Fréttablaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 8
Alþingi Þingflokkur Pírata taldi að
frumvarp hans um aukinn aðgang
að fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra
(RSK), sem var samþykkt á Alþingi
á miðvikudag, myndi opna gjald-
frjálsan aðgang almennings að árs-
reikningum fyrirtækja. Svo varð
ekki enda gilda önnur lög um árs-
reikninga en þau sem frumvarpið
breytti.
Embætti RSK benti í umsögn
sinni um frumvarpið á að af grein-
argerð þess mætti ráða að þing-
flokkurinn hefði gert ráð fyrir að
breyting á lögum um fyrirtækja-
skrá myndi leiða til gjaldfrelsis hjá
ársreikningaskrá. Svo væri ekki þar
sem lagaákvæði um þá skrá væri að
finna í lögum um ársreikninga.
Björn Leví Gunnarsson, þingmað-
ur Pírata, var fyrsti flutningsmaður
frumvarpsins en það var lagt fram
í byrjun febrúar. Þremur dögum
síðar las hann greinargerðina upp
í ræðu á Alþingi. Umsögn RSK barst
rúmum mánuði síðar og mætti
Benedikt Jóhannesson, fjármála- og
efnahagsráðherra, á fund efnahags-
og viðskiptanefndar Alþingis og
lýsti yfir stuðningi við frumvarpið.
Benedikt sagðist þó vilja ganga
lengra með opnun ársreikninga-
skrár og hluthafaskrár á næstu árum
og segir Smári McCarthy það hafa
verið markmið Pírata frá upphafi.
„Það má kalla þetta „feil“ en við
ætluðum að ganga alla leið strax
í upphafi en svo ákváðum við að
milda þetta því við vorum ekki viss
hversu mikið þetta myndi kosta
og hversu mikilli mótstöðu þetta
myndi mæta. Þegar við lögðum
þetta fram vorum við búin að milda
texta frumvarpsins en breyttum
ekki greinargerðinni. Núna vitum
við hvað það mun kosta að opna
ársreikningaskrá líka og hluta-
félagaskrá og við fengum miklu
meiri stuðning við frumvarpið en
við áttum von á og við því komin
í ágætis aðstöðu til að klára þetta,“
segir Smári McCarthy, þingmaður
Pírata og framsögumaður nefndar-
álits meirihluta efnahags- og við-
skiptanefndar Alþingis, um frum-
varpið.
Frumvarpið var fyrst lagt fram á
Alþingi í október 2015 og í greinar-
gerð þess var einnig bent á að upp-
lýsingar úr ársreikningum væru
ekki aðgengilegar almenningi. Sam-
þykkt frumvarpsins þýðir að frá og
með næstu áramótum verða allar
þær upplýsingar sem skráðar eru í
fyrirtækjaskrá, svo sem kennitölur
forráðamanna allra skráðra félaga
hér á landi, aðgengilegar á vef RSK.
haraldur@frettabladid.is
Píratar töldu frumvarp
opna fyrir ársreikninga
Frumvarp þingflokks Pírata um aukinn aðgang almennings að fyrirtækjaskrá
var samþykkt á Alþingi en opnaði ekki á gjaldfrjálsan aðgang að ársreikningum
fyrirtækja. Önnur lög gilda um reikningana eins og ríkisskattstjóri benti á.
Frumvarpið var lagt fram af Birgittu Jónsdóttur, Einari Brynjólfssyni og
Smára McCarthy auk sjö annarra þingmanna Pírata. FréttaBlaðið/Ernir
Það má kalla þetta
„feil“ en við ætluð
um að ganga alla leið strax í
upphafi.
Smári McCarthy,
þingmaður Pírata
DAnMÖRK Forsætisráðherra Dan-
merkur, Lars Løkke Rasmussen,
leggur til að betlandi gengi Róma-
fólks sem borgurum stendur ógn af
verði dæmt í viku skilorðsbundið
fangelsi til tveggja vikna óskilorðs-
bundins fangelsis.
Yfirborgarstjóri Kaupmannahafn-
ar, Frank Jensen, bað ríkisstjórnina
um aðstoð þar sem vandinn sem
fylgdi Rómafólki væri orðinn mik-
ill. Jensen segir tillögu Rasmussen
aðeins leysa lítinn hluta vandans.
Eitthvað verði að gera vegna þess
fjölda sem sefur á götum úti. Það
eigi sinn þátt í öryggisleysi íbúa. – ibs
Betlarar í fangelsi
RússlAnD Flugslys sem varð er flug-
vél hrapaði í Svartahaf á jóladag
með þeim afleiðingum að 92 fórust
var líklegast mistökum flugmanns
að kenna. Þetta hefur rannsókn
rússneskra rannsakenda leitt í ljós.
Mistökin megi að nokkru leyti rekja
til þreytu.
Á meðal hinna látnu voru með-
limir kórs rússneska hersins, hins
svokallaða Alexandrov-hóps, en
vélin var á leið til Sýrlands þar sem
kórinn ætlaði að skemmta her-
mönnum.
Í tilkynningu frá rússneska varn-
armálaráðuneytinu frá í gær segir að
þreyta hafi líklega raskað skynjun
flugmannsins og þess vegna hafi
hann gert skissu.
Hins vegar hafi rannsakendur
ekki komist að því að reglur um
áfyllingu eldsneytis hafi verið
brotnar eða að utanaðkomandi
áhrif hafi valdið flugslysinu. – þea
Flugmanni
kennt um hrapið
Mikil sorg ríkti vegna slyssins.
nordiCPhotoS/aFP
DóMsMál Ríkið tapar milljónum
króna vegna vanhæfis Sigríðar Hjalte-
sted, eins þriggja dómara í Stím-mál-
inu í Héraðsdómi Reykjavíkur. Hæsti-
réttur úrskurðaði í gær að aðalmeðferð
þyrfti að fara aftur fram í héraði þar
sem fyrrverandi eiginmaður Sigríðar
kom við sögu í gögnum málsins.
Hlaut Lárus Welding, fyrrverandi
forstjóri Glitnis, fimm ára fangelsis-
dóm, Jóhannes Baldursson, fyrrver-
andi framkvæmdastjóri markaðs-
viðskipta, hlaut tveggja ára dóm
og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
fyrrverandi forstjóri Sögu Capital,
átta mánaða dóm. Áfrýjunarkostn-
aður fyrir Hæstarétti lendir á íslenska
ríkinu, þar með talin málsvarnar-
laun, 1.240 þúsund krónur á hvern
verjanda.
Það sama var uppi á teningnum í
Aurum-málinu 2015, en það var sent
aftur í hérað. Í febrúar ómerkti Hæsti-
réttur svo dóm í Marple-málinu vegna
vanhæfis sérhæfðs
m e ð d ó m a r a .
L ö g m ö n n u m
sem Frétta-
blaðið ræddi þá
við bar saman
um að kostnað-
ur vegna þess
gæti hlaupið
á tugum millj-
óna.
- þea
Milljónatap
ríkisins af
Stím-málinu
lárus
Welding,
fv. for-
stjóri
Glitnis
BRUni Slökkviliðsmenn í Borgarbyggð
voru kallaðir út um kvöldmatarleytið
í gærkvöld eftir að tilkynning barst
um eld í sumarbústað í Skorradal.
Slökkvistarf gekk vel og var verið að
slökkva í síðustu glæðunum rúmlega
níu. Bústaðurinn, sem var mannlaus,
er ónýtur.
„Hann stendur kannski hálfur eftir
uppi,“ segir Bjarni Kristinn Þorsteins-
son, slökkviliðsstjóri í Borgarnesi. Elds-
upptök liggja ekki fyrir en talið er að
hann hafi kviknað út frá rafmagni. - jóe
Slökktu eld
í Skorradal
2 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö s T U D A g U R8 F R é T T i R ∙ F R é T T A B l A ð i ð
0
2
-0
6
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
F
E
-7
7
3
4
1
C
F
E
-7
5
F
8
1
C
F
E
-7
4
B
C
1
C
F
E
-7
3
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
6
_
2
0
1
7
C
M
Y
K