Fréttablaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 02.06.2017, Blaðsíða 18
sagði Ólafur. Egill útskýrði að í hinum helmingnum væri aðstaða til varps. Hænurnar séu með hitalampa og geti verið í kofanum allan ársins hring. Að sumrinu sjá strákarnir fyrir sér að kofinn verði færður nær tjaldstæðinu, aftan við skólann, enda sé hann byggður á vörubretti þannig að auðvelt sé að færa hann með dráttarvél. Þá verði það gestir tjaldstæðisins sem sinni hænunum en afar og ömmur á Hofsósi til vara. Ólafur og Egill eiga heima í Fljótunum, um hálftíma akstur frá Hofsósi, Ólafur er frá Brúnastöðum og Egill frá Mola- stöðum, sauðfjárbú eru á báðum bæjum og þeir eru því vanir skepnum. Á Brúna- stöðum er meira að segja dýragarður á sumrin og þar eru margar tegundir af hænum, allt frá risastórum niður í litlar kornhænur. Báðir voru piltarnir að ljúka 10. bekk og ætla í Menntaskólann á Akureyri með haustinu. gun@frettabladid.is Eiginkona mín, Dóra Nordal er látin. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 2. júní klukkan 13. Jóhannes Nordal Faðir minn, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og vinur, Kristján Jónsson fyrrv. rafmagnsveitustjóri ríkisins, lést þriðjudaginn 9. maí 2017. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Fyrir hönd ættingja og vina, Walter Ragnar Kristjánsson Kristey Jónsdóttir Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Ingibergur Herjólfsson lést þann 15. maí á hjúkrunarheimilinu Nesvöllum í Reykjanesbæ. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Herjólfur Hafþór Jónsson Kristín Árnadóttir Þóra Rut Jónsdóttir Guðmundur Stefánsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Ingibjörg Arngrímsdóttir Holtateigi 5, Akureyri, sem lést á Dvalarheimilinu Hlíð, miðvikudaginn 24. maí, verður jarðsungin frá Höfðakapellu á Akureyri, þriðjudaginn 6. júní kl. 13.30. Gunnar Kristinsson Gígja Gunnarsdóttir Ólafur Halldórsson Úlfar Gunnarsson Vilborg Jóhannsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Við afhendinguna. Ólafur Harðarson fundarstjóri, Fríða Vala Ásbjörnsdóttir, verkefnisstjóri Landsbyggðarvina, Alma Ágústsdóttir, fulltrúi Grunnskólans á Hólmavík sem hlaut 2. verðlaun, Egill og Ólafur, 1. verðlaunahafar, Katrín Jakobsdóttir, sem afhenti verð- launin ásamt Jóni Gunnarssyni ráðherra, og Helgi Árnason, skólastjóri og formaður Landsbyggðarvina. Ég hlakka til að koma á Hofsós næst og fá egg úr hænsnabúinu við skólann,“ sagði Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi menntamála-ráðherra, glaðlega þegar hún afhenti nýlega 1. verðlaun félagsins Landsbyggðarvina. Tveir herramenn, Ólafur Ísar Jóhannesson og Egill Rúnar Halldórsson, fráfarandi nemendur Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi, tóku við verðlaununum fyrir hænsna- kofa sem þeir hafa komið upp við skól- ann. Kofinn reyndist besta hugmynd að lausnum að betri framtíð í heimabyggð sem félaginu barst þetta árið frá grunn- skólanemendum. Hugmyndin snerist ekki bara um að byggja kofann úr endurunnu efni, heldur að gefa nemendum skólans kost á að komast í tæri við hænur og vinna í leiðinni gegn matarsóun því hænurnar fá afganga sem falla til í heimilisfræði, mötuneyti og kaffistofu og skólinn fær eggin í staðinn. Eins og dómnefnd Landsbyggðarvina orðaði það í rök- stuðningi sínum: „Sjálfbærni alla leið.“ Afhendingin fór fram í Norræna hús- inu og eftir hana voru Egill Rúnar og Ólafur Ísar króaðir af í spjall. Þeir héldu á umslagi með verðlaunafé, hundrað þúsund krónum, og voru sammála um að peningurinn kæmi sér vel því nauð- synlegt væri að kaupa fóðurbæti handa hænunum, til að eggin skiluðu sér. „Svo væri gott að búa til smá gerði svo hænurnar geti verið úti við,“ sagði Egill. „Já, þetta er tvískiptur kofi núna sem við smíðuðum úr öðrum gömlum kofa og afgangs smíðaefni. Öðrum megin leikur ferskt loft um hænurnar og þær eru í birtu en það væri gott fyrir þær að komast aðeins út í gras og gott veður,“ Hænsnakofi hugmynd sem færði félögum sigur Ólafur Ísar Jóhannesson og Egill Rúnar Halldórsson hlutu 1. verðlaun Landsbyggðarvina fyrir verkefni sitt, hænsnakofa á lóð Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi. Þetta er tvískiptur kofi núna sem við smíð- uðum úr öðrum gömlum kofa og afgangs smíðaefni. Ólafur Ísar Jóhannesson Svona var kofinn þegar þeir félagar fundu hann. Svona er hann eftir breytinguna. 1907 Húsavíkurkirkja er vígð. 1934 Jarðskjálfti verður norðanlands og veldur miklum skemmdum á Dalvík og nágrenni. Stærð hans er um 6,2 stig á Richter. 1946 Þjóðaratkvæðagreiðsla sker úr um að Ítalía verði lýðveldi í stað konungríkis. Konungur Ítalíu, Úmbertó 2., fer í útlegð. 1953 Krýningu Elísabetar 2. er sjónvarpað um allt Bretland. 1957 Hrafnista, dvalarheimili aldraðra sjómanna, er opnað í Reykjavík á tuttugasta sjómannadeginum. 2004 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, synjar fjöl- miðlafrumvarpinu staðfestingar. 2008 Jarðskjálfti skekur Hveragerði. Skjálftinn mælist 5,5 stig á Richter-kvarða. Merkisatburðir 2 . j ú n í 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U R18 T í m A m ó T ∙ F R É T T A B L A ð i ð tímamót Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. 0 2 -0 6 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C F E -8 6 0 4 1 C F E -8 4 C 8 1 C F E -8 3 8 C 1 C F E -8 2 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 6 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.