun árs 2015 og í kjölfarið
sameinaðist félagið öðru líftækni-
félagi, WuXi Genome Center, og til
varð WuXi NextCODE. Félagið starf-
rækir skrifstofur í Sjanghaí, Banda-
ríkjunum og Reykjavík. – kij
Vilja styrkja
starfsemi í Kína
Hannes
Smárason
sTjÓRnsÝsla Fjármálaráðuneytið
keypti sérfræðiráðgjöf af lögmanns-
stofunni Juris fyrir 107 milljónir á
árunum 2013-15 án þess að samningur
væri gerður. Þetta kemur fram í skýrslu
Ríkisendurskoðunar.
Í eigendahópi Juris eru þrír sem
hafa í gegnum tíðina verið á framboðs-
listum Sjálfstæðisflokksins eða gegnt
trúnaðarstörfum fyrir hann, Lárus
Blöndal, Vífill Harðarson og Sigur-
björn Magnússon.
Í yfirlýsingu frá ráðuneytinu segir að
ráðgjöf Juris hafi snúið að þjóðlendu-
málum sem hafi verið í gangi frá árinu
1998. Það hafi fallið í hlut ráðuneytis-
ins að leggja fram kröfulýsingu ríkisins
í hverju einu og einasta máli sem er til
meðferðar hjá óbyggðanefnd.
Málið er í endurskoðun hjá ráðu-
neytinu. – jóe
Milljóna
ráðgjöf keypt af
innmúruðum
2 . j ú n í 2 0 1 7 f Ö s T u D a G u R2 f R é T T I R ∙ f R é T T a B l a ð I ð
0
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
E
-5
4
A
4
1
C
F
E
-5
3
6
8
1
C
F
E
-5
2
2
C
1
C
F
E
-5
0
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K